Fréttablaðið - 22.09.2003, Blaðsíða 43
Þetta er alveg án samráðs og sam-skipta við okkur sem þetta fer
fram,“ segir Sigurður Helgason hjá
Umferðarráði um Bíllausan dag,
sem er í dag, en það er Reykjavíkur-
borg sem stendur fyrir átakinu í
tengslum við evrópska samgöngu-
viku. „Þetta er svolítið erfitt því
bíllinn er svo gríðarlega stór hluti
af daglegu lífi fólks. Hins vegar
vonar maður að sem flestir nýti sér
aðra valkosti.“
Sigurður segir að helst sé að nýta
sér strætisvagnakerfið eða samnýta
þá bíla sem þegar eru til á heimil-
inu, sérstaklega í ljósi þess að
ástandið sé þannig að varla sé pláss
fyrir fleiri bíla í borginni.
Talað er um að í Reykjavík séu
um 550-600 bílar á hverja þúsund
íbúa. Aðeins eru um 200-250 í Kaup-
mannahöfn á hverja þúsund. Þar,
eins og í svo mörgum borgum Evr-
ópu, eru almenningssamgöngur
mun betri en hér. Margar þeirra eru
t.d. bæði með strætisvagnakerfi og
lestakerfi.
„Auðvitað væri það æskilegt að
finna einhverjar leiðir svo fólk
þyrfti ekki að bíða langan tíma eftir
almenningsvögnum. Tíðni ferða er í
það minnsta fyrir flesta. Það helg-
ast af því að það eru frekar fáir sem
nýta sér þessa þjónustu.“
Sigurður segir það virðingavert
að halda slíka daga, bæði til þess að
vekja athygli á almenningssam-
göngum og því ástandi sem er ríkj-
andi úti í umferðinni.
Þá er bara að vona að veðrið
verði þannig að fólk treysti sér til
þess að ganga á milli strætóskýla. ■
15MÁNUDAGUR 22. september 2003
Spennandi
starf
Ég hef mikinn áhuga á málefnumútlendinga og fjölmenningar-
samfélagi yfir höfuð. Ég held að
bæta megi margt hér á landi í þess-
um efnum,“ segir
Einar Skúlason,
sem er nýr fram-
kvæmdastjóri Al-
þ j ó ð a h ú s s i n s .
Starfsemi alþjóða-
hússins segir Einar
að megi í grófum
dráttum skipta í
þrennt: „Túlka- og
þýðingaþjónustu,
lögfræðiþjónustu
og almenna upplýs-
i n g a s t a r f s e m i ,
bæði til útlendinga
og Íslendinga.“
„Mér finnst þetta gríðarlega
spennandi starf og hlakka mikið til
að starfa með fólkinu sem þarna
vinnur og hefur unnið mjög gott
starf.“
Einar er nýkominn úr MBA-
námi í Edinborg. Námsfélagar hans
voru frá 40 löndum alls staðar úr
heiminum og segir hann það hafa
verið mjög skemmtilega reynslu og
veitt innsýn í alþjóðasamfélagið.
„Það er ekki eins mikið af innflytj-
endum í Edinborg og víða annars
staðar í Bretlandi en háskólinn er
mjög alþjóðlegur. „Á stúdentagarð-
inum bjó til dæmis fólk frá tugum
landa.“
Einar var formaður Félags
ungra framsóknarmanna áður en
hann fór til Skotlands í nám. Hann
segist ekki stefna á félagsstörf þar
á næstunni, hann hafi hreinlega
ekki til þess tíma, þó hann sé góður
og gegn framsóknarmaður nú sem
fyrr. „Ég var að eignast mitt þriðja
barn í sumar, og á einn fósturson,
þannig að heimilisstörfin taka mik-
inn tíma,“ segir Einar, sem er í sam-
búð með Jóhönnu Vigdísi Guð-
mundsdóttur, MBA-nema í Háskól-
anum í Reykjavík. „Við vorum að
kaupa okkur íbúð og bíl og erum
dottin á fullt í lífsgæðakapphlaupið
á nýjan leik eftir ár í Edinborg.“ ■
Varla pláss fyrir fleiri bíla í borginni
EINAR
SKÚLASON
Er framkvæmda-
stjóri Alþjóða-
hússins og maður
með stóra fjöl-
skyldu.
Tímamót
■ Einar Skúlason er nýráðinn
framkvæmdastjóri Alþjóðahússins.
Tímamót
■ Í dag eru íbúar 1003 borga í Evrópu
hvattir til þess að skilja bílinn eftir heima.
Sigurður Helgason hjá Umferðarráði segir
það erfiðara fyrir Íslendinga að vera án
bílsins en aðra Evrópubúa.
SIGURÐUR HELGASON
Mælir með því að fólk
taki strætó í dag.
AKURNESINGAR ERU ÁNÆGÐIR
Þriðjungur þeirra sem spurðir voru um
veðurfarið í bænum voru ánægðir.
Ánægðir
með veðrið
Akurnesingar eru býsna ánægðirmeð veðurfarið í bænum að því
er fram kom í könnun sem gerð var
á vef Akranesbæjar í vikunni. Spurt
var hvernig mönnum þætti veður-
farið á Akranesi. Alls tók 221 þátt í
könnuninni og var niðurstaðan af-
gerandi. Þriðjungur þátttakenda
var mjög ánægður með veðrið í
bænum. Það er alltaf gott þegar íbú-
ar eru ánægðir og sérstaklega með
mikilvæga þætti eins og veðrið. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A