Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 56

Fréttablaðið - 22.09.2003, Síða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Sænsk martröð Í Svíþjóð virðist gömul martröðvera að endurtaka sig. Það lítur út fyrir að miklar efasemdir séu uppi um að hinn 35 ára gamli maður sem lögreglan handtók í síðustu viku og var úrskurðaður í gæsluvarðhald í viku tengist morðinu á Önnu Lindh. Rithöfundurinn Jan Guillou segir að ritstjórar og fréttastjórar um alla Svíþjóð liggi á bæn og biðji þess að DNA-rannsókn leiði í ljós að hinn handtekni maður sé í rauninni mað- urinn á myndunum úr eftirlits- myndavélunum í NK-vöruhúsinu sem allir fjölmiðlar hafa birt. NAFN MANNSINS sem situr í gæsluvarðhaldi hefur ekki ennþá verið birt í sænskum fjölmiðlum þótt allir Svíar geti lesið nafn hans í dönskum blöðum. Nafnleyndin breytir þó ekki því að sænsku blöðin hafa skrifað bæði eitt og annað um hinn handtekna mann og lífshlaup hans sem gerir honum kleift að rukka inn háar skaðabæður ef ekki tekst að sanna sekt hans. SVIPAÐ FJÖLMIÐLAFÁR varð eftir morðið á Olof Palme fyrir 17 árum þegar 33 ára gamall maður hlaut mikla umfjöllun í fjölmiðlum vegna grunsemda sem að honum beindust. Þegar hann var látinn laus úr haldi lögreglu sneri hann sér að því að innheimta stórar fúlgur hjá fjölmiðlum sem höfðu farið offari við að rifja upp heldur ógeðfelldar sögur um ævi hans. Skaðabæturnar komu honum þó ekki að miklum not- um því að eftir hina miklu fjöl- miðlaumfjöllun taldi sá maður sér ekki lengur vært í heimalandi sínu og flutti burt. VONANDI tekst sænsku lögregl- unni að upplýsa þetta skelfilega mál með þeim hætti að málsatvik verði engum vafa undirorpin. Það er eins og óupplýst glæpamál skilji eftir sig svartan blett á þjóðarsamviskunni, og lögreglurannsóknir og dómsniður- stöður sem orka tvímælis verði að martröð, eins og við Íslendingar könnumst við frá hinu svonefnda Geirfinnsmáli. Þegar stór mál koma upp standa fjölmiðlar frammi fyrir því vandasama verkefni að vera fyrstir með fréttirnar – og segja jafnframt satt og rétt frá. Og þá er hætta á því að sannleikurinn verði fórnarlamb hraðans í fréttaumferð- inni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.