Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.10.2003, Blaðsíða 15
SUNNUDAGUR 5. október 2003 Hver er maðurinn? SorpaDalvegur LagersalaSmárator g Allt a ð 90% afslá ttur Lokadagur rýmingarsölunnar SÍÐUSTU FORVÖÐ Á FRÁBÆRUM KAUPUM Í dag er opið frá 11 –18 DELLUKARL Þessi dularfulli maður er afar sérkennileg- ur í háttum en menn eru um það sam- mála að hann sé góður sögumaður. Og ekki allra. Hver er maðurinn? Sérkenni- legur sögu- maður Hann hefur djúpt innsæi íhegðun og hugsunarhátt al- þýðumannsins. Og með speglun sinni á Gunna á gaffallyftaranum kemur umræddur oft með bein- skeytta og skýra mynd af þjóð- arsálinni,“ segir Hallur Helgason leikhússtjóri um manninn sem um er spurt. „Góður sögumaður, menn leggja niður vinnu unnvörp- um, verkstjórar sem eigendur, til að hlusta.“ Og næsti viðmælandi Fréttablaðsins er á svipuðum nót- um þegar hann er beðinn að lýsa manninum: „Hann er stríðinn, ég hef rekist á það í gömlum dagbók- um mínum að mér hafi sárnaði við hann einhvern tíma á síðustu öld. Það bar ekki mikið á skemmtileg- heitum í hans fari meðan hann var í ruglinu, en um leið og hann hætti því breyttist hann í einhvern mesta og besta sögumann sem ég þekki til,“ segir dr. Gunni, sem er ekki alveg viss um að rétt sé að hann tjái sig mikið um viðkom- andi. Gunnar B. Guðmundsson leik- stjóri hefur þetta um umræddan mann að segja: „Hann er dellukarl fram í fingurgóma. Hann er ekki allra. Furðufugl og til dæmis, þeg- ar ég hafði nýlega nokkuð saman við hann að sælda, veiddi hann skordýr í plastpoka og stakk því í vasann og fór með heim. Mjög sérkennilegt fannst mér og lýsir honum vel.“ Og nú er spurt: Hver er maður- inn? Svar á blaðsíðu 19. ■ Foreldrar - Stöndum saman Leyfum ekki eftirlitslaus unglingapartý.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.