Fréttablaðið - 25.10.2003, Side 6
6 25. október 2003 LAUGARDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.09 0.11%
Sterlingspund 128.95 0.26%
Dönsk króna 12.06 -0.12%
Evra 89.59 -0.13%
Gengisvístala krónu 126,32 0,22%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 310
Velta 2.355,0 milljón
ICEX-15 1.861,65 0,54%
Mestu viðskiptin
Fjárfestingarf. Straumur 308.691.913
Sjóvá-Almennar tryggingar 307.507.259
Össur hf. 302.099.260
Íslandsbanki hf. 251.749.866
Landsbanki Íslands hf. 153.733.821
Mesta hækkun
Samherji hf. 3,45%
Íslandsbanki hf. 1,67%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 1,03%
Pharmaco hf. 0,66%
Mesta lækkun
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. -10,94%
Bakkavör Group hf. -1,89%
Opin Kerfi Group hf. -1,66%
Kögun hf. -0,38%
Marel hf. -0,37%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.545,9 -0,7%
Nsdaq* 1.856,4 -1,5%
FTSE 4.239,0 -0,0%
DAX 3.473,8 -0,7%
NK50 1.302,6 0,0%
S&P* 1.022,6 -1,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hvern yfirheyrðu starfsmenn Ríkislög-reglustjóra fyrst í rannsókn á meintu
samráði olíufélaganna?
2Hvað var merkilegt við flug breskrarConcorde þotu í gær?
3Hvað heitir nýr varaformaður Al-þýðusambands Íslands?
Svörin eru á bls. xx
DÓMUR Hæstiréttur sneri við dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur þegar
hann sýknaði Tryggingamiðstöð-
ina af kröfum Útgerðarfélagsins
Bjarma ehf. um greiðslu bóta
vegna netabátsins Bjarma VE 66
sem fórst í febrúar í fyrra.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði dæmt Tryggingamiðstöðina
til að greiða rúmlega 36,5 milljón-
ir í bætur vegna bátsins. Niður-
staða Hæstaréttar var sú að vá-
trygging hefði verið fallin niður
þegar að báturinn sökk.
Árið 1999 keypti Útgerðarfé-
lagið húftryggingu hjá Trygginga-
miðstöðinni vegna skipsins. Í
tryggingaskilmálum kvað meðal
annars á um að ef eigendaskipti
yrðu eða skipið sett undir aðra út-
gerðarstjórn félli vátryggingin
niður. Í upphafi ársins 2000 seldu
eigendur allt hlutafé útgerðarfé-
lagsins til annars félags og létu
jafnframt af trúnaðarstörfum við
félagið.
Tveir af fjögurra manna áhöfn
létust þegar að báturinn fórst um
10 sjómílur undan Þrídröngum.
Líklegast þótti að báturinn hefði
fengið á sig brot og ekki náð að
tæma sig. ■
16.000 TONN Á LAND Íslensk
skip eru búin að veiða 16.500
tonn af síld á yfirstandandi ver-
tíð samkvæmt samantekt Sam-
taka fiskvinnslustöðva. Mestu
hefur verið landað hjá Síldar-
vinnslunni Neskaupstað. Síldar-
kvótinn á fiskveiðiárinu hljóm-
ar upp á 131.000 tonn.
KOLMUNNAFLOTINN VIÐ FÆREYJ-
AR Allur íslenski kolmunnaflot-
inn er nú að veiðum í færeyskri
lögsögu, 50 mílur norðvestur af
eyjunum. Blíða er og þokkaleg
veiði á miðunum og fá skip 300
til 400 tonn eftir tólf til fimmtán
tíma tog að því er fram kemur á
vef Eskju.
MÓTMÆLA NIÐURSKURÐI Bæjar-
ráð Akraness mótmælir harðlega
áformum stjórnvalda um niður-
skurð á fjárveitingum til Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi. Bæjarráðið skorar á
menntamálaráðherra og Alþingi
að tryggja skólanum næga fjár-
muni til að standa undir eðlilegri
kennslu.
Heimakynningar
með undirföt,
náttföt og boli
fyrir konur
á öllum aldri.
Undirföt.is
undirfot@undirfot.is
S 587-9940 & 821-4244
Landsbanki Íslands:
Gengur frá
risaláni
VIÐSKIPTI Landsbanki Íslands hf.
hefur gengið frá erlendri lántöku
til fjögurra ára að fjárhæð 250
milljónir evra, sem jafngildir
rúmlega 23 milljörðum króna.
Þetta er stærsta einstaka lántaka
Landsbankans fram til þessa. Þá
er þetta lán til lengri tíma en ís-
lenskir bankar hafa áður fengið í
skráðum skuldabréfum erlendis.
Bréfin eru gefin út á alþjóðleg-
um skuldabréfamarkaði og taka
yfir 50 fjárfestar þátt í láninu.
Þeir eru einkum frá Írlandi, Bret-
landi, Ítalíu, Benelúx-löndunum
og Þýskalandi. ■
Tryggingamiðstöðin:
Sýknuð af bótakröfum
vegna Bjarma VE
HÆSTIRÉTTUR
Hæstiréttur segir vátryggingu Bjarma hafa
verið fallna niður þegar skipið fórst.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
■ Sjávarútvegur
■ Akranes
FYRSTA MYNDBANDIÐ AFHENT
Harpa Þorláksdóttir kynningarstjóri, Stefán
Karl og Erlendur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Eimskips.
Eimskip styður baráttu
Stefáns Karls:
Myndband
gegn einelti
FÉLAGSMÁL Foreldrar tíu ára barna
fá í næstu viku senda myndbands-
spólu sem hefur að geyma fyrir-
lestur Stefáns Karls Stefánssonar
leikara um uppeldismál. Þar miðl-
ar hann af persónulegri reynslu
sinni af einelti og uppeldismálum
almennt.
„Myndbandið er ætlað þeim
sem hafa áhuga að skoða uppeldis-
mál frá öðrum forsendum en
gengur og gerist,“ segir Stefán
Karl. „Ég tel það skyldu okkar
allra að miðla því sem við teljum
geta komið að gagni í samfélag-
inu.“ Eimskip styrkir þetta fram-
lag Stefáns Karls. ■
Írökum lofað fé
til uppbyggingar
Íraksráðstefnan í Madríd skilaði styrkjum og lánsloforðum upp á rúma 18
milljarða dollara. Enn vantar jafnháa uphæð vegna uppbyggingar næstu
fjögur ár. Bandaríkin lýstu vonbrigðum með afstöðu Frakka og Þjóðverja.
MADRÍD, AP Ríki heims og alþjóða-
stofnanir hafa heitið 33 milljörð-
um dollara í styrki og lán til upp-
byggingar Íraks. Þetta er niður-
staða tveggja daga ráðstefnu Al-
þjóðabankans og Sameinuðu þjóð-
anna, um uppbyggingu Íraks sem
lauk í Madríd á Spáni í gær.
Alls sóttu fulltrúar 73 ríkja, 19
alþjóðasamtaka og 300 einkafyrir-
tækja ráðstefnuna og var ætlunin
að safna þeim 55 milljörðum doll-
ara sem þarf til uppbyggingar í
Írak næstu fjögur ár.
Mouwaffek al-Rubaie, fulltrúi í
framkvæmdaráði Íraks, sagði ár-
angurinn skref í rétta átt.
„Árangur okkar hér er árangur
alls mannkyns og mikilvægur fyr-
ir frið í heiminum,“ sagði al-
Rubaie í ráðstefnulok í gær.
Bandaríkjamenn höfðu fyrir
ráðstefnuna lofað 20 milljarða
dollara aðstoð. Helmingur upp-
hæðarinnar verður lán sam-
kvæmt samþykkt öldungadeildar
Bandaríkjaþings. Japanir og
Kúveitar lofa 1,5 milljarði hvort
ríki en að auki buðust Japanir í
gær til að lána 3,5 milljarða doll-
ara á mjög hagstæðum vöxtum.
Alþjóðabankinn og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn lofa ríflega 4 millj-
örðum í lán hvor stofnun og Sádi-
Arabar og Bretar um milljarði
hvort ríki.Sameinuðu arabísku
furstadæmin, Spánn, Íran, Evr-
ópusambandið og Suður-Kórea
lofuðu aðstoð upp á 200 til 300
milljónir dollara hvert um sig.
Auk þessa lofa Sádi-Arabar að
íhuga eftirgjöf hluta 24 milljarða
dollara skulda Íraks, Barein lofar
framkvæmdum á borð við bygg-
ingu heilsugæslustöðva og svo
mætti lengi telja.
Fátækari þjóðir heims lögðu
sitt af mörkum, þeirra á meðal
Slóvakía Búlgaría, Egyptaland og
Kína. Mörgum kom hins vegar á
óvart að ríkari þjóðir, einkum ná-
grannaríkin við Persaflóa, skyldu
ekki láta meira af hendi rakna
Colin Powell, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, lýsti von-
brigðum með að hvorki Frakkar
né Þjóðverjar létu fé af hendi
rakna.
„Það eru hins vegar engin
endalok þó ekki hafi á tveggja
daga ráðstefnu, tekist að safna því
sem þarf til uppbyggingar í Írak,
næstu fjögur árin,“ sagði Powell.
the@frettabladid.is
BURT MEÐ RÆNINGJANA
Fjöldi fólks mótmælti við fundarstaðinn í Madríd, þar sem leiðtogar ríkja heims ræddu
uppbyggingu Íraks og fjármögnun hennar. Á borðum sem mótmælendur báru stóð meðal
annars „gefendur eða ræningjar?“ og „innrásarherinn burt frá Irak“.
LAPPAÐ UPP Á LEIÐSLURNAR
Þörf er á uppbyggingu allra hluta í Írak.
Símakerfi landsins er rjúkandi rústir.