Fréttablaðið - 25.10.2003, Page 46

Fréttablaðið - 25.10.2003, Page 46
46 25. október 2003 LAUGARDAGUR Eins og málin liggja fyrir núnasjáum við rekstrargrundvöll til næstu 24 mánaða,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson, sem yfirtekið hef- ur rekstur Útvarps Sögu ásamt samstarfsfólki sínu. Útvarp Saga hefur verið flutt úr höfuðstöðvum Norðurljósa við Lyngháls og sett upp á 13. hæð í Húsi verslunarinn- ar við Kringlumýrarbraut. „Ég var hér með eitt herbergi á leigu en nú höfum við tekið alla hæðina. Hér er útsýni um allt og við sjáum upp á Snæfellsnes. Hér fljúga ein- nig hrafnar,“ segir Ingvi Hrafn sem trúir að laugardagur sé til lukku og því verður allt sett í gang í dag. Venjuleg dagskrá hefst svo á mánudag. „Við leigðum og keyptum allan útsendingarbúnað. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norður- ljósa, er guðfaðir Útvarps Sögu og hefur haldið henni í loftinu til þessa. Við yfirgefum gamla stað- inn með góðri blessun hans,“ seg- ir Ingvi Hrafn og lítur björtum augum til framtíðar af 13. hæð- inni í Húsi verslunarinnar ásamt þeim Sigurður G. Tómassyni, Hallgrími Thorsteinson og Arn- þrúði Karlsdóttur. Ingvi Hrafn segist leggja upp í þetta ferðalag með jákvæðar undirtektir fyrir- tækja og stofnana sem vilja vera kjölfestustuðningsaðilar og aug- lýsendur á nýrri stöð: „Við erum ekki með neina fjárfesta með okk- ur. Útvarp Saga er bara við.“ ■ Útvarp INGVI HRAFN JÓNSSON ■ og samstarfsfólk hans á Útvarpi Sögu hefur yfirtekið reksturinn og flutt í nýtt húsnæði í Húsi verslunarinnar. Útsend- ingar hefjast á mánudaginn. Fréttiraf fólki Útvarp Saga á 13. hæð Sjáumst hress og kát Starfsfólk Tate-safnsins í Londonkvartar nú sáran undan því að þeim líði líkt og þau séu undir áhrifum fíkniefna við störf sín í tengslum við sýningu Ólafs Elías- sonar. En sólarverkið var sett upp í aðalsal safnsins fyrir nokkru og hefur það sært Íslendinga mjög að í flestum fjölmiðlum í Bretlandi er Ólafur ætíð titlaður danskur. „Verkið er mjög flippað en það er ekki ólöglegra en sykur eða vatn þótt starfsfólk eigi í erfileik- um með að starfa heila vakt í saln- um,“ sagði Vicente Todoli við fjöl- miðla í vikunni en viðurkenndi að Sólarverkið hefði einhvern of- skynjunarkraft sem hefði þau áhrif að fólki liði eins og þau væru undir áhrifum fíkniefna. Ekki hefur verið rætt um að flytja verkið eða loka sýningunni en settar hafa verið upp viðvaran- ir á safninu og fólk varað við áhrif- unum sem verkið getur haft. ■ ÓLAFUR ELÍASSON Sýning hans vekur mikla athygli ytra og starfsfólki líður eins og þau séu á lyfjum. Myndlist ÓLAFUR ELÍASSON ■ Sólarverkið í Tate safninu fær starfs- fólk og gesti til að líða eins og þau séu undir áhryfum ofskynjunarlyfa. Safnstjóri segir ekkert ólöglegt við sýningu Ólafs. Verki Ólafs líkt við fíkniefni Oft sit ég bara hérna heima álaugardagskvöldum, rölti mér svo út á bar, fæ mér bjór og hitti vini og kunningja,“ segir hljóð- maðurinn Steingrímur Eyfjörð Guðmundsson. „Ég verð að vinna á morgun þannig að það verður ekki útstáelsi á mér langt fram eftir nóttu en maður kíkir þó aðeins út á Ölstof- una í kvöld en það er staðurinn minn um þessar mundir.“ Steingrímur hefur starfað í ís- lenskum bíómyndum í ellefu ár og vinnur um þessar mundir við hljóðupptökur á kvikmyndinni Dís: „Það fylgir þessum bransa oft vinna um helgar. Það er ekki svo stór hópur fólks sem vinnur í ís- lenskum kvikmyndum og við þekkjumst öll svo vel að þetta er eins og fjölskyldan manns. Oft á tíðum er unnið úti á landi í tíma- bundinni skorpuvinnu þar sem lít- ið er um að vera í bænum. Stund- um myndast ákveðinn stemmning í hópnum og algengt er að vinnufé- lagarnir hittist og fái sér nokkra bjóra eftir vinnu.“ Margir kannast við Steingrím úr hljómsveitinni Langi Seli og Skuggarnir: „Það er að verða ansi gömul hljómsveit en við höfum verið að hittast aðeins undanfarið og stilla saman strengina. Það get- ur vel verið að við komum og spil- um eftir áramót en svo er ég í dúettnum Dívan Grimmi og við ætlum að gefa út disk á næstu mánuðum. Ég hef mikla ánægju af allri tónlist og það kemur fyrir að maður bresti í söng á barnum.“ ■ Laugardagskvöld STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ ■ Hefur unnið að hljóði í íslenskum bíómyndum í ellefu ár og kíkir oftast með vinnufélögunum á barinn á laugar- dagskvöldum Brestur í söng á barnum STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ Þarf oft að vinna á laugardagskvöldum en þegar hann á frí skreppur hann á barinn og fær sér bjór með félögunum ÚTVARP SAGA Bjartsýn í Húsi verslunarinnar. Augun Hún er ofan af Skaga og kom, sá og sigraði á ASÍ-þinginu á dögun- um. Augun lýsa ákveðinni eðlis- greind sem nýst hafa henni vel á lífsleiðinni. Hver á augun. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, nýkjörinn vara- forseti Alþýðusambands Íslands. Xinran kemur til Íslands ínæstu viku en hún er höfund- ur bókarinnar Dætur Kína, sem JPV útgáfa sendi frá sér á dögun- um. Bók hennar er í 5. sæti met- sölulista Amazon í Bretlandi en hún er vitnisburður um líf kín- verskra kvenna. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Þórólf Árnason borgarstjóra og fyrrum millistjórnanda ESSÓ. Þetta var síðasta farþegaflug þotu þessarar gerðar. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir. Móðurást Auðbrekku 2, Kópavogi Meðganga og brjóstagjöf Mikið vöruúrval 50% AFSLÁTTUR af nokkrum innréttingum úr sýningarsal. Trésmiðjan Borg, Ármúla 23, s. 588 5170 Opið laugardag 10-15 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.