Fréttablaðið - 15.11.2003, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 46
Leikhús 46
Myndlist 46
Íþróttir 42
Sjónvarp 48
LAUGARDAGUR
ÍSLANDSMEISTARAMÓT Í
KARATE Í dag er haldið Íslandsmeist-
aramót í Kumite og fer keppnin fram í
Íþróttahúsinu Austurbergi. 35 keppendur
eru skráðir til keppni á mótið, sem hefst
kl. 10.00.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
POTTÞÉTT VEÐUR Á FJÖLLUM Já,
hreint frábært veður, ekki síst í borginni.
Hægviðri og bjart víða, síst þó með norð-
urströndinni. Að vera á hálendinu í svona
veðri er hreint magnað. Sjá síðu 6
15. nóvember 2003 – 283. tölublað – 3. árgangur
ALLIR VANHÆFIR Hver og einn ein-
asti starfsmaður Landlæknisembættisins er
vanhæfur til að fjalla um málið sem rekið
er vegna andláts barns, skömmu eftir fæð-
ingu, að áliti lögfræðings á vegum embætt-
isins. Sjá síðu 2
SKATTAR OG FATLAÐIR Lægri skatt-
ar og aukin framlög til málefna fatlaðra
voru helstu áherslur í ræðu Halldórs Ás-
grímssonar, formanns Framsóknarflokks-
ins, við upphaf miðstjórnarfundar flokks-
ins í gær. Sjá síðu 2
RÉTTAÐ UM SKJÖLIN Beðið er úr-
skurðar Hæstaréttar um hvort afhenda skuli
Jóni Steinari Gunnlaugssyni skjöl sem tengj-
ast afmælisveislu Bryndísar Schram 1988.
Málsmeðferð fyrir dómstólnum fór fram í
gær. Sjá síðu 4
HÁTT LYFJAVERÐ Lyfjaverð er allt að
tvöfalt hærra hér á landi en á Norðurlönd-
um samkvæmt úttekt Tryggingastofnunar á
þeim lyfjum sem stofnunin ber mestan
kostnað af. Sjá síðu 6
LANDVERNDARDAGUR Í DAG Á sköfu sem framkvæmdastjóri Landverndar afhenti umhverfisráðherra í tilefni Landverndardags í dag
eru tíu góð ráð fyrir ökumenn, sem stuðla eiga að því að draga úr notkun eldsneytis og bæta þannig umhverfið. Keppt verður í vistakstri
í Nauthólsvík klukkan ellefu í dag. Siv sagði að nú þyrfti hún ekki lengur að nota kreditkortið til að skafa af bílnum.
Keyptu eignir
Jóns á Íslandi
Jón Ólafsson, einn umdeildasti kaupsýslumaður landsins, hefur selt
allar eigur sínar á Íslandi. Kaupendur eru Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, og Kaupþing Búnaðarbanki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Kiri Te Kanawa:
Nýsjálenska óperusöngkonan Kiri
Te Kanawa í viðtali um lífshlaup
sitt, feril sinn og óperuheiminn.
▲
SÍÐA 16
Segist vera ofsótt
Icy Spicy, eða indverska prinsessan,
hefur lengi verið á milli tannanna á
Íslendingum. Hún segist vera ofsótt.
SÍÐA 24
▲
Leoncie:
Ætlar að syngja að eilífu
BANASLYS Rúmlega sjötugur karl-
maður lét lífið í bílslysi á Reykja-
nesbraut, skammt austan við
Grindavíkurafleggjara, rétt fyrir
klukkan þrjú í gær.
Maðurinn var í kyrrstæðum bíl
sínum út í vegkanti þegar önnur
bifreið, sem ók eftir vegkantinum
til að víkja fyrir umferð, ók aftan
á hann. Við áreksturinn kastaðist
bifreið mannsins út af veginum og
endaði á hvolfi utan vegar. Öku-
mennirnir, sem voru einir í bílun-
um, voru fluttir með sjúkrabif-
reiðum á slysadeild Landspítalans
í Fossvogi.
Skömmu eftir komu á sjúkra-
húsið var maðurinn úrskurðaður
látinn. Meiðsl hins ökumannsins
eru talin minniháttar.
Annað umferðaróhapp varð á
slysstað, þegar bifreið var ekið
aftan á bíl ökumanns sem stöðvaði
vegna fyrra slyssins. Engin slys
urðu á fólki í því tilviki en önnur
bifreiðin er óökufær eftir.
Þeir sem geta gefið upplýsing-
ar um tildrög slyssins eru beðnir
um að hafa samband við lögregl-
una í Keflavík í síma 420 2400. ■
GYLFI SIGURÐSSON
Lögreglan óskar eftir vísbendingum.
Bankarán í Hafnarfirði:
Vopnaður
og dulbúinn
BANKARÁN „Hann var með hníf og
klæddur lambhúshettu með götum
fyrir augu og munn,“ segir Gylfi
Sigurðsson, varðstjóri lögreglunn-
ar í Hafnarfirði, um bankaræn-
ingjann sem framdi vopnað rán í
Sparisjóði Hafnarfjarðar við
Reykjavíkurveg rétt fyrir klukkan
hálf tíu í gærmorgun.
Gylfi segir manninn ekki hafa
ógnað neinum með hnífnum en að
starfsfólki hafi vitanlega verið
brugðið við aðstæður sem þessar.
Hann segir manninn hafa komið
gangandi inn, heimtað peninga í
poka en verið horfinn á braut
nokkrum andartökum síðar. Upp-
hæðin sem hann náði er óveruleg.
Sjá nánar á síðu 2
● ætlar að laga til á afmælinu
Snæbjörn Arngrímsson:
▲
SÍÐA 12
Ólífubóndi
á Ítalíu
● heimildarmyndin er komin út
XXX Rottweiler:
▲
SÍÐA 34
Við ruddum
brautina
● tónleikar á nasa í kvöld
Bubbi:
▲
SÍÐA 46
Aftur til
mannheima
e r m e › a l l t f y r i r j ó l i n
…með allt f
yrir jólin
Geymið Kri
nglublaðið
12 blaðsíðu
r
Nýtt kortatí
mabil
…fylgir blaðinu í dag
Umferðarslys á Reykjanesbraut:
Rúmlega sjötugur maður lét lífið
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A
Ökumenn:
Hvattir til
vistaksturs
UMHVERFIÐ Landvernd stendur
fyrir sérstökum Landverndar-
degi í dag. Af því tilefni verður
haldin keppni í vistakstri í Naut-
hólsvík þar sem fyrrum um-
hverfisráðherrar og fjölmiðla-
fólk munu taka þátt. Þá verða
sjálfboðaliðar á vegum Land-
verndar á ferðinni í Nauthóls-
vík, á Olísstöðvum og í verslun-
armiðstöðvum, sem munu kynna
starfsemi Landverndar og bjóða
fólki að gerast félagar í samtök-
unum.
Á árunum 1990 til 2002 jókst
árleg losun kolefnis vegna sam-
gangna hér á landi um 15%. Í
nýlegri spá er gert ráð fyrir að
þessi losun geti aukist um lið-
lega 20% fram til ársins 2020,
verði ekkert að gert. ■
VIÐSKIPTI Búið er að ganga frá samn-
ingi milli Jóns Ólafssonar annars
vegar og Kaupþings Búnaðarbanka
og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hins
vegar um kaup á öllum eigum Jóns
Ólafssonar á Íslandi. Búið er að
skrifa undir rammasamning en unn-
ið er að endanlegri útfærslu. Í fram-
haldinu munu fyrirtæki í eigu Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar kaupa hluta
eignanna, aðallega fasteignir og lóð-
ir. Inni í þessum kaupum Jóns Ás-
geirs og Kaupþings Búnaðarbanka
er ríflega 62% hlutur Jóns í Norður-
ljósum. Á hluthafafundi í Norður-
ljósum var hlutafé fært niður um
80% og er nú 300 milljónir króna.
Samþykkt var heimild til hækkunar
hlutafjár um allt að tvo milljarða.
Eftir helgina mun ný stjórn
taka við félaginu. Í framhaldinu
verður settur saman hópur nýrra
eigenda. Nokkrir hópar hafa verið
nefndir til sögunnar. Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs, og
hópur í kringum hann munu ásamt
Kaupþingi Búnaðarbanka verða
stórir hluthafar í Norðurljósum.
Þessir aðilar munu ráða því hverj-
ir aðrir koma að félaginu. Fleiri
hafa verið nefndir til sögunnar.
Kaupþing Búnaðarbanki ræddi við
Finn Ingólfsson, forstjóra VÍS, um
að taka þátt í hlutafjáraukningu
ásamt tengdum aðilum. Einnig
hefur hópur tengdur Kára Stefáns-
syni, forstjóra Íslenskrar erfða-
greiningar, verið í umræðunni.
Ekki hafa verið teknar neinar
ákvarðanir um hvort eða í hve
miklum mæli þessir aðilar koma
að endurfjármögnun fyrirtækis-
ins, né heldur hvort aðrir bætist í
hópinn. Margir hafa sýnt áhuga á
að koma að félaginu eftir að ljóst
var að Jón Ólafsson væri á förum
úr hópi eigenda.
haflidi@frettabladid.is