Fréttablaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2004 27 kl. 5.20, 8 og 10.40 B i 14 áraMASTER & CO... 5.30, 8 og10.30MONA LISA SMILE SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 SÝND kl. 5.30, 8 og10.30 SÝND kl. 5 og 9 SÍMI 553 2075 SÝND kl. 5.40, 8 og 10.20 B i 14 ára SÝND kl. 6, 8 og 10 SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40SÝND kl. 6, 8 og 10 B i 14 ára SÝND kl. 6 M/ENSKU TALI Franska hátíðin vel sótt Ástralski leikarinn RussellCrowe, sem er um þessar mundir að leika í Cinderella Man, mynd um boxarann Jim Braddock og líf hans, verður frá tökum næstu fjórar til sex vik- urnar. Crowe fór úr axlarlið á hnefaleikaæf- ingum fyrir myndina og þarf því að und- irgangast að- gerð. Síðan bíð- ur hans endur- hæfing áður en hann getur byrjað að boxa aftur fyrir fram- an tökuvélarnar. Þetta er ekki í fyrsta skiptiðsem Crowe lendir í svona meiðslum en þegar verið var að taka upp myndina Plora Plum, með Jodie Foster, lenti hann einnig á sjúkrahúsi, en þá var það hin öxlin sem gaf sig. Grazel Friday, framleiðandi myndarinn- ar, segist vera ánægður með Crowe og hrósaði honum fyrir hversu góður hann væri í að nota hug, anda og kroppinn sinn. Myndin fjallar um sigur Jims Braddock á heimsmeistaranum Max Baer árið 1935. Renée Zellweger leikur eiginkonu Braddocks. Breska leikkonan KeiraKnightley, sem gerði það gott í myndunum Pirates of the Car- ibbean og Love Actually, og ósk- arsverðlaunahafinn Adrien Brody úr The Pianist virðast vera kolfallin hvort fyrir öðru. Þau leika elskendur í myndinni The Jacket, sem verið er að taka í Skotlandi, og eyða nær öllum frí- stundum sínum saman. Það hefur sést til þeirra úti á lífinu og á White Stripes-tónleikum. Kunnug- ir segja að þau séu orðin mjög náin en þau voru bæði á lausu þegar vinna við myndina hófst. Knightley var nýhætt með fyrir- sætunni Jamie Dornan en Brody átti áður vingott við leikkonuna og módelið Monet Mazur og var einnig orðaður við Nicole Kidman. Mótleikari Keiru Knightley úrPirates of the Caribbean mun að öllum líkindum biðja unn- ustu sinnar, Kate Bosworth, í næstu viku. Það hefur spurst út að hann ætli að fara nið- ur á hnén á Empire- verðlauna- afhending- unni í London en talið er víst að þar muni hann hreppa verðlaunin sem besti breski leik- arinn fyrir frammistöðu sína sem Legolas í The Return of the King. Bloom hefur ekki viljað tjá sig mikið um samband sitt og Bosworth en þeir sem til þekkja segja að það fari ekkert á milli mála að Bloom sé ástfanginn upp fyrir haus. Gunnlaugur Lárusson er þunga-rokkari í Brain Police, en Þor- geir Óðinsson er kennari. Báðir sitja þeir löngum stundum heima hjá sér yfir græjum að búa til mjúka og þýða raftónlist. „Þegar maður er búinn að vera að æfa allan daginn, búinn að fá út- rás fyrir rokkið, þá er fínt að leggj- ast í einhverjar mjúkar elektrópæl- ingar,“ segir Gunnlaugur, sem spil- ar á gítar með helstu þungarokk- sveit landsins en nefnir sig Comm- ander þegar hann er í raftónlistar- ham. Þorgeir, sem nefnir sig Frank Murder, hefur svipaða sögu að segja: „Þegar maður er búinn að teikna með krökkum allan daginn, þá nennir maður ekkert að teikna þegar maður kemur heim. Þá fer maður bara að búa til tónlist í stað- inn.“ Þeir félagar eru nýbúnir að fá í hendurnar breskan safndisk, sem þeir báðir eiga verk á. Tveir aðrir Íslendingar, Skurken og Chico Rockstar, eiga einnig efni á þessari plötu, sem fáanlegur er í verslun- inni 12 tónum á Skólavörðustíg. Útgefendurnir eru tveir Bretar, Tim Martin og Steve Davis, sem byrjuðu á að gefa út smádisk með eigin verkum en sneru sér síðan að þessum disk í samvinnu við Íslend- ingana. „Ég komst í samband við þá á Netinu og leyfði þeim að heyra tónlist eftir mig og strákana. Þeir urðu svo hrifnir af þessum ís- lenska hljómi að þá langaði til að gefa út þessa plötu þar sem bland- að væri saman íslensku efni og er- lendu. Ég sendi þeim efni eftir okkur, og síðan vinsuðu þeir úr það sem þeir vildu nota,“ segir Gunnlaugur. Þeir Gunnlaugur og Þorgeir hafa verið að fikta við raftónlist frá ung- lingsaldri, en af fullri alvöru í svona sex ár. Raftónlistargeirinn er svolít- ið sérstakur og engan veginn sjálf- sagt að flytja slíka tónlist á tónleik- um. „Það væri hálfundarlegt að spila þetta „live“. Allt sem ég geri er gert í einu forriti þannig að maður þyrfti að útsetja þetta upp á nýtt fyrir tón- leika, búa til einhvern part fyrir hljóðfæri eða eitthvað.“ ■ Við erum auðvitað í skýjunumyfir velgegni frönsku kvik- myndahátíðarinnar í Háskóla- bíó,“ segir Christof Wehmeier hjá Sambíóunum. „Það hafa þeg- ar um 5.000 manns heimsótt há- tíðina og bara um síðustu helgi komu 2.100 manns á Heim far- fuglanna, sem er auðvitað ein- stakt, en það hefur verið uppselt á allar sýningar myndarinnar.“ Bresku kvikmyndadagarnir í Háskólabíói gengu vonum framar í fyrra en 12.000 manns sáu myndirn- ar sem þá voru í boði. Christof úti- lokar ekki að franska hátíðin muni ganga jafnvel, ef ekki betur. „Svei mér þá ef við náum ekki álíka mörg- um á frönsku kvikmyndahátíðina, en auk Farfuglanna er fólk mjög spennt fyrir Óvininum og Evrópu- grautnum.“ Christof efast ekki um að góð og mikil umfjöllun fjölmiðla um hátíðina og myndirnar hafi sitt að segja en bætir því við að myndirnar selji sig að mestu leyti sjálfar, enda úrvalið gott. Frönsku kvikmyndahátíðinni lýkur þann 12. febrúar. ■ FARFUGLARNIR Draga fólk í röðum í bíó en 2.100 manns sáu frönsku heimildarmyndina Heim farfugl- anna um helgina. ■ KVIKMYNDIR Rafmögnuð hjávinna ■ TÓNLIST KENNARINN OG ÞUNGAROKKARINN Þorgeir og Gunnlaugur eiga ásamt tveimur öðrum íslensk- um raftónlistarmönnum efni á breskri safnplötu sem nú er komin til landsins. Angelina Jolie hefur látið ColinFarrell róa og er komin aftur í arma fyrsta eiginmanns síns, breska leikarans Jonny Lee Mill- er. Tomb Raider-stjarnan og Mill- er spókuðu sig í Los Angeles á dögunum og létu vel hvort að öðru á tattústofu þar í bæ. Jolie og Mill- er kynntust við gert kvikmyndar- innar Hackers árið 1994, giftu sig en skildu árið 1999. Þau héldu alltaf góðu sambandi og eyddu tíma saman þegar slitnaði upp úr hjónabandi Angelinu og Billy Bob Thornton. Angelina leikur móður Alexand- ers mikla í væntanlegri mynd um hetjuna en Farrell leikur Alex- ander og þau voru býsna náin á meðan á tökum stóð, en það er allt búið núna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Fréttiraf fólki Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.