Fréttablaðið - 03.02.2004, Blaðsíða 24
24 3. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
EVGENI PLUSJENKO
Rússneski heimsmeistarinn Evgeni Plusj-
enko í keppni á Evrópumótinu í listdansi á
skautum sem fram fer í Búdapest.
Skautar
hvað?hvar?hvenær?
31 1 2 3 4 5 6
FEBRÚAR
Þriðjudagur
Bandaríska mótaröðin:
Kaye sigraði í Phoenix
GOLF „Tilfinningin er örlítið betri
en eftir fyrsta sigurinn,“ sagði
Bandaríkjamaðurinn Jonathan
Kaye, sem sigraði á TPC-mótinu í
Scottsdale í Arizona á sunnudag.
Kaye sigraði í annað sinn á PGA-
móti en hann sigraði einnig á
Buick Classic-mótinu í fyrra eftir
bráðabana við John Rollins.
Kaye var í þriðja sæti eftir
fyrsta hringin á fimmtudag ásamt
Mike Weir, einu höggi á eftir Phil
Mickelson og tveimur á eftir Scott
Verplank. Phil Mickelson náði for-
ystunni á öðrum degi en Jonathan
Kaye og Chris DiMarco voru jafn-
ir eftir þriðja daginn, höggi á und-
an Mickelson í þriðja sætinu.
Síðasti dagurinn gekk eftir
óskum Kaye. Chris DiMarco fékk
skolla á 16. og 17. holunni og Phil
Mickelson á síðustu þremur hol-
unum og endaði í sjöunda sæti.
Chris DiMarco var sá eini sem
gat náð Kaye á 18. holunni. „Ég
hafði áhyggjur af því að Chris
myndi setja púttið niður og ég
myndi þrípútta. En ég var mjög
einbeittur og reyndi að hugsa
ekki um annað. En þetta var góð
tilfinning, mikil gæsahúð,“ sagði
Kaye, sem fékk 936.000 dollara í
verðlaun fyrir sigurinn.
Fídjíbúinn Vijay Singh varð í
þriðja sæti ásamt Steve Flesch en
Singh hefur verið meðal tíu efstu
á ellefu PGA-mótum í röð. „Það er
ágætt að vera meðal tíu efstu en
það er líka ágætt að sigra,“ sagði
Singh. Enginn hefur unnið jafn
mörg mót í röð meðal tíu efstu síð-
an Ástralinn Greg Norman afrek-
aði það í lok tímabilsins 1993 og
upphafi þess næsta. ■
Annasamur lokadagur
Tottenham keypti Jermaine Defoe frá West Ham en Paul Robinson vildi ekki yfirgefa Leeds.
FÓTBOLTI Frestur til félagaskipta á
Englandi rann út síðdegis í gær.
Félagaskiptaglugginn svokallaði
átti að vera opinn í janúar en þar
sem síðasta dag janúar bar upp á
laugardag var félögunum gefinn
einn dagur til viðbótar. Frestur til
að skrá nýja leikmenn hjá UEFA
vegna Evrópukeppna rann út í
gærmorgun.
Mestu tíðindi gærdagsins eru
líklega kaup Tottenham Hotspur á
Jermaine Defoe frá West Ham en
hann hefur að undanförnu verið
orðaður við Arsenal og Manchest-
er United. Kaupin eru metin á sjö
milljónir punda en West Ham fær
einnig Bobby Zamora frá Totten-
ham en Spurs keypti hann frá
Brighton í fyrrasumar fyrir 1,5
milljónir punda. West Ham hefur
einnig fengið miðjumanninn
Sebastien Carole að láni frá
Monaco til loka leiktíðarinnar.
Tottenham gekk hins vegar
ekki eins vel í viðleitni sinni í að
kaupa Paul Robinson, markvörð
Leeds. Félögin náðu samkomulagi
um verð en þegar á reyndi vildi
Robinson ekki yfirgefa Leeds.
„Paul hlakkar til að leika áfram
hjá félaginu og taka þátt í barátt-
unni fyrir sæti í úrvalsdeildinni,“
sagði Trevor Birch, stjórnarfor-
maður Leeds.
Leeds fékk varnarmanninn
Stephen Calderwell frá Newcastle
og hyggst reyna að fá reyndan
markvörð að láni fyrir lokasprett-
inn í úrvalsdeildinni því vara-
markvörðurinn Scott Carson hef-
ur aðeins leikið einn leik með
aðalliðinu.
Lomana Tresor Lua-Lua yfir-
gaf Newcastle í gær og valdi
Portsmouth fram yfir Leeds.
Portsmouth fékk einnig John
Curtis, varnarmann Leicester, án
endurgjalds. Portsmouth bauð
Newcastle 1,5 milljónir punda
fyrir Lua-Lua en félögin komu sér
saman um lánssamning. „Vinur
minn Freddy Shepherd, stjórnar-
formaður Newcastle, sagði mér
að við fengjum ekki einu sinni
vinstri fót Lua-Lua fyrir þessa
upphæð,“ sagði Milan Mandaric,
stjórnarformaður Portsmouth.
„Jæja, núna erum við búnir að fá
báðar lappirnar og restina af hon-
um líka. Við greiddum 100.000
pund í leigugjald og höfum hann
til loka leiktíðar. Við munum
halda áfram að ræða við
Newcastle um að fá hann til lengri
tíma.“ Lua-Lua hefur að undan-
förnu leikið með Kongó í Afríku-
keppninni.
Leicester keypti sóknarmann-
inn Lee Morris frá Derby og
Newcastle fékk Michael Bridges
að láni frá Leeds, sem keypti hann
á fimm milljónir punda frá Sund-
erland árið 1999.
Middlesbrough gekk í gær frá
lánssamningi við Brasilíumann-
inn Ricardinho, sem leikur með
Sao Paulo. Ricardinho var í brasil-
íska hópnum sem sigraði á HM
árið 2002 og hefur verið orðaður
við evrópsk félög allar götur síð-
an. Middlesbrough tókst hins veg-
ar ekki að fá Emile Heskey frá
Liverpool eða Mark Viduka frá
Leeds. Tilboði Middlesbrough upp
á milljónir punda í Viduka var
hafnað. „Hann er einn þeirra leik-
manna sem ég hef viljað fá frá því
ég kom hingað,“ sagði Steve
McClaren, framkvæmdastjóri
Middlesbrough. „En eins og stað-
an er hjá Leeds er erfitt að aðhaf-
ast nokkur svo við verðum að bíða
og sjá.“ Middlesbrough tókst
heldur ekki kaupa Danny Mills
frá Leeds en hann hefur verið á
lánssamningi hjá félaginu frá því
í haust.
Birmingham keypti Martin
Taylor frá Blackburn á 1,25 millj-
ónir punda. „Ég er himinlifandi
með að fá Taylor en það hefði ver-
ið fínt að fá Nicky Butt líka,“
sagði Steve Bruce, framkvæmda-
stjóri Birmingham. Félagið hefur
einnig sagt upp samningnum við
Bandaríkjamanninn Jovan
Kirovski, sem fer líklega til Los
Angeles Galaxy í heimalandi sínu.
Kirovski lék lengi með Borussia
Dortmund og varð Evrópumeist-
ari með félaginu árið 1998.
Blackburn keypti Jonathan
Stead, markahæsta mann 3. deild-
ar, frá Huddersfield. Talið er að
Blackburn hafi greitt rúmlega
milljón pund fyrir leikmanninn.
Bolton fékk varnarmanninn
John Otsemobor að láni frá Liver-
pool út leiktíðina. „Hann er mjög
hreyfanlegur leikmaður og vill
gjarnan sækja fram völlinn úr
bakvarðarstöðunni,“ sagði Sam
Allardyce, framkvæmdastjóri
Bolton. „Hann er fljótur og skilar
boltanum vel frá sér. Við þurfum
að styrkja vörnina og Jon eykur
samkeppni um stöður þar.“
Charlton fékk miðjumanninn
Jerome Thomas frá Arsenal á
100.000 pund. „Charlton var ekki
eini möguleiki minn en mig lang-
aði að fara þangað,“ sagði Thom-
as. „Jerome getur leikið í ýmsum
stöðum, á báðum köntum og í
sókninni, og nú hefur hann tæki-
færi til að sýna okkur hvað hann
getur,“ sagði Alan Curbishley,
framkvæmdastjóri Charlton. ■
Sóknarlína ÍBV ekki árenni-
leg í kvennaboltanum:
Tvær sterkar
til ÍBV
KNATTSPYRNA Tvær sterkar knatt-
spyrnukonur gengu til liðs við
kvennalið ÍBV um helgina. Það
eru þær Bryndís Jóhannesdóttir
og Elín Anna
Steinarsdóttir,
sem báðar skrif-
uðu undir
tveggja ára
samning við
ÍBV. Báðar eru
þær stöllur ung-
ar að árum, en
Elín Anna verð-
ur 21 árs á
þessu ári og
Bryndís 23 ára.
Þetta eru því
framtíðarmenn
fyrir ÍBV-liðið,
sem er greini-
lega tilbúið í
slaginn um titlana í sumar. ÍBV
þurfti að sætta sig við silfurverð-
laun í deild og bikar á síðasta
sumri, sem er besti árangur fé-
lagsins frá upphafi, en nú er
stefnan sett á að gera enn betur.
Bryndís skoraði 21 mark í 11
leikjum með ÍR í 1. deild kvenna
síðasta sumar en er uppalin í Eyj-
um en Elín Anna kemur úr Breiða-
bliki þar sem hún skoraði 12 mörk
í 14 leikjum í fyrra. ÍBV verður
fjórða liðið á fjórum árum sem
Elín Anna spilar með en hún hefur
skorað 28 mörk í 61 leik í efstu
deild fyrir ÍA, Val og Breiðablik.
Sóknarlína ÍBV er ekki árennileg
en fyrir eru þær Olga Færseth og
Margrét Lára Viðarsdóttir, sem
skoruðu 37 mörk saman á síðasta
tímabili. ■
15.05 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Stöð 2.
18.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
19.00 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
19.30 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
20.30 Knattspyrnusagan á Sýn. Í
þessum þætti er m.a. fjallað um
breska brautryðjendur, ósigrandi
Ítali á fjórða áratugnum og frá-
bært lið Ungverja á sjötta ára-
tugnum.
21.30 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu
skíðamanna á heimsbikarmótum.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
22.30 Supercross (Qualcomm
Stadium) á Sýn. Nýjustu fréttir frá
heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
23.30 Trans World Sport (Íþróttir
um allan heim) á Sýn.
JONATHAN KAYE
Sigraði á TPC-mótinu í
Scottsdale í Arizona.
LOMANA TRESOR LUA-LUA
Lua-Lua, lengst til hægri á myndinni, í leik með Kongó í Afríkukeppninni.
PAUL ROBINSON
Markvörðurinn vildi ekki
yfirgefa Leeds.
ELÍN ANNA
STEINARSDÓTTIR
ÍBV verður fjórða
liðið á fjórum árum
sem Elín Anna spilar
með en hún hefur
skorað 28 mörk í 61
leik í efstu deild fyrir
ÍA, Val og Breiðablik.