Fréttablaðið - 03.02.2004, Qupperneq 18
Það eru miklar ranghugmyndiruppi um harðsperrur,“ segir
Stefán Björn Sigurðsson, prófess-
or við læknadeild Háskóla Ís-
lands. „Til dæmis að þær séu af
hinu góða og sýni að fólk hafi tek-
ið nógu vel á. En harðsperrur eru
skemmdir; smáslit í bandvef eða
slit og tognun í himnum utan á og
inni í vöðvum. Verulegar harð-
sperrur geta svo stafað af sliti í
frumum og háræðum, jafnvel
smáblæðingum, þannig að þær
eru merki um að reynt hafi verið
meira á vöðva en hann þoldi.
Gamla kenningin er sú að harð-
sperrur stafi af mjólkursýru.
Mjólkursýra myndast við mikil
átök og ef vöðvinn verður mjög
súr verða vefirnir viðkvæmari.
Þá er meiri hætta á skemmdum.
Mjólkursýran hverfur hins vegar
á tuttugu mínútum. Harðsperr-
urnar koma ekki fyrr en daginn
eftir. Þær stafa þá af því að
vöðvinn er í viðgerð og niður-
brotsefnin safnast fyrir. Þá geta
myndast bólgur í vöðvanum og
fólk fær mikla verki.“
Flestir vilja eflaust hreyfa sig
sem minnst þar til harðsperrurn-
ar líða hjá, en besta ráðið til að
losna fljótt við harðsperrurnar er
létt hreyfing, heitir pottar eða
nudd. Allt þetta eykur blóðflæði í
vöðvanum. „Það þarf að bregðast
við með því að liðka til fyrir við-
gerðinni. Því meira blóð sem
streymir um vöðvann, því betra.
Þá koma ný efni til viðgerðar og
gömlu niðurbrotsefnin eru flutt í
burtu. Vöðvinn er hins vegar við-
kvæmur. Því þarf að forðast mikil
átök.“
Stefán Björn segir að við lík-
amsþjálfun sé æskilegast að taka
það mikið á að vöðvarnir séu rétt
við að fá harðsperrur. „En ef þú
þekkir ekki líkama þinn veistu
ekki hvar mörkin liggja. Margir
byrja því of geyst. Taka of mikið
á, fá miklar harðsperrur, gefast
upp og hætta.“
Stefán Björn segir dæmi um að
fólk hafi skemmt vöðvafrumur
varanlega. „En þá erum við að tala
um gífurlega mikil átök og líkam-
inn er með ákveðið varnarkerfi í
vöðvunum sem kemur yfirleitt í
veg fyrir að þú valdir verulegum
skemmdum. Ef átakið fer yfir
ákveðin mörk er vöðvanum ekki
leyft að taka meira á. En við lífs-
hættulegar aðstæður slekkur lík-
aminn stundum á þessu varnar-
kerfi. Þá fær fólk líka virkilega
slæmar harðsperrur. Til eru
fjöldamargar sögur um slíka ofur-
krafta í lífsháska. Strákarnir sem
lentu í sjóslysinu í Grindavík um
daginn eru dæmi um þetta. Þeir
voru allir lurkum lamdir og stífir
á eftir, en þeir tóku svona mikið á,
við slæmar aðstæður.“ ■
heilsa o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um hei lbr igðan l í fsst í l
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heilsa@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
LÍFRÆNN BAKSTUR
Brauðhúsið Grímsbæ- Efstalandi 26 - Sími 568 6530
Súrdeigsbrauð
Speltbrauð, margar tegundir úr mjöli frá Aurion
Ávaxtabrauð með lífrænt ræktuðum
rúsínum, gráfíkjum og apríkósum
Mikið úrval brauða úr lífrænt rækuðu hráefni!
❂
❂
❂
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi og verkjastillandi lyf. Lyfið er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig má nota það sem
verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir t.d. tanndrátt. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða er með skerta lifrarstarfsemi má ekki nota lyfið. Fólk sem hefur fengið astma,
nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja (annarra en barkstera) ætti ekki að nota lyfið. Nota skal lyfið með varúð hjá fólki með
tilhneigingu til magasárs eða sögu um slík sár. Lyfið er ekki ætlað vanfærum konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið aukaverkunum eins og t.d. ofnæmi (útbrot) og meltingaróþægindum.
Skömmtun: Nákvæmar leiðbeiningar um skömmtun fylgja lyfinu. Ekki má taka stærri skammta en mælt er með. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. 01.09.01.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Öflugur
bakhjarl!
50-60 börn yngri en fjögurraára deyja ár hvert í Noregi af
óþekktum eða óvæntum orsök-
um. Í nýrri rannsókn sem gerð
hefur verið þar í landi á 47
dauðsföllum barna kemur fram
að tæpur helmingur þeirra dó
vöggudauða.
Markmiðið með rannsókninni
var meðal annars að finna
áhættuþætti í tengslum við
vöggudauða og afhjúpa illa með-
ferð á börnum. Greint er frá
þessu á vef norska dagblaðsins
Aftenposten.
Niðurstöðurnar sýna að tólf
barnanna dóu vöggudauða, þann-
ig að engar skýringar fundust á
láti barnanna kringumstæðum
eða við krufningu. Tólf barnanna
greindust með væga sýkingu í
öndunarfærum, sem skýrir ekki
dauðsfallið, þannig að tilfellið er
á mörkum þess að vera vöggu-
dauði.
Tólf barnanna létust af völd-
um sjúkdóma, átta af slysförum,
tvö vegna lélegrar umönnunar
og eitt vegna slæmrar meðferð-
ar foreldranna.
Að sögn Torleivs Ole Rognum,
prófessors í réttarlæknisfræði
við háskólann í Osló, finnst orsök
um helmings skyndilegra dauðs-
falla barna við rannsókn á heim-
ilinu eða í krufningu. Þar með er
vöggudauði úr myndinni. „23% af
dauðsföllum skýrðust þegar við
heimsóttum heimili barnanna,“
segir Rognum. Í nokkrum tilfell-
um kom í ljós að ill umhirða for-
eldra skýrði dauða barnsins. Ill
meðferð kemur ekki alltaf í ljós í
krufningu.
Á meðan á rannsókninni stóð
var öllum foreldrum sem misst
höfðu barnið sitt óvænt fengið til-
boð um að um að taka þátt í rann-
sókninni. Að sögn Rognums er
mjög mikilvægt fyrir foreldra að
fá skýringar á dauðsföllum barna
sinna. Eftir 1. apríl hefst vinna
við að safna saman upplýsingum
til að reyna að finna nýja og áður
óþekkta áhættuþætti fyrir
vöggudauða. ■
Óvænt dauðsföll barna:
Helmingur vöggudauði
Harðsperrur:
Létt hreyfing besta meðalið
AUGA
Augnsjúkdómar geta valdið svefntruflun-
um.
Augnsjúkdómar:
Valda svefn-
truflunum
Sumir augnsjúkdómar getavaldið alvarlegum svefntrufl-
unum. Þetta kemur fram í rann-
sókn vísindamanna við Wash-
ington-læknaháskólann á Banda-
ríkjunum.
Fólk með skemmda augntaug,
sem tengir augun við heilann, get-
ur átt í vandræðum með svefn.
Það getur átt erfitt með að sofna,
ef það nær að sofna yfirleitt, og
vaknar oft á nóttunni. Að því er
kom fram í rannsókninni er þörf á
að veita þessu fólki sérstaka að-
hlynningu í framtíðinni. ■
STEFÁN BJÖRN SIGURÐSSON
Harðsperrur eru skemmdir í vöðvum. Besta leiðin til að losna við þær er að auka blóð-
flæði til vöðvanna.
HARÐSPERRUR ERU EKKI
AF HINU GÓÐA
Þær eru merki um að fólk hafi tekið of
mikið á og best er að reyna að komast hjá
þeim.
VIÐ LÍFSHÆTTULEGAR
AÐSTÆÐUR GETUR SLÖKKNAÐ Á
VARNARKERFINU
Þá öðlast fólk ofurkrafta, bjargar jafnvel lífi
sínu og annarra, en skaðar vöðvana veru-
lega. Þetta er bakgrunnurinn fyrir ævintýr-
inu um Hulk. Hann slekkur á þessu kerfi
og þess vegna verður hann svona sterkur.
En til að gera þetta ævintýralegra er sýnt
eins og vöðvarnir á honum stækki og
hann verður grænn,“ segir Stefán Björn.
Pilates í Hreyfingu:
Styrkur
án massa
Í Hreyfingu í Faxafeni eru nú aðhefjast námskeið í svonefndu
Pilates sem hefur slegið í gegn á
Vesturlöndum undanfarin misseri. Í
Pilates-æfingum er tekið vel á en
æfingarnar eru um leið öruggar.
Þær byggja meðal annars upp styrk
án massa, auka liðleika, veita djúp-
vöðvaþjálfun og þjálfa flata kvið-
vöðva. Pilates er sagt vera endur-
nærandi æfingakerfi fyrir sál og
líkama. Hópnámskeið í Pilates
verða mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 16.15 og 19.30 og
mánudaga og miðvikudaga kl 20.30
og laugardaga kl 10. Skráning er
einnig hafin í einkatíma í Pilates. ■
ÁBENDINGAR UM NEYSLU Á HVALRENGI Umhverfis-
stofnun ráðleggur barnshafandi konum og konum með
börn á brjósti að sneiða hjá neyslu á hvalrengi. Þar sem
hvalir eru stórar og langlífar skepnur safnast þrávirk
lífræn efni í fituvef þeirra á löngu æviskeiði. Magn þrá-
virkra efna í því hvalrengi sem er á íslenskum markaði
er undir þeim hámarksgildum sem leyfileg eru (í þessu
tilviki er átt við PCB-efni og díoxín). Engu að síður vill
Umhverfisstofnum benda barnshafandi konum og kon-
um með börn á brjósti á að viðhafa þá varúðarráðstöfun
að sneiða hjá neyslu á hvalrengi.
www.ust.is
■ Utan úr heimi
ÞJÓÐVERJAR DREKKA MINNA Þýsk
brugghús seldu í fyrra 105,5 millj-
ónir lítra af bjór, sem er samdrátt-
ur um 2,1% frá 2002. Í Þýskalandi
dróst salan saman um 3,4% milli
ára. Á móti jókst útflutningur á
bjór. Bjórsala í Þýskalandi hefur
stöðugt dregist saman frá 1994.