Fréttablaðið - 23.02.2004, Side 10
23. febrúar 2004 MÁNUDAGUR
Arnold Schwarzenegger um giftingar samkynhneigðra:
Vill að lögum verði fylgt
AP, KALIFORNÍA Ríkisstjóri Kali-
forníu, Arnold Schwarze-
negger, hefur fyrirskipað borg-
aryfirvöldum í San Francisco
að virða lögin og stöðva útgáfu
giftingarvottorða til fólks af
sama kyni.
„Það er kominn tími fyrir
borgaryfirvöld að þau hætti að
feta þennan hættulega veg að
hunsa lögin,“ sagði Schwarze-
negger á ráðstefnu repúblíkana
á föstudagskvöldið. „Það eru
skilaboð mín til San Francisco.“
Borgarstjóri San Francisco,
demókratinn Gavin Newsom,
ákvað í síðustu viku að veita
samkynhneigðum pörum gift-
ingarvottorð. Það er í fyrsta
skipti sem borgaryfirvöld í
Bandaríkjunum staðfesta gift-
ingu homma og lesbía.
Talsmenn Newsoms segja að
borgarstjóranum finnist tilskip-
un Schwarzeneggers spaugileg.
„Sannleikurinn er sá að þúsundir
manna hér eru í alvarlegum sam-
böndum sem eru viðurkennd nú í
fyrsta skiptið,“ sagði talsmaður-
inn. „Við hvetjum ríkisstjórann
til þess að hitta nokkur paranna
til þess að hann átti sig á því að
það sem er hér á seyði er bæði
lögmætt og kærleiksríkt.“ ■
SAN FRANCISCO Borgaryfirvöld í
San Francisco hafa farið í mál
við Kaliforníuríki á þeim for-
sendum að lög sem banna gift-
ingar samkynhneigðra brjóti í
bága við stjórnarskrá Banda-
ríkjanna. Á fjórða þúsund sam-
kynhneigð pör hafa verið gefin
saman í San Francisco síðan
borgarstjórinn Gavin Newsom
ákvað að heimila slíkar hjóna-
vígslur fyrir rúmri viku.
Borgaryfirvöld vilja að dóm-
stólar skeri úr um hvort lög sem
skilgreina hjónaband sem ein-
ingu karlmanns og konu sam-
ræmist jafnréttisákvæðum
stjórnarskrárinnar. Newsom
segist ekki iðrast gjörða sinna
en fagnar því þó að málið skuli
vera komið í hendur dómara.
Samtök sem leggjast gegn
giftingum samkynhneigðra
hafa einnig leitað til dómstóla
til að fá sínu framgengt. Tals-
menn samtakanna halda því
fram að tilgangurinn með máls-
höfðun borgaryfirvalda sé að
tefja málið.
Framtak borgaryfirvalda í
San Francisco hefur mælst mis-
vel fyrir. Arnold Schwarze-
negger, ríkisstjóri í Kaliforníu,
segir að þau hjúskaparvottorð
sem gefin hafi verið út til para
af sama kyni hafi ekkert laga-
legt gildi.
Enn hefur enginn fetað í fót-
spor Newsoms en borgarstjórar
í Chicago, Salt Lake City og víð-
ar hafa sýnt honum stuðning.
Richard Daley, borgarstjóri
Chicago, segist ekki hafa neitt á
móti því að gefin séu út hjúskap-
arvottorð fyrir pör af sama kyni.
„Þau elska hvort annað alveg
jafnmikið og hver annar,“ segir
Daley.
Margir stjórnmálamenn,
jafnvel frjálslyndir demókratar,
hafa gagnrýnt borgaryfirvöld í
San Francisco harðlega. Sam-
kynhneigður þingmaður repú-
blikana í Massachusetts segir að
framtak Newsoms geti orðið til
þess að grafa undan baráttunni
fyrir auknum rétti samkyn-
hneigðra þegar til lengri tíma sé
litið og orðið vatn á myllu þeirra
sem vilja banna giftingar
homma og lesbía með stjórnar-
skrárbreytingu.
Samtök sem berjast fyrir
réttindum samkynhneigðra hafa
biðlað til Mary Cheney, lesbískr-
ar dóttur Dicks Cheney, varafor-
seta Bandaríkjanna, um að ljá
málstað þeirra lið og fordæma
áform stjórnvalda um að banna
giftingar samkynhneigðra með
stjórnarskrárbreytingu. Yfir
3.000 manns hafa sent áskorun
til Cheney á heimasíðu sem til-
einkuð er henni. Faðirinn, Dick
Cheney, hefur lýst því yfir að ef
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ákveði að styðja slíka stjórn-
arskrárbreytingu muni hann
gera slíkt hið sama. ■
Ma
llorc
a
34.142 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
41.730 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Pil Lari Playa,
10.000 kr. bókunarafsláttur og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Po
rtúg
al
38.270 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
46.855 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug gisting í 7 nætur á Sol Dorio, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Krít
48.230 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
59.020 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Skala, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Co
sta
del Sol
53.942 kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
67.830 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 14 nætur á St. Clara, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Be
nid
orm
35.942 kr.
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
44.430 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Halley, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
SCHWARZENEGGER
Borgarstjóri San Francisco leyfði nýverið
giftingu samkynhneigðra. Schwarzenegger,
ríkisstjóri Kaliforníu, hefur skipað honum
að draga leyfið til baka.
GAVIN NEWSOM
Borgarstjórinn í San Francisco heimilaði
hjónavígslur samkynhneigðra fyrir rúmri
viku.
BRÚÐKAUP
Á fjórða þúsund samkynhneigð pör hafa verið gefin saman í ráðhúsinu í San Francisco á undanförnum dögum.
Hart deilt um giftingar
samkynhneigðra
Borgaryfirvöld í San Francisco hafa höfðað mál á hendur Kaliforníuríki
vegna laga sem banna giftingar fólks af sama kyni. Yfir 3.000 samkyn-
hneigð pör hafa verið gefin saman síðan borgarstjórinn aflétti banninu.