Fréttablaðið - 11.05.2004, Side 28
LEIKIR
20.00 Valur og Haukar leika í Vals-
heimilinu í útslitum RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
SJÓNVARP
14.15 Trans World Sport á Stöð 2.
Íþróttir um allan heim.
17.10 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima
og erlendis.
18.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.
18.30 Saga EM í fótbolta á RÚV.
19.00 Trans World Sport á Sýn.
Íþróttir um allan heim.
20.00 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Vals
og Hauka í útslitum RE/MAX-
deildar karla í handbolta.
20.00 Meistaradeild UEFA á Sýn.
Fréttaþáttur um Meistaradeild
UEFA.
20.30 Fákar á Sýn. Í þættinum
verður fjallað um allar hliðar
hestamennskunnar.
21.00 Knattspyrnusagan á Sýn. Í
þættinum verður fjallað um bestu
leikmenn allra tíma, eins og Pelé,
Alfredo di Stefano, Garrincha,
Maradona og Zidane.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði hér-
lendis og erlendis.
23.25 Supercross á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
11. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
8 9 10 11 12 13 14
MAÍ
Þriðjudagur
!
"#
$
%
&
' (
# )
(*+ (
$
'
# $&&
'
#
(
#
,
%
* -"" ,
+
(#
*#
$,
*
$&&
.+ &&(
*
% *
%
'
#
)
#
(
/
0*1$%
!
"
!
# $
%
&' (
) ! !
!
# !
$
*
!
%#
)'
! +
! %
,
%# ! -
"
# # $$
"
■ TALA DAGSINS
FÓTBOLTI „Það verður bara
að ráðast,“ sagði Íris
Andrésdóttir, fyrirliði
Vals. „Það væri óskandi
að fá úrslitaleik. Það gerir
mótið skemmtilegra en
það bara ræðst í septem-
ber hvort það verður úr-
slitaleikur eða ekki.“
Valur leikur við ÍBV í
Eyjum í lokaumferð
L a n d s b a n k a d e i l d a r
kvenna í haust en þau eru
talin sigurstranglegust í
mótinu í sumar. „Það gæti
alveg eins farið svo,“
svaraði Íris Sæmunds-
dóttir, fyrirliði ÍBV, þegar
hún var spurð hvort þetta
yrði úrslitaleikurinn. „Ég
hugsa að KR-ingar verði mjög
sterkir í sumar. En svo er þetta
líka spurning hverjir verða
heppnir með meiðsli og dagsform-
ið hefur svolítið að segja í kvenna-
fótbolta. Það koma mörg lið til
greina.“
Íris Andrésdóttir hefur trú á að
KR-ingar og Blikar muni blanda
sér í baráttu Vals og ÍBV. „Þessi
fjögur lið koma öll til með að
hirða stig hvert af öðru. Þetta
verður spennandi mót. Það eru
mannabreytingar í öllum liðum og
liðin eru að styrkjast.“
„Í rauninni kom spáin ekkert á
óvart,“ sagði Íris Andrésdóttir.
„Spáin miðast oft við gengi lið-
anna í undirbúningsleikjum.
Síðsti leikur í undirbúningsmóti
endaði með sigri ÍBV þannig að
þetta kemur ekkert á óvart.“ ÍBV
vann Val 3-1 í úrslitum deildabik-
arsins en Valsstúlkur ætla vænt-
anlega að eiga síðasta orðið í sum-
ar. „Það er engin spurning um
það. Þetta eru ekki leikirnir sem
telja. Það eru leikirnir í lokin og
stigin þar.“
En finnst Írisi Sæmundsdóttur
spáin rökrétt í ljósi úrslitaleiksins
á sunnudag? „Jú, ég var bara
ánægð með þessa spá. Þetta er
það sem við stefnum á í sumar,“
sagði Íris. En hún telur spána ekki
setja aukna pressu á ÍBV? „Nei,
alls ekki. Svona spár eru bara til
að hafa gaman af.“
Keppni í Landsbankadeild
kvenna hefst með leik ÍBV og
Breiðabliks í Eyjum. „Fyrsti leik-
urinn er mjög athyglisverður,“
sagði Íris Sæmundsdóttir. „Við
spiluðum við Breiðablik um dag-
inn og þá var framlenging og
mörg mörk svo ég á von á hörku-
leik. Ég hugsa að sumarið eigi eft-
ir að bjóða upp á fullt af mörkum
því það er kominn miklu meiri
sóknarbolti en var hérna áður og
vonandi verður þetta skemmtilegt
knattspyrnusumar.“ ■
94 Með leik KR og FH áKR-velli á laugardaghefst 93. Íslandsmótið í
knattspyrnu. Fyrsta mótið fór
fram árið 1912 og tóku þrjú félög
þátt í því, Fram, KR og Eyjamenn.
KR-ingar sigruðu á fyrsta mótinu
eftir aukaleik við Framara.
Árið 1955 var Íslandsmóti karl-
anna skipt í tvær deildir í fyrsta
sinn og fjórum árum síðar var
leikin tvöföld umferð í fyrsta
sinn. Árið 1966 var skipt í þrjár
deildir og þeirri fjórðu var bætt
við árið 1982.
Íslandsmót kvenna fór fyrst
fram árið 1971 og töku átta félög
þátt í mótinu. FH sigraði á fyrsta
mótinu eftir úrslitaleik við Ár-
mann. Íslandsmóti kvenna hefur
verið skipt í tvær deildir frá og
með árinu 1982. ■
LANDSBANKADEILD KVENNA
1. umferð
18. maí ÍBV - Breiðablik 20.00
20. maí FH - Valur 16.00
20. maí KR - Fjölnir 16.00
20. maí Stjarnan - Þór/KA/KS 16.00
SPÁ FYRIR LANDSBANKA-
DEILD KVENNA
ÍBV 174
Valur 167
KR 143
Breiðablik 128
Stjarnan 84
FH 72
Þór/KA/KS 52
Fjölnir 44
Úrslit í Eyjum?
Tvö efstu liðin samkvæmt spánni,
ÍBV og Valur, mætast í lokaumferðinni.
FYRIRLIÐAR LIÐANNA ÁTTA
Allir fyrirliðar liðanna átta í Landsbankadeild kvenna
voru mættir í Smárabíó í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R