Fréttablaðið - 11.05.2004, Page 30
11. maí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
www.sveit.is s: 570 2790
ævintýraheimur
2. - 16. september, fararstjóri Kristín Sörladóttir
3. - 17. september, fararstjóri Magnús Björnsson
Verð 258.000 kr. á mann í tvíbýli. Allt innifalið!!
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.sveit.is
K Y N N T U Þ É R S É R F E R Ð I R F E R Ð A Þ J Ó N U S T U B Æ N D A
Ferðakynning
KÖ
HÖ
N
N
U
N
/P
M
C
Hótel Sögu
þriðjud. 11. maí kl. 20
Ætlar að giftast 100 sinnum
Indverskur maður sem er frægurfyrir að hafa gift sig 90 sinnum
segist staðráðinn í því að giftast tíu
konum til viðbótar. Hann segir að
hann langi til þess að klára „kven-
hundrað“ sitt.
Udaynath Dakshiniray, sem er
80 ára gamall, segist þegar hafa
fengið 9 nýleg giftingartilboð frá
erlendum konum. Þrjár þeirra eru
bandarískar, þrjár japanskar, tvær
ungverskar og ein þýsk.
Dakshiniray er af ríku fólki
kominn og erfði slatta af landi.
Brúðir hans hafa flestar verið fá-
tækar, fyrir giftingu, og hefur hann
náð að lokka þær til sín með loforð-
um um landareignir.
Fyrsti skilnaður hans átti sér
stað þegar hann var ungur en þá
vildi brúðurin flytjast í annan bæ en
hann ekki. Dakshiniray varð víst
mjög pirraður á kvenfólki og sór
þess eið að giftast að minnsta kosti
100 konum. Hann á núna 29 börn og
býr með einni konunni, Mira, og
tveimur sonum þeirra.
„Ég er ekki að þessu til þess að
koma nafninu mínu í heimsmeta-
bækurnar,“ sagði maðurinn í viðtali
við The Asian Age. „Ég er í upp-
reisn gegn samfélaginu. Það er litið
niður á ógifta í okkar samfélagi,
þess vegna giftist ég þeim til að
þær geti komist yfir þá þröskulda
sem annars myndu hindra þær. Auk
þess losar þetta þær við áreitni. Ég
átti hvort eð er 400 ekrur af landi
sem mig langaði til þess að dreifa til
fátækra kvenna með því að giftast
þeim.“ ■
HAUKUR ARNAR OG ELVAR ÖRN
Eru báðir 15 ára Hafnfirðingar. Haukur er í Víðistaðaskóla en Elvar Örn í Lækjarskóla.
Íslenskt mynd-
skeið í Jay Leno
Það brá mörgum í brún við aðsjá íslenskt myndskeið í þætti
Jay Leno á miðvikudaginn í síð-
ustu viku. Það var reyndar kynnt
sem hollenskt en þar sást hvar
Haukur Arnar tilkynnti myndvél-
inni á íslensku að Elli félagi sinn
væri sofandi og að hann ætlaði að-
eins að stríða honum. Hann læðist
að rúminu þar sem Elli liggur og
leggur borð yfir efri hluta hans.
Því næst öskrar hann í eyrað á
honum með þeim afleiðingum að
Elli hrekkur upp við og rekur höf-
uðið upp í borðið, mjög harkalega.
„Við vorum búnir að vera að
flippa heima hjá mér alla nóttina
til fjögur og ég var orðinn þreytt-
ur og fór að sofa,“ segir Elvar Örn
Rúnarsson, fórnarlambið sem
milljónir manna sáu vakna með
látum í þætti Jay Leno.
„Þá gerði hann þetta og tók upp
á litla myndavél. Við settum
myndskeiðið inn á huga.is fyrir
fjórum mánuðum síðan og svo
rataði þetta í þáttinn hans. Þeir
fundu þetta á hollenskri síðu.“
Strákarnir sendu þættinum
tölvupóst þar sem þeir leiðréttu
misskilninginn og sögðu frá því
að myndskeiðið væri íslenskt.
Þeim hefur ekki enn borist svar.
Fyrir þáttinn gerði Skjár einn
auglýsingu þar sem spurt var
„Hver er Elli?“. Af þessu frétti
hann og því var hann við tækið
þegar þátturinn var sýndur. „Ég
sat uppi í rúmi heima hjá mér
þegar ég sá þetta. Eftir á
hringdu margir í mig og sögðust
hafa séð þetta. Það sáu þetta all-
ir. Meira að segja kennararnir í
skólanum þekktu okkur. Það er
ennþá verið að spyrja mig út í
þetta. Myndskeiðið hafði verið
mjög vinsælt á huga.is, þannig
að fólk þekkti það fyrir,“ segir
Elli að lokum.
Hann og félagar hans kalla sig
Háhraða og þeir eiga víst fleiri
svona myndskeið sem hugsanlega
verða gerð aðgengileg á huga.is.
Áhugasamir geta séð mynd-
skeiðið úr Jay Leno, með kynn-
ingu hans og viðbrögðum áhorf-
enda, með því að fara inn á
„fyndnar klippur“ á slóðinni
hugi.is. ■
SKRÝTNA FRÉTTIN
GIFTINGAR
■ Indverskur maður sem hefur gifst 90
sinnum er staðráðinn í því að giftast tíu
konum til viðbótar.
SJÓNVARP
HÁHRAÐI
■ Myndskeið sem félagarnir Haukur
Arnar og Elvar Örn, sem eru báðir 15 ára,
settu á netið rataði í spjallþátt Jay Leno.
100 GIFTINGAR
Dakshiniray ætti að kunna að halda al-
mennilega giftingarveislu, enda hefur
hann þegar gifst 90 konum um ævina.
JAY LENO
Brandarakallinn skemmti milljónum bandarískra sjónvarpsáhorfenda á dögunum þegar
hann sýndi stutt myndskeið sem ungir Hafnfirðingar höfðu búið til og sett á Netið. Leno
kynnti þá að vísu sem Hollendinga en honum hefur verið send leiðrétting.