Fréttablaðið - 08.05.2004, Side 14
Samkvæmt hefðum hefði átt að
vera búið að slíta Alþingi. Jarm-
andi lömbin eru komin en kynin
sitja enn málglöð á þingi. Þegar
bændamenningin var í blóma réð
sauðburðurinn þingslitum. Ráð-
herrar hlupu þá úr þingsölum í
fjárhúsin og sögðu í flokksblöð-
um lífrænna að sjá lömbin fæð-
ast en frumvörpin.
Eitthvað hefur breyst. Það er
engin spurning.
Meðal annars vegna þess að
þótt kvennakvóta hafi ekki verið
fullnægt á þingi hafa ræður batn-
að. Mjúku viðhorfin eru áberandi
og vitið í innkaupatöskunni.
Kvennalistinn sagði satt: Kon-
ur taka manneskjulegri afstöðu
en karlrembusvín. Þær rjúfa úr-
eltar hefðir og greiða góðum mál-
um atkvæði með hjartanu. Ljúft
var að heyra og sjá fjallkonufríðu
framsóknarkonuna, Jónínu Jón-
ínudóttur, endurtaka í fjölmiðlum
það sem aldrei hefur áður verið
sagt á Alþingi, í heiminum eða í
inni- og útitöku í sjónvarpi: „Ást-
in þekkir ekki landamæri!“
Hún talaði klökk af móðurlegri
festu. Enginn sem hlustaði gat
tára bundist og sannfærðist um að
sönn kona tekur þannig til máls.
Jónína Jónínudóttir var sjálfri
sér samkvæm í orðum og æði.
Við afgreiðslu frumvarpsins um
ást og útlendinga greiddi hún at-
kvæði í ætt við það sem „hún
elskaði“ í stjórnmálum. Hún og
aðrar Jónínur á þingi rufu þannig
karlahefðir, felldu ástlausa frum-
varpið og opnuðu útlendingum
leið að hjörtum landsmanna.
Þetta nægir þó ekki svo mýkt
og kraftur „kallist á“ hvarvetna í
samfélaginu. Rannsóknir leiða ís-
lenskar mótsagnir í ljós: Börn
eru ekki lengur það sem var kall-
að dugleg og drífandi. Hvort
tveggja er aðeins ofvirk. En
halda má börnum á mottunni í
skólum með píramídoni á morgn-
ana í staðinn fyrir lýsisgjöf.
Í þessu tilviki er mótsögnin sú
að þótt barn geti vart hreyft sig
fyrir fitu birtist ofvirkni þess í
frekju.
Að margra dómi er sömu sögu
að segja af Alþingi. Það er tilval-
inn „hýsill“ fyrir ofvirkni, fitu og
frekju.
Þetta mátti lesa út úr útvarps-
þætti í Samfélagið í nærmynd.
Sérfræðingar hafa sannað að fari
þetta þrennt saman leiðir það til
óvægni sem kemur hart niður á
„umgengnishópum“ hins freka,
feita og ofvirka?
Er þarna laumulega bent á Al-
þingi og lagt til að píramídi
valdsins í landinu fái þar lyfja-
gjöf, píramídon á morgnana, til
að halda því á mottunni?
Gefa fræðingar í skyn að
offeitur og ofvirkur á Alþingi láti
frekjueinkennin koma niður á
„umgengnishópi“ sínum í ríkis-
stjórn?
Hver veit?
Einnig má spyrja, fyrst farið
er að spyrja: „Er árangur í bar-
áttunni gegn einelti ranglátra
einungis sá að réttlátir verða fyr-
ir því?“
Þurfa þá ráðherrar að leita
undir regnhlíf Regnbogabarna,
eins og ofsóttir minnimáttar-
hópar, þótt þeir séu meiriháttar í
gerðum sínum og í meirihluta í
hverju máli? Eru til meiri mót-
sagnir? Eða þeir skuli kveina
með skáldinu: „Aðgát skal höfð í
nærveru sálar“ þegar þeir, líkt
og það, geta ekki veitt öðrum
óvæginn skell en fá hann á sig
sjálfir!
Allt er á sömu bókina lært á
Íslandi: Óútreiknanlegt þótt auð-
reiknað sé með skoðanakönnun
Gallups og Gunnari Gunnusyni
stjórnmálafræðingi. Ef vinsæld-
ir offeits, ofvirks ráðherra
minnka um fimm prósent mætir
fræðingurinn í fjölbreytt viðtöl
og er spurður sömu spurningar:
„Hvað lest þú út úr dæminu?“
Hann svarar með spökum þunga:
„Vinsældir viðkomanda hafa auð-
sæilega dalað um fimm prósent,
en hann heldur velli af því dölun
í prósentustigum úti í samfélag-
inu hefur engin áhrif á prósentu-
stöðu hans innan flokksins.“
Svarið er snjallt og Gunnar
Gunnuson því fastagestur í fjöl-
breyttum fjölmiðlum en ekki
kannski með nógu fjölbreyttu
eignarhaldi.
Af þessu má sjá að við búum í
landi þar sem allt fer eftir því
hvernig á málin er litið, sitt sýn-
ist hverjum, hver og einn hefur
sína sérstöku skoðun, sem er
engu að síður almenn skoðun.
Þjóðin léti heldur drepa sig en
fara ofan af fjölbreytni í sam-
ræmingu hreyfanleika og stöðn-
unar hennar í þingkosningum.
Í ætt við þetta er það að
Katrín Katrínardóttir mennta-
málaráðherra var kosin af fólki
til lands og sjávar í könnun
Gallups vinsælasti ráðherrann.
Hún var þá svo nýkomin í emb-
ættið að hún hafði ekki haft tíma
til annars en að „tala út í eitt“ í
stöku viðtali í Kastljósi við næst-
um mállausa fjölmiðlakonu. Hún
er þó einbeittari en karlmúsin
sem læðist og er látinn sitja ein-
hvern veginn á hakanum og
gegna því undarlega hlutverki að
horfa niðurlútur á viðmælendur,
ekki eins og naut á nývirki held-
ur fremur á þær samstilltu
„kjaftadósir“ sem voru oft í „inn-
setningum“ bandarískra mynd-
listarmanna fyrir margt löngu,
eins og spekingarnir segja.
H vort sem litið er til afstöðu almennings í skoðanakönnun-um eða þeirra sem hafa tjáð sig á opinberum vettvangi eðaí álitsgerðum til allsherjarnefndar, er ljóst að ríkisstjórn-
in er ekki að vinna fjölmiðlafrumvarpi sínu fylgi. Fyrir utan rit-
stjóra Morgunblaðsins og útvarpsstjóra eru þeir ekki margir utan
þingliðs stjórnarflokkanna sem hafa lýst yfir stuðningi við frum-
varpið. Það er ekki einu sinni svo að allir þeir sem sátu í fjölmiðla-
nefnd menntamálaráðherra hafi treyst sér til að lýsa yfir stuðningi
við frumvarpið. Fjöldi lögmanna hefur dregið í efa að frumvarpið
standist stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar Íslendinga. Er-
lendir gestir Norðurljósa undruðust þetta frumvarp; könnuðust
ekki við jafn þröngar takmarkanir á tjáningarfrelsi í vestrænni
löggjöf og röktu hvernig sambærileg löggjöf myndi umturna fjöl-
miðlamarkaði flestra nágrannalanda okkar. Blaðamannafélagið,
Rafiðnaðarsambandið, Félag bókagerðarmanna, Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur og Alþýðusamband Íslands hafa öll ályktað gegn
frumvarpinu – bæði efnisatriðum þess og málsmeðferð ríkisstjórn-
arinnar. Lögmannafélag Íslands bendir á að vafi leiki á að ákvæði
frumvarpsins standist stjórnarskrá og segir nauðsynlegt að verja
lengri tíma til að meta efnisatriði þess. Verslunarráð Íslands er
andsnúið frumvarpinu, segir það stangast á við atvinnufrelsi og
raska fjárfestingaráformum starfandi fyrirtækja. Heimdallur,
Samband ungra sjálfstæðismanna og Deiglan – ungt fólk í Sjálf-
stæðisflokknum – eru öll á móti því að þetta frumvarp verði að lög-
um – einnig Frjálshyggjufélagið. Sama má segja um marga eldri
flokksbundna sjálfstæðismenn og þá sem hafa gengið úr flokknum
vegna þessa máls. Stjórnarandstöðuflokkarnir þrír eru á móti
þessu frumvarpi. Starfsmenn, stjórn og eigendur Norðurljósa eru
andsnúin frumvarpinu og sama má segja um stjórn Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins. Það má telja víst að enn fleiri gefi sig
fram á næstu dögum til að andmæla þessu frumvarpi; aðdraganda
þess, rökstuðningi fyrir því og málatilbúnaði.
Auðvitað er það svo að stjórnvöld verða að hafa þrek til að taka
óvinsælar ákvarðanir sem stangast á við almenningsálitið. Sumar
ákvarðanir eru þannig að þær munu aldrei njóta mikils fylgis – nið-
urskurður þjónustu eða hækkun gjalda, svo dæmi séu tekin. Þeir
sem telja nauðsynlegt að styðja stríðsrekstur verða að sætta sig við
að taka ákvörðun um slíkt gegn meirihlutavilja þjóðarinnar. Það
geta komið upp aðstæður þar sem eðlilegt er að stjórnvöld setji lög
til að stöðva vinnudeilur þótt hæpið sé að slík ákvörðun njóti mik-
ils fylgis. Þannig má lengi telja.
En er fjölmiðlafrumvarp Davíðs Oddssonar slíkt mál? Getur
verið að nauðsynlegt sé að brjóta Norðurljós niður án þess að meg-
inþorri almennings átti sig á nauðsyn þess eða flestir þeir sem alls-
herjarnefnd hefur ráðfært sig við? Það eru fá fyrirbrigði í samfé-
laginu sem eru eins augljós og opin og fjölmiðlar. Langflestir borg-
arar geta tekið afstöðu til þeirra og metið hvort nauðsynlegt sé að
setja lög til að takmarka frelsi þeirra – sú geta getur ekki verið ein-
angruð við þingmenn stjórnarflokkanna og örfáa heitbundna fylg-
ismenn þeirra. Það væri því fráleitt ef ríkisstjórnin ætlaði sér að
knýja þetta mál í gegn, þvert gegn vilja meginþorra fólks og ráð-
leggingum flestra sem um málið fjalla. ■
8. maí 2004 LAUGARDAGUR
MÍN SKOÐUN
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
Ríkisstjórnin
einangruð
Ríkisstjórnin finnur fáa til að mæla með
fjölmiðlafrumvarpinu.
Ofvirkni á Alþingi
FRÁ DEGI TIL DAGS
Árvakur á móti
Stjórn Árvakurs, útgáfufélags Morgun-
blaðsins, hefur einróma lagst gegn fjöl-
miðlafrumvarpi Davíðs Oddssonar. Birti
blaðið samþykkt stjórnarinnar með áber-
andi hætti í blaðinu í gær. Áður höfðu birst
viðtöl við stjórnarformann Árvakurs í öll-
um öðrum fjölmiðlum þar sem hann
gagnrýndi fjölmiðlastefnu ríkisstjórnarinn-
ar en þau ummæli hafa ekki sést í Morg-
unblaðinu. Í framhaldinu vakna spurning-
ar um það
hvort þetta
muni hafa ein-
hver áhrif á af-
dráttarlausan stuðning Morgunblaðsins
við frumvarpið. Styrmir Gunnarsson hefur
farið hamförum því til stuðnings. Raunar
má telja hann einn af upphafsmönnum
málsins því þegar á síðastliðnu hausti,
áður en fjölmiðlanefndin var skipuð, var
hann farinn að skrifa um nauðsyn þess að
bregðast við samþjöppun í eignarhaldi
fjölmiðla (sem sumir vildu frekar lesa sem
viðbrögð við minnkandi áhrifum og út-
breiðslu Morgunblaðsins).
Ráða eigendur?
Styrmir skrifaði fyrir stuttu síðan athyglis-
verðan leiðara um tengsl eigenda fjöl-
miðla og ritstjóra. Þar sagði m.a.: „Það
skiptir öllu máli hverjir
eiga fjölmiðla. Sumir fjöl-
miðlar eru heppnir með
eigendur sína. Aðrir ekki.“
Og bætti við: „Morgunblaðið hefur stund-
um sagt að í átökum stjórnmálamanna og
viðskiptajöfra hafi stjórnmálamennirnir
síðasta orðið. En jafnljóst er að ef til átaka
kemur á milli eigenda fjölmiðils og rit-
stjórna eða fréttastofa hafa eigendur síð-
asta orðið og myndu innri starfsreglur
engu breyta í þeim efnum.“ Felur afstaða
stjórnar Árvakurs í fjölmiðlafrumvarpinu í
sér „átök“ við ritstjórann? Um er að ræða
stefnu í grundvallarmáli sem varðar tján-
ingarfrelsi og eignarhald á fjölmiðlum.
Hvor aðilinn ræður ferð-
inni, eigendurnir
eða ritstjórinn?
Skiptir það
kannski eig-
endur Morg-
u n b l a ð s i n s
engu máli
hvaða stefna er
boðuð í leiður-
um blaðsins?
Opið frá 11-18
Löng sýningarhelgi
Gæ
ði í
geg
n!
ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal
AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 515 75 00 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 515 75 06
NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift
ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Í DAG
ALÞINGI
GUÐBERGUR
BERGSSON
Af þessu má sjá að
við búum í landi
þar sem allt fer eftir því
hvernig á málin er litið,
sitt sýnist hverjum, hver og
einn hefur sína sérstöku
skoðun, sem er engu að
síður almenn skoðun.
Þjóðin léti heldur drepa
sig en fara ofan af fjöl-
breytni í samræmingu
hreyfanleika og stöðnunar
hennar í þingkosningum.
,,
ORÐRÉTT
Lög gegn körlum næst?
Það er augljóst að kóngurinn
hefur fengið sjón og ber að fagna
því og hver veit nema að hann
taki eftir því bráðum að á Ís-
landi búa líka konur.
Jónína Benediktsdóttir íþróttafræð-
ingur sem fagnar því að Davíð Odds-
son forsætisráðherra skuli sjá
„skuggahliðar“ frelsis og einkavæð-
ingar.
Viðskiptablaðið 7. maí.
Gegn góðu siðferði
Hvað sem lögskýringum líður
brýtur frumvarpið gegn góðu sið-
ferði. Stjórnarskráin verndar ekki
endilega öll mannréttindi. Hægt
er að setja lög sem brjóta á borg-
urunum. Frumvarpið brýtur illi-
lega á tjáningarfrelsi, atvinnu-
frelsi, eignarrétti og jafnrétti.
Gunnlaugur Jónsson fjármálaráð-
gjafi um fjölmiðlafrumvarp Davíðs
Oddssonar.
Morgunblaðið 7. maí.
Taktu nú eftir Jón!
Gagnrýni á rétt á sér en menn
verða að stilla henni í hóf og
rökstyðja hana vel. Það á ekki
að gagnrýna með lýðskrumi.
Sigurður Líndal um þau ummæli Jóns
Steinars Gunnlaugssonar að álitsgerð
Umboðsmanns Alþingis í dómaramál-
inu væri „út í hafsauga.“
DV 7. maí.
degitildags@frettabladid.is