Fréttablaðið - 08.05.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Bakþankar
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
Í raunveruleikaþættinum Sur-vivor er hægt að fylgjast með
fólki sem er skipt í tvær klíkur
og horfa á það plotta, ljúga og
svíkja áður en það kemur saman
á þing og kýs burt einn úr hópn-
um.
Í LEIKNUM er séð við einu al-
varlegu vandamáli. Bandalög
vilja myndast og þá dettur
spennan úr leiknum, úrslitin
verða fyrirsjáanleg og þátttak-
endur verða værukærir og
hrokafullir í sínu skjóli og ekkert
virðist geta bjargað þeim sem
lenda í minnihluta. En þá gerist
ævinlega ,,óvæntur“ atburður:
Stjórnandinn stígur niður eins og
einhver guð og ruglar hópunum
svo allt valdajafnvægið riðlast.
SVONA ER þetta í raunveru-
leikaþáttunum en því miður er
raunveruleikinn ekki alltaf svona
skilvirkur. Þeir sem hafa fylgst
með Alþingi síðustu misseri hafa
kannski tekið eftir þessu vanda-
máli. Bandalög hafa myndast
sem eru svo sterk að jafnvel þótt
undirskriftum sé safnað eða rök-
um beitt eða greinar skrifaðar
eða Austurvöllur fótum troðinn
af mótmælendum þá er engin
von til þess að nokkur utan
bandalaganna hafi áhrif á gang
mála eftir að ákvörðun hefur
verið tekin. Þingmenn segjast
bara vera í sínu liði eða segja
alls ekki neitt. Þessi bandalög
eru hreinlega að eyðileggja leik-
inn og sífellt fleiri eru að komast
á þá skoðun að lýðræðið sé alls
enginn raunveruleiki heldur eitt-
hvað allsherjar sjónarspil.
FORSETI ÍSLANDS ætti að
hafa vald til að sporna við þessu
vandamáli. Hann á að stíga fram
og stokka upp bandalögin, rugla í
kerfinu og láta menn fóta sig í
nýjum hópum sem gætu til að
byrja með heitið nöfnum eins og
Framstæðisflokkur, Samgrænir,
Framfylking og Sjálflyndi flokk-
urinn.
ÞÁ FÆRU þingmenn kannski
loksins að tala og hugsa eins og
manneskjur án haldreipis
flokkslínunnar eða hugmynda-
fræði, óháðir valdi foringja og
fylgja eigin sannfæringu og lof-
orðum. Óvæntir hlutir gætu
þannig gerst en eitt væri víst.
Um leið og einhver samsamaði
sig nýja flokknum og sýndi hon-
um meiri hollustu en kjósendum
sínum þá stígur Forsetinn í
pontu og tilkynnir nýja skipan
flokka: Framlyndir, Samstæðis-
flokkur, Sjálfgrænir... ■
Bandalög
Sumargleði 29/04–17/06
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
53
7
05
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
Grillgott sumar
SNITTA hnífasett 6 stk. 990,-
IKEA/PS BETSÖ grill úr ryðfríu stáli, Ø 35 sm 5.900,-
DEKORATIV 2l kanna 690,-
MAGASIN skurðarbretti 2 stk.
BETSÖ ofnhanski 490,-
IKEA/PS BETSÖ grilltöng 790,-
IKEA/PS BETSÖ grill-wokpanna 995,-
390,- VINDPUST servíettur 50 stk. 33x33 sm
195,-