Fréttablaðið - 13.05.2004, Page 16
FRÉTTABLAÐIÐ
blAi risinn
Heimsins stærsti safír, sem kallast Blái risi
austursins, verður boðinn upp í Christie's
uppboðshúsinu síðar í mánuðinum. Safír-
inn er 486,52 karöt og er talið að hann
seljist fyrir allt að milljarð króna.
ÁTVR
Þykir það ríkisfyrirtæki sem hvað mest er
til fyrirmyndar.
Fiskistofa og ÁTVR:
Rikisfyrir-
tæki til fyrir-
myndar
verðlaun Sautján ríkisstofnanir
tóku þátt í keppni sem farið hefur
fram árlega síðan 1996 um hvaða
stofnanir hafi skýrasta stefnu-
mótun, framtíðarsýn og markmiðs-
setningu. Komust fimm í úrslit en
tvær stofnanir fengu viðurkenning-
arskjöl sem ríkisstofnun til fyrir-
myndar. Annars vegar Fiskistofa
og hins vegar Áfengis og tóbaks-
verslun ríkisins. Hafði ÁTVR betur
á endasprettinum og hlaut verð-
launagrip fyrir vikið. ■
5,3 milljónir króna í sekt:
Braut gegn
skattalögum
d6msmál Maður á sextugsaldri
var í dæmdur, í Héraðsdómi
Reykjaness, í 45 daga skilorðs-
bundið fangelsi, fyrir að hafa ekki
staðið í skilum á opinberum gjöld-
um starfsmanna, samtals um 1,7
milljón króna, þegar hann var
framkvæmdastjóri fyrirtækis.
Maðurinn var einnig dæmdur
til að greiða 5,3 milljónir í sekt.
Verði sektin ekki greidd innan
fjögurra vikna frá uppkvaðningu
dómsins kemur þriggja mánaða
fangelsi hennar í stað. ■
16
Offveiðar að gera út af við þorskinn á heimsvísu:
Uppurinn eftir flmmtán ár
sjávarútvegur Hætta er á að allur
þorskur í heimshöfunum verði
uppurinn árið 2020 ef fram heldur
sem horfir að mati alþjóða-
samtakanna World Wildlife Fund.
Segja þeir þorskaflann á heims-
vísu fara hraðminnkandi vegna
offveiða, ólöglegra veiða og olíu-
borana víðs vegar. Benda þeir á,
máli sínu til stuðnings, að heildar-
þorskafli árið 1970 hafi verið 3,1
tonn en var komin niður í 950
þúsund tonn árið 2000. Hafa veið-
ar Bandaríkja- og Kanadamanna
minnkað á þessu tímabili um heil
90 prósent og 65 prósent á sama
tímabili í Evrópu. Hafa þeir mest-
ar áhyggjur af auknum þorskveið-
um í Barentshafi en þar er talið að
síðasti stærsti þorskstofninn á
heimsvísu hafist við. Helmingur
af öllum þorskafla sem að landi
kemur er veiddur þar og að auki
er talið að ólöglegar veiðar séu
þar stundaðar í miklum mæli.
Hafa Rússar uppi hugmyndir um
aukna skipagengd olíuskipa um
Barentshafið í framtíðinni sem
gæti enn frekar haft slæm áhrif á
þorskstofninn þar. ■
FISKISKIP
Varað er við því að þorskafli á heims-
vísu fari hratt minnkandi og stofninn
gæti verið uppurinn eftir fimmtán ár.
Risaskref í
valddreifingu
Nefnd sem skodad hefur hvernig megi efla og einfalda sveitarstjórnar-
stigið hefur skilað skýrslu. Lagt er til að verkefni á sviði velferðarkerfis-
ins verði flutt frá ríkinu og þjónustan færð nær fólki.
Tillögur liggja á borði ríkisstjórnarinnar um hvernig efla megi sveitarstjórnarstigið hér á
landi. Félagsmálaráðherra hefur kynnt tillögurnar, sem taka mið af svokölluðu Hornafjarð-
ar-módeli, en sem reynslusveitarfélag tók Hornafjörður heilsugæsluna og málefni fatlaðra
yfir á sína könnu með góðum árangri.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Tillögur Um
hvernig efla megi sveitarstjórn-
arstigið hér á landi liggja nú á
borði ríkisstjórnar. Nefnd sem fé-
lagsmálaráðherra skipaði til að
vinna að þeim hefur nú skilað
skýrslu, en unnið var í nánu
samráði við fulltrúa sveitar-
stjórna, ráðuneytisstjóra og for-
stöðumenn stofnana. Félagsmála-
ráðherra hefur kynnt ríkisstjórn-
inni tillögur um það hvernig færa
megi aukin völd og verkefni yfir á
sveitarfélögin.
„Megintillögurnar ganga út á
að auka nærþjónustuna við fólkið
og flytja verkefni á sviði velferð-
arkerfisins frá ríkinu. Það er
verið að stíga risaskref í vald-
dreifingu með því að færa
ákvarðanatökuna, tekjurnar og
ákvarðanir um þjónustustigið yfir
til sveitarfélaganna. Með þessu er
verið að efla og einfalda sveitar-
stjórnarstigið. Sum af verkefnum
velferðarþjóðfélagsins eru á veg-
um ríkisins, önnur hjá sveitar-
félögunum og jafnvel þriðju hjá
félagasamtökum. Við teljum best
að færa þetta allt á eina hendi og
láta tekjurnar fylgja með, „ segir
Hjálmar Árnason, þingmaður og
einn nefndarmanna.
í tillögunum er að finna út-
færslu af svokölluðu Horna-
fjarðar-módeli, en sem reynslu-
sveitarfélag tók Hornarfjörður
heilsugæsluna og málefni fatlaðra
yfir á sína könnu með góðum
árangri. Með þessu er verið að
minnka álögur á fyrirtæki og gera
allt skilvirkara. Meðal annars er
lagt til að verkefni við minni vegi
utan þjóðvegar eitt verði í
höndum sveitarfélaga, en
viðfangsefnin eru mörg.
„Þetta varðar málefni fatlaðra,
svæðisvinnumiðlunar, heilsu-
gæslu og framhaldsskóla. Rætt er
um að færa ríkiseftirlit yfir til
heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
og útvíkka þannig starfsemi
þeirra. Hingað til hefur eftirlitið
falist í því að senda embættis-
menn frá Reykjavík með ærnum
tilkostnaði til að skoða fyrirtæki
og aðstæður úti á landi. Þetta er
seinvirkt og þýðir mikinn kostnað
fyrir fyrirtækin," segir Hjálmar.
Opinber stjórnsýsla á íslandi
skiptist þannig að ríkið hefur um
70% verkefna með höndum og
sveitarfélögin um 30%, en þessu
er nákvæmlega öfugt farið á hin-
um Norðurlöndunum. Nái til-
lögurnar fram að ganga verður
hlutfall sveitarfélaganna 40%.
bryndis@frettabladid.is
13. rnai'2004 FIMMTUDAGUR
Erfðabreytt matvæli:
EkkLallt
sem sýnist
kornframleiðsla Vísindamenn
telja sig hafa vissu fyrir því að
ræktun erfðabreyttra matvæla
geti gert meira ógagn en gagn.
Rannsóknir hafa sýnt að venjuleg-
ar plöntur í nánd við þær erfða-
breyttu geta tileinkað sér eigin-
leika þeirra erfðabreyttu á stutt-
um tíma. Komið hefur í ljós að
erfðabreyttar maísplöntur sem
framleiða sjálfar eiturefni til
varnar gegn skordýrum geta auð-
veldlega dreift þessum tilbúna
eiginleika og þannig gert skordýr
ónæm fyrir eitrinu innan skamms
tíma. ■
Umskurður kvenna
óleyfilegur á Islandi:
130 milljónir
kvenna um-
skornar
heilbrigðismál Engar upplýsingar
eru til um hvort umskurður hafi
verið framkvæmdur hérlendis.
Talið er að 130 milljónir kvenna og
stúlkna hafi verið umskomar í um
30 löndum. Umskurður á stúlkum er
algjörlega óheimill hér á landi.
Umskurður getur ekki talist til
heilbrigðisþjónustu heldur hlýtur
hann að falla undir líkamlegt of-
beldi og um það gilda viðeigandi lög
segir í svari heilbrigðisráðherra við
fyrirspurn Valdimars L. Friðriks-
sonar, varaþingmanns Samfylking-
arinnar. Þar segir einnig að læknir
sem framkvæmi slíka aðgerð geti
þurft að sæta viðurlögum sam-
kvæmt lækna- og refsilögum. ■
Farmenn semja á svipuð-
um nótum og aðrir:
Skýrari
ákvæði um
ráðningu
kjaramál Atkvæðagreiðsla um
nýjan samning vélstjóra og
útgerðarmanna kaupskipa stendur
yfir til 3. júní. Þá kemur í ljós hvort
farmenn sætta sig við samninga
sem viðræðunefndir skrifuðu undir
7. maí. Haim gildir til ársloka 2007.
Helstu breytingar frá fyrri
samningi eru skýrari ákvæði um
ráðningu og ráðningartíma,
hækkun á desember- og orlofs-
uppbót, hækkun framlags vinnu-
veitenda í lífeyrissjóð og fjölgun
þeirra landa þar sem veikindi í or-
lofi hafa áhrif á orlofstökuna.
Almennar launahækkanir,
hækkanir á lífeyrisframlögum og
samningsforsendur eru þær sömu
og í fyrri samningum á vegum
Samtaka atvinnulífsins. ■
®TOYOTA
fcetri bílar
y.v*~v - p-a
Ford Mondeo Trend Skoda Fabia Comfort
Fyrst skráður: 08.2001 Fyrst skráður: 05.2001
Ekinn: 35.000 km Ekinn: 42.000 km
Vél: 2000cc, sjálfsk. Véí: 1400cc, 5 gíra.
Verð: 1.720.000 kr. Verð: 900.000 kr.
Áhyggjulaus og örugg bílaviðskipti - Strangt skoðunarferli, 14 daga skiptiréttur, ókeypis skoðun eftir 1000 km, allt að 1 árs ábyrgð. Skoðaðu úrvalið á Nýbýlavegi 4, á www.toyota.is eða hringdu í 570 5070.
Stúdentar safna fyrir LÍN:
Vilja að framlög fylgi fjölgun
nemenda á háskólastigi
lín Stúdentar efndu í gær til
tombólu og dósasöfnunar á
Austurvelli til að vekja athygli
á kröfum sínum um bætt kjör
hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna. „Þrátt fyrir mikla
fjölgun lánþega er nú dregið úr
framlögum til Lánasjóðsins,"
sagði Jarþrúður Ásmundsdóttir,
formaður Stúdentaráðs Háskóla
íslands.
Meirihluti stjórnar LÍN hef-
ur lagt fram tillögu um að
hækka grunnframfærslu um
2,6%. „Það gerir lítið meira en
að leiðrétta verðbólguáhrif sem
er algjör lágmarkskrafa af okk-
ar hálfu,“ sagði Jarþrúður.
Einnig er lögð til lækkun á
skerðingarhlutfalli um 2% en
stúdentar vilja ganga lengra.
„Við viljum auka svigrúm
námsmanna til að vinna fyrir
sér samhliða námi. Við lögðum
til að sumartekjur yrðu undan-
þegnar frítekjumarkinu. Þá
gætu nemendur einbeitt sér að
náminu og útskrifast fyrr. Þeir
byrja þá fyrr að greiða sín lán
sem hlýtur að vera jákvætt fyr-
ir alla aðila,“ sagði Jarþrúður.
Tillögur meirihlutans verða
teknar fyrir á fundi stjórnar
LÍN á morgun og að sögn
Jarþrúðar er allt útlit fyrir að
þær verði samþykktar þrátt
fyrir andstöðu fulltrúa stúd-
enta. ■
TOMBÓLA TIL STYRKTAR LfN
Forystumenn íslenskra stúdenta gagnrýna
stjórnvöld fyrir að veita ekki meiri fjármun-
um til Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Þeir stóðu fyrir tombólu og dósasöfnun á
Austurvelli í gær til styrktar sjóðnum.