Fréttablaðið - 13.05.2004, Page 24
skoðun
24
13. maí 2004 FIMMTUDAGUR
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ BANN VIÐ STYRKJUM LÁGMARKSVERÐ Á KJÖTI FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ GUNNLAUGSJÓNSSONAR STJÓRNARMANNS í FRJÁLSHYGGJUFÉ LAG1N U
Auðvitað er fjölmiðlafrumvarpið efst í huga, og er búið að vera síðan það kom fram. Frumvarpið brýtur gegn frelsi fólks og mun ekki virka. Nú eru komnar fram tillögur frá meirihluta allsherjarnefndar að breytingum á frumvarpinu, til þess að taka tillit til athugasemda. Þessar tillögur ganga allt of skammt Frumvarpið er í grunn- inn hið sama. Það bannar ennþá markaðsráðandi fyrirtækjum að eiga hlut sem einhverju máli skiptir í Ijós- vakamiðlum. Það bannar enn öllum fyrirtækjum að eiga meira en 25% og hömlur eru enn á eign dagblaða í slík- um miðlum. Hugmyndir eru uppi um að banna fyrir- tækjum að styrkja stjórnmálaflokka. Það eru vondar hugmyndir. Fyrirtæki eiga að njóta þeirra réttinda að styrkja flokka. Það er einfaldlega hluti af skoð- ana- og tjáningarfrelsi. Svona bann mun gera nýjum flokkum erfitt fyrir. Mér finnst athyglisvert hvað stjórnmálamenn hafa mikinn áhuga á að auka sam- keppni í viðskiptalífinu en vinna gegn henni í stjórnmálum. Ég er á móti hugmyndum um að ríkið ákveði lágmarksverð á kjöti. Um er að ræða nokkurs konar verðsamráð - munurinn er bara sá að allir eru skyld- ugir til að taka þátt í því! Þannig er þetta verra en nokkurt ólöglegt verð- samráð á frjálsum markaði. Þess má geta að ríkið tekur á slíku af hörku. Samkeppnisstofnun gerir húsleit, sektir eru háar og stjórnendur fyrirtækja sem eru sökuð um slíkt eru hálfpartinn stimplaðir glæpamenn. Stjórnmálamenn hafa greinilega rýmri heimildir. Umsóknum um inngöngu í Frjálshyggju- félagið hefur greinilega fjölgað að und- anförnu og enn fleiri en umsækjendurn- ir sýna félaginu áhuga. Félagið er t.d. eina stjórnmálaaflið sem stendur sam- einað gegn fjölmiðlafrumvarpinu - á réttum forsendum. Bjartsýni mín vegna framboðs á vegum okkar í þingkosníng- unum 2007 hefur aukist. Áður en að þvi kemur verður flokkurinn formlega stofnaður. Við veljum nafn sem fólk ruglar ekki saman við Frjálslynda flokk- inn! Þrjú ár eru til stefnu. Frelsisunn- endur allra þjóðfélagshópa verða að geta kosið í næstu kosningum með góðri samvisku.
Við mótmælum allir í Asgarði
Kjarnakonur
SAÁ selja álfinn
í Kringlunni
GUNNAR GUNNARSSON
STARFSMAÐUR I ÁSGARÐI
Mér finnst vaðið yfir
okkur á skítugum
skónum. Pólitík er ógeðsleg
varúlfatík. Við erum mörg-
um sinnum búin að benda
pólitíkusum á að við viljum
búa til rafmagn úr veðrinu.
Við mótmælum allir í Ásgarði,
ásamt foreldrum okkar. Þetta er
yfirgangur í Kópavogsbæ. Kópa-
vogsbær veit hvað ég er að tala
um.
Ég hef oft farið til félags-
málaráðherra að tala um þessi
mál. Málið snýst um að Ásgarður
brann upp í Lækjarbotnum og
Björn Bjarnason tekur upp
hanskann fyrir Gunnar Birgis-
son. Gamli félagsmálaráðherr-
ann vissi um málið en ég veit
ekki hvort nýi félagsmálaráð-
herrann þekkir það líka. Mér
finnst að félagsmálaráðherra
ætti að taka landið af Kópavogs-
bæ. Norðurljós eru búin að tala
um málið fyrir okkur. Kópavogs-
bær segir nei að eilífu.
Við ætluðum að byggja upp
vinnustofuna í Kópavogi en
Kópavogsbær segir nei takk.
Núna erum við komin í fast hús-
næði í Mosfellsbæ.
Mér finnst vaðið yfir okkur á
skítugum skónum. Pólitík er
ógeðsleg varúlfatík. Við erum
mörgum sinnum búin að benda
pólitíkusum á að við viljum búa
til rafmagn úr veðrinu.
Kaupauki er okur. Fyrirtæki
fara á hausinn. Bubbi kóngur er
að brúka munn. KB banki gerði
kaupaukasamning við yfirmenn
sína.
Bankastjórar KB banka
hættu við kaupaukasamninginn
af því að Bubbi kóngur ybbaði
gogg. Þeir keyra kaupaukamálið
á Alþingi á mjög miklum hraða
handa sjálfum sér. Þá koma ólög,
ljót og dónaleg .Þeir láta ríkið
borga sér stórfé fyrir stjórn-
málaflokkinn. Embættismenn-
irnir kunna ekki að sýna mann-
kærleik og pólítíkusarnir kunna
það ekki heldur Og það getur
breyst í mikinn harmleik. Þeir
fara ekki upp að Gullna hliðinu.
Þegar þeir endurfæðast þá
standa þeir misjafnlega mikið
höllum fæti.
Fólk er agalaust í umferðinni.
Það er alltaf að tefja fyrir stræt-
isvögnunum. Bíllinn er alltaf að
zikzakka á akreinunum. Öku-
menn þurfa endurhæfingu
reglulega.Við reglubundna
endurhæfingu myndu menn
læra að aka eins og menn og tjón
vegna umferðaróhappa minnk-
aði verulega. Það myndi vonandi
lækka tryggingargjöld. Allir
ökumenn með tölu þurfa að æfa
ökuleikni. Ég sé ökumenn brjóta
umferðarlög. Sumir kunna að
fara með hraðann aðrir ekki. Það
þarf þjóðarátak í umferðarmál-
um. Það þarf að hækka bílprófs-
aldur um eitt ár. Það þarf einnig
að takmarka almenna bíla-
umferð en auka strætisvagna-
umferð. Það þarf að taka ljósin á
Sæbraut og setja hringtorg í
staðinn. Það e_r mjög mikill æði-
bunugangur. Ég verð oft var við
að bílar beygi fyrir strætó á
stoppistöðvum. Ég er að tala um
alvörumál. Það væri sniðugt að
nota aðstöðuna í Húsdýragarð-
inum til þess að undirbúa börn
fyrir umferðina. Það er t.d. gott
að nota rallý-, kvartmílu- og bíla-
brautir til þess þjálfa umferðar-
menningu. Þar geta foreldrar
hjálpað börnum sínum að verða
góðjr ökumenn.
Útlendingar eru með nefið
ofan í málum sem þeim koma
ekki við. Þeir vilja steypa allan
heiminn í sama mót. Við lands-
menn öpum allt eftir erlendum
þjóðum. Sumt er gott mál og
sumt er vont mál. Dýrasamtökin
eru búin að missa sjónar á upp-
haflegu markmiðum mannsins.
Samtökin láta okkur hætta að
veiða í matinn. Efnahagsbanda-
lagið hefur mikil völd. Ef við
myndum ganga í EB þá myndum
við drukkna í pappíshafi. Það er
eins og að taka frelsið í burtu.
Við eigum ekkert erindi í EB.
Dans er ekki íþrótt. Dans á
ekki heima í sporti. Dans á
heima í menningu og listum.
Aðrar þjóðir hafa áhrif í þessu
eins og mörgu öðru hér. í sumum
löndum er dansinn flokkaður
undir íþróttir. Sumir eru fjöl-
hæfir til þess að gefa lífinu lit.
Það á að stofna menningarsam-
band innan Ólympíusambands-
ins og ÍSÍ.
Lögreglan brýtur lög með því
að loka saklausan mann inni á
meðan málið er í rannsókn. Það á
ekki að dæma saklausan mann.
Lögreglan brýtur mannréttindi og
dómarar brjóta mannréttindi líka
með því að dæma saklausan mann.
Fullorðið fólk vill ekki að
börn og unglingar tjái sig við
aðra. Agaleysi birtist í svo mörg-
um myndum svo og afbrýðis-
semi og feimni.
Fjölmiðlalögin eru barns síns
tíma eins og mörg önnur lög.
Sumir veggir eru barns síns tíma.
Ríkisstjórnin brýtur á okkur.
Ríkisstjórnin fær að ræna og
rupla. Hún er að ræna frelsi
mannsins. Svona er það í mörgum
málaflokkum. Sumir kunna ekki
að fara vel með himnasendingu.
Amen og hallelúja.
Höfundur er starfsmaður í Ásgarði
sem er vemdaður vinnustaður.
UMRÆÐAN
FJÁRÖFLUN SÁÁ á,£
ÞÓRA BJÖRNSDÓTTIR
HJÚKRUNARFORSTJÓRI Á VOGI
Markmið SÁÁ er að
selja a.m.k. einn álf
fyrir hvert ungmenni í land-
inu. Stöndum saman um
að ná því markmiói með því
að kaupa álfinn, af því að
meðferð hjá SÁÁ skilar
raunverulegum árangri, af
því að sjúkdómurinn fer
ekki í manngreinarálit og af
því að hvert og eitt okkar
skiptir mál.
Kjarnakonur SÁÁ hafa tvö
undanfarin ár tekið virkan þátt
í að selja verndartákn samtak-
anna, álfinn, og gefið allan
ágóðann af sölunni til tækja-
kaupa fyrir sjúkrahúsið Vog.
Kjarnakonur SÁÁ er fjölmenn-
ur hópur kvenna sem hittast
vikulega til að fræðast um sjúk-
dóminn alkóhólisma og styðja
við konur sem vilja fá bata við
alkóhólisma eða meðvirkni.
Kjarnakonur samanstanda af
óvirkum alkóhólistum, dætrum,
mæðrum eða mökum alkó-
hólista og konum sem áhuga
hafa á málefninu.
SÁÁ hefur boðið upp á áfeng-
is- og vímuefnameðferð sl. 27 ár
með góðum árangri. Kjarnakon-
ur hafa flestar notið þjónustu
SÁÁ og vita að þúsundir ein-
staklinga hafa náð árangri og
gengur vel að viðhalda bata sín-
um. í dag er enn brýnna en
nokkru sinni fyrr að geta boðið
áfengis- og vímuefnafíklum
áfram upp á meðferð sem rekin
er af fagfólki. Því þrátt fyrir
öflugt forvarnarstarf í skólum
og félagsmiðstöðvum og herta
dóma í fíkniefnamálum eykst
þörfin fyrir meðferð ár frá ári.
Þegar einstaklingar leita sér
aðstoðar hjá SÁÁ er hægt að
bregðast fljótt og vel við þeirri
beiðni. Einstaklingar geta sjálf-
ir hringt og óskað eftir aðstoð.
Unglingar og þau sem ekki hafa
verið í meðferð áður komast
mjög fljótt inn á Vog.
Áfengisráðgjafar eru að
störfum á göngudeild Vogs og
geta Jtekið fólk í viðtöl samdæg-
urs. í auknum mæli er gripið til
bráðainnlagna m.a. vegna
slæms líkamlegs ástands. Þá
þarf að hefja lyfjameðferð til að
slá á fráhvarfseinkenni. Það er
nú einu sinni þannig að fólk
hættir ekki bara neyslunni þeg-
ar nóg er komið. Áfengis- og
vímuefnafíkn er langvinnur
sjálfstæður sjúkdómur sem
þarfnast sérhæfðar meðferðar,
sem tekur langan tíma.
Þegar á Vog er komið taka
sjúkraliðar á móti öllum sjúk-
lingum sem leggjast inn, en oft
eru það 8-10 einstaklingar á
hverjum degi. Sjúkraliðar á
Vogi hafa margir hverjir ára-
langa reynslu af móttöku fíkla.
Þeir leggja sig fram um að haga
móttökunni þannig að einstak-
lingurinn upplifi að hann sé vel-
kominn og þessi ákvörðun hans
að koma sé honum til góðs.
Sjúkraliðar taka komuviðtal og
fá uppgefið hvaða neyslu ein-
staklingurinn er að koma úr og
hversu lengi hún hefur staðið
yfir. Eins og gefur að skilja er
allur gangur á því en flestir
unglingarnir eru að koma úr
blandaðri neyslu. Bæði áfengi
og ólöglegum vímuefnum, og
hass reykja þau flest daglega
ásamt því að nota örvandi efni
um helgar.
Sumir sprauta sig í æð.
Einnig hefur færst í aukana að
unglingar noti róandi lyf,
verkjalyf eða örvandi lyf.
Ástand unglinga við komu er
mjög misjafnt en mörg þurfa að
fá lyf til að slá á fráhvarfsein-
kenni, flest glíma við svefn-
raskanir, kvíða og almenna van-
líðan. En þrátt fyrir það er gam-
an að sjá hvað þau eru oft fljót
að jafna sig og ná lágmarksjafn-
vægi til að halda áfram í með-
ferð. Hin sem kjósa að fara
heim geta alltaf leitað aftur á
Vog og fengið að koma aftur ef
illa gengur. Það skiptir máli að
unglingar þekki hvert þeir geta
leitað þegar þau eru tilbúin að
taka á sínum málum.
Á Vogi vinna heilbrigðis-
starfsfólk, sjúkraliðar, hjúkrun-
arfræðingar, læknar og áfengis-
ráðgjafar saman við að fræða
og styðja við sjúklinga þannig
að lágmarksjafnvægi náist áður
en haldið er áfram í áframhald-
andi meðferð. Sú meðferð fer
annað hvort fram í göngudeild
SÁÁ í Síðumúla í 1-2 ár eða 28
daga á Vík eða Staðarfelli, sem
eru eftirmeðferðarstaðir SÁÁ.
'Á næstu dögum mun sölufólk
SÁÁ biðja um stuðning okkar í
skiptum fyrir lítið verndartákn,
SÁÁ álfinn. Kjarnakonur SÁÁ
munu takan virkan þátt og vera
á ferli í Kringlunni og hjá þeim
er hægt að fá frekari upplýsing-
ar um starf Kjarnakvenna SÁÁ.
Markmið SÁÁ er að selja a.m.k.
einn álf fyrir hvert ungmenni í
landinu. Stöndum saman um að
ná því markmiði með því að
kaupa álfinn, af því að meðferð
hjá SÁÁ skilar raunverulegum
árangri, af því að sjúkdómurinn
fer ekki í manngreinarálit og af
því að hvert og eitt okkar skipt-
ir máli. ■
Húsbréf
Innlausn
húsbréfa
Frá og með 15. mai 2004 hefst innlausn
á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1989 - 54. útdráttur
1. flokki 1990 - 51. útdráttur
2. flokki 1990 - 50. útdráttur
2. flokki 1991 - 48. útdráttur
3. flokki 1992 - 43. útdráttur
2. flokki 1993 - 39. útdráttur
2. flokki 1994 - 36. útdráttur
3. flokki 1994 - 35. útdráttur
Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu
fimmtudaginn 13. mai.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf.
/
Ibúðalánasjóður
j Borgartúni 21 | 105 Reykjavík j Sími 569 6900 | Fax 569 6800