Fréttablaðið - 13.05.2004, Síða 35
FIMMTUDAGUR 13. maí 2004
FRÉTTABLAÐIÐ
35
Eyjólfur um U-21 árs liðið:
Efniviðurinn mjög góður
fótbolti Eyjólfur Sverrisson tók
við þjálfun landsliðs íslands skip-
uðum leikmönnum 21 árs og yngri
í október síðastliðnum og gerði þá
tveggja ára samning. Hann segir
þjálfarastarfið leggjast mjög vel í
sig: „Þetta er í fyrsta skipti sem
ég þjálfa á þessum vettvangi þó
ég sé ekki algjör nýgræðingur í
þjálfun. Ég kom aðeins að þjálfun
yngri flokka úti í Þýskalandi og
fann mig strax vel og þetta er
vettvangur sem ég kann mjög vel
við mig á; þetta er spennnandi,
fjölbreytt og gefandi starf og
ánægjulegt að geta miðlað eitt-
hvað af reynslu sinni. Það er frá-
bært að fá þetta tækifæri með
ungmennalandsliðið sem er vissu-
lega mjög spennandi kostur. Hér
er um að ræða þá leikmenn sem
eiga að taka við í A-landsliðinu og
ég er á því^ að efniviðurinn sé
mjög góður. Ég hef úr stórum hópi
að velja og flestir strákanna eru
að spila á fullu í deildinni með sín-
um liðum og hafa verið að gera
góða hluti. Svo á bara eftir að
koma í ljós í sumar hver staðan á
þeim er og hvernig þeim reiðir af,
hverjir skara fram úr, og þá fáum
við skýrari mynd af þeim sem lík-
legastir eru til að komast upp á
næsta stig. Ég er að vonast til að
geta komið á nokkrum æfingum í
sumar og kynnast strákunum að-
eins betur en eins og ég sagði þá
er þetta jú efniviðurinn sem á að
taka að einhverju leyti við í A-
landsliðinu og það verður einfald-
lega að hlúa vel að honum.“ En lít-
ur Eyjólfur á þjálfarastarfið sem
framtíðarvettvang? „Ég er opinn
maður að eðlisfari og er ekki vel
við að útiloka eitt né neitt,“ segir
Eyjólfur en segist fyrst þurfa að
sanna sig sem þjálfara hjá ung-
mennalandsliðinu áður en hann
hugsar eitthvað lengra: „Maður
verður að sanna sig til að fá fleiri
tækifæri en ef vel gengur hjá mér
gæti ég alveg hugsað mér að þjál-
fa félagslið hvort sem væri hér
heima eða erlendis. Það á bara
eftir að koma í ljós og maður á
aldrei að segja aldrei. Núna er það
ungmennalandsliðið og komandi
íslandsmót sem eiga hug minn
allan og ég hlakka til sumarsins
og sýnist á öllu að knattspyrnu-
málin hér á landi séu í góðum far-
vegi,“ sagði Eyjólfur Sverrisson
að lokum. ■
Kobe Bryant með stórkostlegan leik og Lakers jafnaði
metin gegn Spurs:
Beint úr réttarsalnum
KOBE BRYANT
Með nauðgunarákæru á bakinu og réttarhöld í gangi. Leikur þó við hvurn sinn fingur inni
á vellinum og skoraði 42 stig i fjórða leik LA Lakers og San Antonio Spurs. Sést hér skora
framhjá Robert Horry.
körfubolti LA Lakers jafnaði met-
in gegn meisturum San Antonio
Spurs í fjórða leik liðanna í
undanúrslitum Vesturdeildar
NBA-körfuboltans. Ótrúlegur
leikur Kobe Bryant gerði útslagið
í 98-90 sigri, og það sem virtist
ætla að verða auðunnið einvígi
hjá Spurs virðist vera að snúast í
andhverfu sína. Frábær frammi-
staða Bryants hefur átt mikinn
þátt í þessum viðsnúningi en ekki
síður það að leikmönnum Lakers
hefur tekist að hægja á þeim Tim
Duncan og Tony Parker sem fóru
hreinlega hamförum í tveimur
fyrstu leikjunum. Lakers var
reyndar tíu stigum undir þegar
fyrri hálfleikur var úti en liðið
tók öll völd á vellinum í þriðja
leikhluta og lagði grunninn að
þessum góða sigri. Eins og áður
sagði var Kobe Bryant í sérflokki
á vellinum og setti niður 42 stig
auk þess að taka 6 fráköst og gefa
5 stoðsendingar. Shaquille O'Neal
kom næstur með 28 stig en 14 af
þeim skoraði hann í þriðja leik-
hluta, auk þess reif hann niður 14
fráköst og varði 4 skot. Kobe
Bryant eyddi megninu af leikdeg-
inum í réttarsal í Colorado en
flaug svo til Los Angeles til móts
við félaga sína og kom á leikstað
rétt rúmum tveimur tímum fyrir
leik. Bryant náði að leggja sig
aðeins fyrir leikinn og sá lúr
hefur greinilega gert honum gott:
„Ég náði að einbeita mér vel að
leiknum og leið vel strax frá
byrjun. Ég fæ næga hvíld í kvöld
og á morgun en núna er ég rosa-
lega þreyttur, er allur dofinn og
langar bara til að fara að sofa,“
sagði Kobe Bryant eftir þennan
ótrúlega leik. Félagi hans,
Shaquille O'Neal, var ekkert að
spara stóru orðin um Bryant: „Ég
skil ekki hvernig hann fer að
þessu. Hann er stórbrotinn leik-
maður og líklega sá besti sem
nokkurn tímann hefur spilað
þennan leik. Sérstaklega þegar
haft er í huga hvað gengið hefur á
hjá honum í einkalífinu." Stór orð
hjá stórum manni. Hjá San
Antonio var Manu Ginobili með
21 stig, 8 fráköst og 5 stoðsend-
ingar. Tim Duncan kom næstur
með 19 stig og 10 fráköst. ■
Heimslistinn í
knattspyrnu:
Uppum
fjögur sæti
fótbolti íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu hefur unnið sig
upp um fjögur sæti á heimslista w
Alþjóðaknattspyrnusambands-
ins sem gefinn var út í gær.
Liðið er nú í 56. sæti en Brasilíu-
menn eru enn sem fyrr efstir á
listanum. Næstir koma Frakkar
og í þriðja sæti eru Spánverjar,
svo Hollendingar og í fimmta
sætinu sitja Argentínumenn.
Mexíkó er í sjötta sæti, síðan
kemur Tyrkland, þá Bandaríkja-
menn og Þjóðverjar og í tíunda
sætinu eru Tékkar. ■
Er meö kaupendur aö ....
1* Einbýlishús í Vogum á Vatnsleysuströnd
• íbúð sem má breyta í 2 íbúðir
• 3ja herbergja á Höfuðborgarsvæðinu, frá 9-13.5 milljónir
• 4ra herbergja á Höfuðborgarsvæðinu, frá 10-15 milljónir
• Einbýlishús í Garðabæ, 20-30 milljónir.
• Svæði 101:10-15 milljónir
imm
MJÓDD
Hans Pétur Jónsson, lögg. fasteignasali
Fífusel, 109 Reykjavík
Endaíbúö í snyrtilegu fjölbýli.
íbúðin er á 1. hæð.
3 svefnherbergi.
Búr og þvottahús innaf eldhúsi.
Rúmgóð stofa, útgengt út á svalir.
Stærð: 97m* Falleg' Útsýni frá íbÚÖ'
Brunabótamat: 11,5 m. kr.
Byggingsrefni: Steinsteypt
Byggingarár: 1976
Anton Karlsson, sölufulltrúi
8686452 / 5209552
anton@remax.is
Er meö kaupendur aö ....
Seljahverfi, stór kaupendalisti fyrir einbýli, raöhús, parhús
og sérhæöir
Svæöi 101-108, 3ja herbergja í góöu standi, lítið fjölbýli,
eöa sérhæð
Svæöi 104 - 3ja herbergja, bílskúr
Hlíöar: sérhæö eða lítið fjölbýli, 4 svefnherbergi
Vesturbær: sérhæö, amk 3 svefnherbergi
Hafnarfjörður eöa Garöabær: amk 5 svefnherbergi
Eldri borgarar - 2ja, 3ja og 4ra herbergja + bílskýli
Ásdís Ósk Valsdóttir, sölufulltrúi
Skógarhlíð, 221 Hafnarfjörður
Stærð húss: 141,4 fm
Bílskúr: 35,3 fm
Brunabótamat: 23,8 m. kr.
Byggingarár: 1995
Mjög fallegt einbýlishús á einni hæö með sérstæöum
bílskúr. 3 svefnherbergi, rúmgott baöherbergi, stórar
stofur meö mikilli lofthæö og opið eldhús.