Fréttablaðið - 13.05.2004, Síða 38
POPPTEXTINN
38
FRETTABLAÐIÐ
13. maí 2004 FIMMTUDACUR
HhHKi''
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Fyrirtaks frumraun
„Tíminn liður hratt á gervihnattaöld.
Hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert
kvöld.
Ertu stundum hugsandi yfir öllum gulu
miðunum?
tekur kannski of mikið út úr Gleði-
bankanum?"
- Hljómar eins og Magnús Eiríksson, höfundur Gleði-
bankans, hafi séð eftir öllum aurunum sem fóru í það að
skemmta sér óhóflega. Lagið var fyrsta framlag okkar Is-
lendinga til Eurovísíon en stjömuhópurinn lcy keppti árið
1986 í Bergen I Noregi. Við lentum i 16. sæti.
Undanfarið hefur Jón Ólafsson
verið þekktastur fyrir þætt-
ina Af fingrum fram í Ríkissjón-
varpinu. Þar hefur hann rætt á af-
slappaðan hátt við aðra íslenska
tónlistarmenn og hafa þættirnir
hvatt marga þeirra áfram til frek-
ari dáða og blásið lífi í tónlistar-
feril þeirra.
Þættirnir virðast einnig hafa
virkað hvetjandi á Jón sjálfan
því hann hefur nú gefið út sína
fyrstu sólóplötu. Jón hefur verið
lengi að en er líklega þekktastur
sem meðlimur Nýdanskrar. Þar
hefur hann frekar haldið sig til
hlés en brýst hér fram sem
sterkur lagahöfundur og flytj-
andi. Hann semur öll lögin sjálf-
ur en lætur þá valinkunnu höf-
unda Ólaf Hauk Símonarson,
Hallgrím Helgason og Kristján
Hreinsson annast textagerðina.
Kemur það ákaflega vel út og
styrkja þeir lögin mikið enda eru
textar þeirra flestir mjög falleg-
ir.
í heildina séð er þetta einlæg
og falleg plata hjá Jóni. Best
finnst mér honum takast upp í ró-
legu lögunum þar sem fallegt
píanóspilið fær að njóta sín. Hann
sýnir þó einnig að hann getur
samið fín popplög, eins og í
Sunnudagsmorgunn, auk þess
sem hann er alveg ágætur söngv-
ari. Þægileg rödd hans jaðrar þó
stundum við að vera væmin en
sleppur oftast fyrir horn.
Fyrri hluti plötunnar er betri
en sá síðari og þar er erfitt að
taka eitt lag eða texta út. Afstæð-
iskenning ástarinnar og Sólin
kemur aftur upp koma þó sterk-
lega til greina sem bestu lögin
með bestu textana að auki. Siesta
og Flugur þóttu mér sístu lögin
og var hið fyrrnefnda full væmið
JÓN ÓLAFSSON _____________
JÓN ÓLAFSSON
fyrir minn smekk.
Engu að síður eru fáir van-
kantar á þessari frumraun Jóns
Ólafssonar. Sýnir hann hér og
sannar að þar fer tónlistarmaður í
fremstu röð.
Freyr Bjarnason
EUROVISION
Voru mistök að hafa
ekki undcinkeppni?
PÁLL ÓSKAR
Dreymdi að Heaven hefði lent í 19. sæti keppninnar.
Það er eins og flestir þori varla að
segja það upphátt en Eurovision-
lagið okkar í ár er ekkert sérlega
grípandi. Þá er ekkert verið að spá í
gæði þess, heldur þá staðreynd að
erfitt er að muna sönglínu Heaven
eftir aðeins eina til tvær hlustanir.
Miðað við þá staðreynd að Jónsi fær
bara að syngja lagið einu sinni á
laugardaginn þykir mörgum ólík-
legt að lagið endi ofarlega. Sé lagið
ekki sterkt skiptir engu máli þótt
Jónsi standi sig eins og hetja, sem
hann gerir eflaust.
UTSALA - UTSALA - UTSALA
Síðasti dagur útsölunnar...
enn meiri verðlækkun!
■■■
Meðal annars: sófasett, hornsófar,
svefnsófar, stakir sófar, stakir stólar,
borðst.borð og stólar, skápar, skenkir
og margt fleira.
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf., sími 565-1234
•>
Ferðatöskudagar
í Pennanum Hallarmúla 13. - 22. maí
Það er sama hvert þú ferð, við höfum réttu töskuna fyrir þig.
Kynntu þér úrvalið, komdu til okkar og settu nafnið þitt í pott
og þú gætir unnið:
Ferð fyrir 2 til Kulusuk í Græniandi
með Flugfélagi íslands
Ferð fyrir 2 innanlands
á áfangastað Flugfélags íslands ásamt
geisladisknum Á flugi yfir íslandi frá LMÍ
Glæsilegt ferðatöskusett
frá Pennanum Hallarmúla
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
UKfltogfe lag. is
LANDMÆUNGAR
ÍSLANDS
cnm>-
Penninn Hallarmúla
Miðað við frábært gengi Birgittu
Haukdal í fyrra, og miðað við
hversu mikið umstang var í kring-
um forkeppnina í fyrra, hljótum við
að spyrja hvort það hafi ekki verið
mistök að ekki hafi verið
undankeppni í ár?
Páll Óskar Hjálmtýsson
„Það má ekki alhæfa neitt um
þetta,“ bendir Páll Óskar skynsam-
lega á. „Við höfum sent fólk út í
rauðan dauðann án undankeppni,
eins og til dæmis í tilfelli Selmu
Björns sem næstum því vann
keppnina. Það er engin ein leið rétt.
Því miður búum við í landi sem hef-
ur ekki nógu mikið í buddunni til
þess að halda svona forkeppni."
Páll bendir á að það sé algengt á
meðal smáþjóða að senda út kepp-
endur án þess að forkeppni hafi ver-
ið haldin. „Það eru líka svo oft
skemmtileg gullkorn í svona for-
keppnum sem við missum af. Það
felast oft mikil verðmæti í því. Ég
er með forkeppnum."
Sjálfur þurfti Páll nú ekki að
taka þátt í forkeppni árið sem hann
keppti fyrir íslands hönd. Hann
fékk símtal og var beðinn um að
keppa fyrir þjóðina.
Páli finnst Heaven vera meira
„grand“ en mörg þeirra laga sem
keppa í ár. „Það eru 36 lög sem
keppa núna. Megnið af þessum lög-
um er drasl. íslenska lagið er stór-
fenglegra en mörg önnur. Málið er
bara að það er aðeins of hægt af
stað og ég á ekki von á því að það sé
hægt að grípa það við fyrstu hlust-
un. Jónsi fær aðeins séns að syngja
það einu sinni, á meðan aðrir kepp-
endur fá að syngja sín lög tvisvar,
vegna nýju undankeppninnar. Þið
sjáið óréttlætið í því! European
Broadcast Union mun ekki komast
upp með þetta fyrirkomulag há-
vaðalaust. Annars dreymdi mig að
Jónsi hefði lent í 19. sæti. Vonandi
er ég ekki berdreyminn."
Birgitta Haukdal
„Ég veit nú ekki hvort það hafi
verið mistök að halda ekki undan-
keppni," segir Birgitta Haukdal,
Eurovisionhetja okkar íslendinga
frá því í fyrra. „Verður þetta ekki
alltaf þannig að ef honum gengur
vel þá finnst engum þetta hafa ver-
ið mistök en ef honum gengur illa
verða allir brjál-
aðir? Auðvitað
vildi ég sjá und-
ankeppni og ég
held að flestir ís-
lendingar séu
sammála því.
Eurovision er eitt
stærsta áhugamál
íslendinga og það birgitta
eiga alltaf allir haukdal
eitthvað smávegis "efðl vlljað
, i , ° undankeppm en
i keppandanum er sátt við að Jónsi
sem fer Ut. Þess hafi verið valinn.
vegna held ég að það myndi alltaf
smá stemningu ef þjóðin fær að
kjósaþann sem fer út, og lagið. En
ef RUV á ekki pening, þá getur
maður nú varla verið að rífa sig.“
Birgitta rústaði undankeppn-
inni í fyrra. Þá var hún á hraðri
uppleið eftir að hafa átt metsölu-
plötu fyrir jólin og gaf það henni
kost á því að velja úr nokkrum lög-
um sem höfðu verið valin til að
taka þátt í undankeppninni. Hún
fylgdi hjartanu og veðjaði á réttan
hest, enn og aftur.
Birgitta er fullkomlega sátt við
það að Jónsi skuli keppa fyrir ís-
lands hönd. „Mér finnst þetta hið
ágætasta lag. Helsti ókostur þess
er að maður grípur það ekki fyrr
en maður hefur heyrt það 4-5 sinn-
um. Kostirnir á móti eru að þetta
er tilfinningamikið lag með falleg-
um texta. Ef hann flytur það vel
gæti hann hitt í hjartað á fólki.“
Birgittu finnst erfitt að sitja
heima og segist öfunda Jónsa og
hópinn sem er úti. „Ég bíþalveg í
koddann minn af öfund. Ég verð
bara að bíta í það súra og fylgjast
með í sjónvarpinu núna.“
Björgvin Halldórsson
„Það eru bæði kostir og gallar,"
segir Björgvin Halldórsson. „Kost-
ir svona undankeppni eru að hún
hleypir meira lífi í bransann og það
verður meiri spenna í kringum
þetta hér. Ég veit nú ekkert hvort
sú spenna nái til Evrópu.“
Arið sem Björgvin tók þátt leit-
aði RÚV til Skífunnar um aðstoð
með að finna
keppanda. Leitað
var til Björgvins,
sem leitaði til
fjölda lagahöf-
unda eftir að hafa
tekið verkefnið
að sér. Eftir það
lét hann 30 manna
hóp velja besta
lagið. „Ég tók
þetta að mér af
því að mig vant-
aði adrenalínskot.
Þá mátti ekki
syngja á ensku og með því eru lag-
inu settar vissar hömlur, því það
eru bara nokkrir sem skilja ís-
lensku."
Lagið Núna endaði í 15. sæti en
síðar vann Björgvin sönglaga-
keppni á írlandi með laginu, þá á
ensku. Björgvin segir Heaven
vera týpíska tregafulla ballöðu. „í
því eru skírskotanir til svo
margra laga en það stendur samt
sjálfstætt og er ágætt út af fyrir
sig. Þetta er ekkert verra lag en
meirihluti þeirra laga sem ég hef
heyrt. Ég held að maður fái leið á
þeim lögum sem eru grípandi al-
veg við fyrstu hlustun. Það er búið
að sýna þetta lag í forsýningu og
fleira.“
biggi@frettabladid.is
BÓ
Segir að fólk fái
leið á lögum sem
eru grípandi strax
við fyrstu hlustun.
Ertu a
Ifttaþér