Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 1
▲
Margir hafa farið illa út úr
spilafíkninni. Nýverið voru stofn-
sett Samtök áhugafólks um
spilafíkn. Formaður félagsins
sagði Fréttablaðinu sögu sína.
i f f i ill
il fí i i. i f
f l
il fí . f l i
i l i í .
Hin falda fíkn
SÍÐUR 22 & 23
Hlutir sem þjóðin fékk á heilann
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 28
Sjónvarp 32
SUNNUDAGUR
ÍA MÆTIR FYLKI Fjórir leikir fara
fram í Landsbankadeild karla. Klukkan 14
mætast Grindavík og ÍBV, KA tekur á móti
Keflavík og Fylkir sækir ÍA heim. Klukkan
19.15 tekur Fram á móti Víkingi.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
16. maí 2004 – 133. tölublað – 4. árgangur
STJÓRNMÁL Ljóst er að ekki hefur
dregið úr titringi innan Fram-
sóknarflokksins vegna fjölmiðla-
frumvarpsins eftir ummæli Dav-
íðs Oddssonar forsætisráðherra í
sjónvarpsfréttum í fyrrakvöld, en
þar sagði Davíð að Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, væri
vanhæfur til að neita að staðfesta
lagasetninguna vegna tengsla
sinna við Norðurljós.
Ummælin virðast hafa komið
þingmönnum Framsóknar-
flokksins í opna skjöldu og vald-
ið óvissu um það hvert málið
stefnir. Ráðherrar flokksins
tjáðu sig ekki um málið á Al-
þingi í gær, en þingmenn Fram-
sóknar, sem Fréttablaðið ræddi
við, lýstu hneykslan sinni á orð-
um forsætisráðherra um forseta
lýðveldisins.
Einn þingmanna Framsókn-
arflokksins sagði flokkinn hafa
sýnt það í þessu máli að hann
vildi ekki fara í skotgrafirnar
eða svona sandkassaleik eins og
forsætisráðherra hefði gert og
reyndar forseti Íslands líka.
Davíð sætti mikilli gagnrýni frá
stjórnarandstöðunni á Alþingi í gær.
bryndis@frettabladid.is
Sjá síðu 2
Svo virðist sem þjóðin fái stundum hluti á heilann, þannig að landsmenn allir verða helteknir
af fyrirbærinu og tjá sig um það eins og sérfræðingar. Verðbréfakaup er eitt dæmi um þetta.
En hvað hefur orðið um slíkar bólur í mannlífinu?
Titringur í
Framsókn
Þingmenn Framsóknarflokksins eru hneykslaðir á orðum forsætisráð-
herra um forseta lýðveldisins. Ósmekklegt og ómálefnalegt og á mjög
lágu plani segja þingmenn flokksins. Ráðherrar Framsóknar tjá sig ekki.
ÁFRAM RIGNING Í REYKJAVÍK
en bjart framan af degi á Akureyri og
þar í kring. Síðan þykknar einnig upp
þar og fer að rigna. Milt í dag en
kólnandi á morgun. Sjá síðu 6.
JÓNSI HAFNAÐI Í ÞVÍ NÍTJÁNDA Jón Jósep Snæbjörnsson hafnaði í 19. sæti með lagið Heaven í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva sem fór fram í Istanbúl í Tyrklandi í gærkvöldi. Íslenska lagið fékk sextán stig í keppninni og þurfa Íslendingar því að taka þátt í
forkeppni á næsta ári. Þau lönd sem gáfu íslenska laginu stig voru Noregur og Mónakó sem gáfu því fimm stig. Danmörk, Finnland og
Rússar gáfu liðinu tvö stig hvert. Úkraínska söngkonan Ruslana kom, sá og sigraði eftir harða keppni við serbnesku og grísku keppend-
urna. Úkraínska lagið hlaut 280 stig.
RÁÐIST INN Í FLÓTTAMANNA-
BÚÐIR Ísraelskir hermenn skildu eftir sig
slóð eyðileggingar þegar þeir fóru frá flótta-
mannabúðunum í Rafah á suðurhluta
Gazasvæðisins í gærmorgun. Sjá síðu 2
EKKI VANHÆFUR Lögspekingar, sem
greinir á um hvort forseti hafi rétt til að
synja lögum staðfestingar, eru sammála
um að reglur um vanhæfi forsetans hljóti
að vera mjög rúmar. Sjá síðu 4
VÍSAÐ TIL ÞRIÐJU UMRÆÐU Fjöl-
miðlafrumvarpinu var vísað til þriðju um-
ræðu á Alþingi í gær. Jónína Bjartmarz vill
sjá frekari breytingar. Óvíst er hvenær
þriðja umræða hefst. Sjá síðu 6
VANTAR LÖGREGLU Engin lögregla
hefur verið sýnileg á Vopnafirði um fjögurra
vikna skeið. Þorsteinn Steinsson, sveitar-
stjóri bæjarfélagsins, segir ástandið óviðun-
andi. Sjá síðu 6
Guðný Guðmundsdóttir
heldur upp á 30 ára starfs-
afmæli sem konsertmeist-
ari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands um þessar mundir.
Hún er jafnframt
heiðursgestur
Listahátíðar.
SÍÐUR 16 & 17
FÉKK SÉR PYLSU
Gerhard Schröder fékk sér pylsu í vikunni.
Kanslari Þýskalands:
NATO ekki
til Íraks
BERLÍN, AP Gerhard Schröder, kansl-
ari Þýskalands, sagðist í gær ekki
telja að hersveitir á vegum Atlants-
hafsbandalagsins gætu tekið við af
bandarískum hermönnum og
bandamönnum þeirra í Írak. Hann
sagðist telja að öryggismál í Írak
væru best komin í höndum trú-
bræðra hinna múslimsku íbúa
landsins.
„Ég efast um að NATO, sem
myndi lenda í sömu sálrænu erfið-
leikunum og hersveitir banda-
manna nú, gætu bætt stöðu öryggis-
mála þar,“ sagði Schröder.
„Þegar til lengri tíma er litið, ef
írösk stjórnvöld með stuðningi um-
boðs frá Sameinuðu þjóðunum
myndi biðja um aðstoð, þá held ég
að það gæti orðið auðveldara fyrir
þá sem hafa skyld trúarbrögð ... ís-
lamska hermenn frá íslömskum
ríkjum.“ ■
Landsbankadeildin:
Meistararnir
töpuðu
FÓTBOLTI Titilvörn Íslandsmeistara
KR í Landsbankadeildinni í knatt-
spyrnu byrjaði ekki vel í gær þeg-
ar liðið beið lægri hlut fyrir FH-
ingum, 1-0, á KR-velli.
Atli Viðar Björnsson skoraði
sigurmarkið á 26. mínútu.
Sjá bls 25.
SÍÐUR 20 & 21
▲
Konsertmeistarinn
▲