Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 8
8 16. maí 2004 SUNNUDAGUR FRIÐARSINNI BORINN BURT Friðarsinnar mótmæltu í gær herstöð Atlantshafsbandalagsins í Betera, skammt frá Valencia á Spáni. Lögreglusveitir voru sendar á vettvang til þess að bera burt mótmælendurna. Gunnar I. Birgisson vill enn breyta Lundarsvæðinu: Bæjarstjórinn sat hjá SKIPULAGSMÁL Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, sat hjá við atkvæðagreiðslu um breytinga- tillögu Gunnars I. Birgirssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins, á skipulagi Lundarsvæðisins. Tillagan var samþykkt en áður hafði skipulagsnefnd náð víð- tækri sátt um fyrri tillöguna. Gunnar vildi bæta útsýni úr íbúð- um eins fjölbýlishússins en við það fjölgar íbúðum úr 384 í 390. Sigurður segist ekki hafa verið tilbúinn að ákveða á þeirri stundu hvort breytingartillaga Gunnars væri það góð að hætta bæri á að margra mánaða vinna væri fyrir bí. „Samþykkt skipulagsnefndar er niðurstaða sem menn eru búnir að fá eftir mjög mikla vinnu,“ seg- ir Sigurður. „Þetta er mjög góð hugmynd og skemmtileg. Um hana hefur fengist samstaða og menn voru allir ánægðir í bæjar- ráði.“ Siguður segir að bæjarstjórn fjalli um málið á þriðjudaginn og þá gefist tóm til að fara betur yfir breytingartillöguna. Gunnar segir að aðeins sé um örbreytingu frá ráðgjöf og áliti skipulagsnefndar að ræða og hún sé til mikils batnaðar. Flosi Eiríksson, samfylkingar- maður í minnihluta bæjarstjórn- ar, segir að viðkvæmri stöðu sé stefnt í voða. „Hvaða ástæða var fyrir því að láta skipulagsnefndina sitja yfir þessu í tvo mánuði ef Gunnar ætlar svo að breyta þessu einn og sjálfur í bæjarráði.“ ■ FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ Fjölmiðla- frumvarp Davíðs Oddssonar verður til umræðu bæði í borgar- stjórn og borgarráði á þriðjudag- inn. R-listinn hyggst leggja fram tillögu að bókun á borgarráðs- fundi á þriðjudag þar sem þess verður krafist að ríkisstjórnin stofni ekki rekstri fjölmiðlafyrir- tækja og atvinnuöryggi starfs- fólks þeirra í hættu. Ólafur F. Magnússon, fulltrúi frjálslyndra í borgarstjórn, hefur einnig lagt fram tillögu sem lögð verður fram á borgarstjórnar- fundi á þriðjudag. Þar er meðal annars skorað á Alþingi og sér- staklega þingmenn Reykjavíkur að koma í veg fyrir samþykkt frumvarpsins þar sem fram hafi komið rökstuddar ábendingar um að samþykkt frumvarpsins í óbreyttri mynd geti leitt til at- vinnumissis hundruða Reykvík- inga og skertrar afkomu enn fleiri. „Frumvarpið varðar hagsmuni borgarbúa og því finnst mér að borgarfulltrúar eigi að láta málið til sín taka, sem kjörnir fulltrúar Reykvíkinga,“ segir Ólafur F. Magnússon. „Það mættu þing- menn Reykvíkinga líka gera ef þeir vildu standa undir nafni.“ Ólafur er ósáttur við að önnur tillaga um málið verði lögð fram í borgarráði sama dag og tillaga hans verður rædd. Hann segist hafa talið að ekki skipti máli hver flytti málið, heldur að það yrði flutt. „Ég sé ekki annað en að fyr- irhuguð tillaga R-listans sé ein- göngu framsett í þeim efnum að þeim sé ekki sama um hver setur fram tillögu um jafn nauðsynlegt og gott málefni og þetta er í borg- arstjórn Reykjavíkur.“ „Ef borgarstjórn vill fjalla um atvinnuöryggi starfsfólks vekur það athygli að ekki kom tillaga frá einum einasta borgarfulltrúa um það að álykta eða bóka um upp- sagnir fjölda starfsmanna Land- spítala,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. Vilhjálmur vill ekki gefa upp hvort sjálfstæðismenn hyggist styðja tillögurnar tvær. Sjálfstæð- ismenn muni taka þátt í umræð- unni á fundinum á þriðjudaginn og gera grein afstöðu sinni til þeirra tillagna sem liggja fyrir borgarstjórn um þetta mál. Alfreð Þorsteinsson, forseti borgarstjórnar, kynnti tillöguna fyrir Vilhjálmi fyrir nokkru en segir Vilhjálm ekki hafa verið til- búinn að taka afstöðu til hennar þá. „Þetta var í upphafi fundar og hafði ekki verið sent út með dag- skránni að við skoðuðum þetta mál betur. Mér fannst eðlilegt að ég fengi tækifæri til þess að kynna tillöguna fyrir mínu fólki,“ segir Vilhjálmur. helgat@frettabladid.is AP /R AM O N E SP IN O SA LUNDASVÆÐIÐ Styrr stendur um framtíðarbyggingarland Kópavogsbæjar í Fossvogi. Kosningasigur Congress: Vísitölur féllu mikið INDLAND, AP Indverskar verðbréfa- vísitölur féllu mikið í fyrradag vegna ótta fjárfesta við að ný stjórn undir forystu Congress- flokks Soniu Gandhi hefji meiri ríkisafskipti en síðasta ríkisstjórn og dragi úr frelsi á markaði. Í kauphöllinni í Bombay lækkaði vísitalan meira en hún hefur gert í fjögur ár og verðfallið á verð- bréfavísitölu indversku kaup- hallarinnar var það mesta í tíu ára sögu kauphallarinnar. Sonia Gandhi einhenti sér í það í gær að mynda nýja stjórn. Til þess þarf hún stuðning vinstriflokka sem unnu sinn stærsta sigur frá upphafi. Talið er að stjórnar- myndun gæti jafnvel tekist í dag. ■ FÖNGUM SLEPPT Nær 300 írösk- um föngum sem hefur verið hald- ið í Abu Ghraib- fangelsi í útjaðri Bagdad var sleppt úr haldi í fyrradag. Stefnt er að því að sleppa nær 500 manns í næstu viku. BÚNAÐUR BILAÐI Búnaður sem átti að auðkenna breska orrustu- þotu sem vinveitta bandamönnum bilaði. Það er ástæðan fyrir því að hún var skotin niður af Patriot eldflauga- og loftvarnakerfi Bandaríkjahers, sagði breski varnarmálaráðherrann í gær. SONURINN MYRTUR Íraskur karl- maður sagði arabísku sjónvarps- stöðinni al-Arabiya að breskir hermenn hefðu pyntað son sinn og myrt. Síðar hefðu þeir greitt honum andvirði um tveggja millj- óna króna í bætur. Breski herinn staðfestir bótagreiðsluna en segir það ekki viðurkenningu ábyrgðar. ■ Evrópa ■ Irak SONIA OG KJÓSENDUR Líklegur næsti forsætisráðherra fagnaði með kjósendum. DÓMARA FREKAR EN KVIÐDÓM Rússneski olíu- auðjöfurinn Mik- hail Kódorkovskí fór þess á leit að dómari úrskurð- aði í máli sínu frekar en kvið- dómur. Kódor- kovsí hefur setið í fangelsi frá í október sakaður um fjármálamis- ferli og skattaundanskot. Beiðnum hans um lausn gegn tryggingu hefur ítrekað verið neitað. VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Segir sjálfstæðismenn munu taka þátt í umræðu um fjölmiðlafrumvarpið á borgarráðsfundi á þriðjudag. BOSTON, AP Allt bendir til þess að samkynhneigð pör í Massachu- setts í Bandaríkjunum geti gengið í hjónabönd strax á morgun þar sem hæstiréttur Bandaríkjanna sá ekki ástæðu til þess að koma í veg fyrir það. Pörin hafa verið „ein tauga- hrúga“ meðan þau bíða þess hvort byrja megi að gefa þau saman á mánudaginn, segir Arline Isaacson, annar formaður stjórnmálasam- taka samkynhneigðra í Massachu- setts. „Nú geta þau andað léttara.“ Á föstudaginn hafnaði hæsti- réttur Bandaríkjanna því, um- orðalaust, að banna borgarstarfs- mönnum að gefa út hjónabands- leyfi til samkynhneigðra para, þannig að nú stendur ekkert í veginum fyrir því að af því geti orðið. Æðsti dómstóll Massachusetts ríkis úrskurðaði í nóvember síð- astliðnum að stjórnarskrá ríkisins heimili samkynhneigðum að ganga í hjónaband, og tilkynnti þá jafnframt að byrja megi að gefa þau saman þann 17. maí, sem er á morgun. Hundruð andstæðinga sam- kynhneigðra komu saman í Boston og bauluðu þegar þeir fréttu af ákvörðun hæstaréttar um að aðhafast ekkert til að koma í veg fyrir þessi hjónabönd. ■ Hæstiréttur Bandaríkjanna: Samkynhneigð pör mega giftast SPÁ Í GIFTINGARTERTUNA David Koses og Alfredo Roldan-Flores ætla að ganga í hjónaband í júní, nú þegar það verður leyft í Massachusetts. ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Lagði fram tillögu um fjölmiðlafrumvarpið til umræðu á borgarstjórnarfundi á þriðju- dag. Hann er ósáttur við að R-listinn hyggist leggja fram aðra tillögu um málið í borgarráði. Óvissa um afstöðu sjálfstæðismanna Tvær tillögur að bókunum þar sem lagst er gegn fjölmiðlafrumvarpinu í núverandi mynd verða til umræðu í borgarráði og borgarstjórn. R-listinn og Frjálslyndi flokkurinn eru á móti frumvarpinu. Sjálfstæðismenn þegja þunnu hljóði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.