Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 34
Júlíus Þór Júlíusson er formaðurog einn af stofnendum Samtaka
áhugafólks um spilafíkn sem kom-
ið var á fót í byrjun árs. Júlíus er
óvirkur alkóhólisti og hefur langa
meðferðasögu að baki. Hann hefur
verið spilafíkill í ein fimmtán ár.
„Ég kynntist spilamennskunni
í kringum árið 1989. Þá eyddi ég
heilu og hálfu dögunum í Ölveri
og ákvað að prófa að setja pening
í kassann. Ég varð fíkill um leið
og gat ekki slitið mig frá kassan-
um,“ segir Júlíus sem leitaði þó
ekki á náðir spilakassanna til að
græða. „Ég átti nóg af peningum á
þessum tíma en tókst að eyða
þeim mjög hratt. Spilakassarnir
fannst mér vera góð og skemmti-
leg afslöppun.“
Í Gullnámuna með 200 þús-
und krónur
Júlíus Þór eyddi miklum tíma
og peningum í spilakassa. Það var
þó ekki eina fjárhættuspilið sem
hann tók þátt í. Hann sótti einnig
stíft í getraunir. „Það gekk ekkert
að græða á spilakössunum svo ég
fór í getraunirnar. Ég var mjög
aktívur í þeim og var farinn að
eyða 40–50 þúsund krónum á viku,
en ég græddi heldur ekki á þeim,“
segir Júlíus.
Árið 1994 opnaði Gullnáman
þar sem hægt var að spila um
hærri upphæðir í kössum en áður
hafði tíðkast. Júlíus Þór hræddist
mjög að fara þar inn. „Ég fór þang-
að inn í fyrsta skipti ári eða tveim-
ur árum eftir að Gullnáman opn-
aði. Ég hélt mig að mestu við litlu
kassana því ég taldi sjálfum mér
trú um að ég tapaði minna í þeim.“
Hæsti vinningur í minni köss-
unum er um tíu þúsund krónur en
í Gullnámunni hleypur hann á
milljónum.
„Ég fór aldrei inn í Gull-
námuna nema eiga slatta af pen-
ing – svona 200 þúsund kall – ég
fór aldrei þangað með minni pen-
ing,“ segir Júlíus Þór.
Skuldugur upp fyrir haus
Júlíus sigldi í strand og í des-
ember á síðasta ári vatt hann
kvæði sínu í kross og fór í með-
ferð. „Ég fór mjög illa út úr þessu
og stundaði vinnu mína illa,“ seg-
ir Júlíus, sem reyndi hvað hann
gat til að friða samviskuna. „Ég
var alltaf að friða samviskuna
með því að gera eitthvað fyrir
fjölskylduna. Þegar konan mín
spurði hvar peningarnir væru
sagði ég að þeir hefðu allir farið í
greiðsluþjónustuna sem hún kom
ekki nálægt. Það var ekki fyrr en
vanskilatilkynningar fóru að
streyma inn að þetta komst upp.“
Allt annað líf
Júlíus fór í meðferð á Staðar-
felli árið 1995 og þremur mánuð-
um síðar réð hann sig í vinnu á
sveitabæ á Breiðabólsstað á Fells-
strönd. Þar dvaldist hann í hálft
ár. „Þar fékk ég fimm þúsund
krónur í laun á viku,“ segir Júlíus
og hristir hausinn þegar hann rifj-
ar upp þennan tíma. „Ég fékk bíl-
inn lánaða einu sinni í viku og
keyrði þá í Búðardal til að spila og
eyddi öllum peningnum. Stundum
græddi ég kannski þrjú þúsund
karl og varð voða ánægður með að
hafa hækkað kaupið mitt.“
Júlíus lætur nú löggildan end-
urskoðanda halda utan um fjár-
mál sín til að greiða niður skuld-
irnar og borga aðrar afborgarnir.
„Þetta er allt annað líf og það hef-
ur orðið mikil breyting á þessum
sex mánuðum,“ segir Júlíus
Kom illa niður á fjölskyld-
unni
Júlíus er giftur og á tvær dæt-
ur. Hann segir fíkn sína hafa bitn-
að illa á fjölskyldunni. „Eldri
stelpan mín hefur farið mjög illa
út úr þessu og ég á mikinn þátt í
því. Við erum aðeins farin að ná
aftur saman og hún er farin að
hjálpa mér í starfinu hjá sam-
tökunum. Yngri stelpan hefur
ekki verið að erfa þetta við mig,“
segir Júlíus. „Konan er kannski
ekki alveg komin með 100%
traust á mér. Henni fannst líka
erfitt þegar við vorum að byrja
með samtökin, að láta fólk vita að
ég væri spilafíkill. Ég kom opin-
berlega fram og ræddi málið,
meðal annars í sjónvarpi, og það
fannst henni afar erfitt. En hún
sér í dag hvað þetta gengur vel,“
segir Júlíus léttur í bragði.
Falin fíkn
Júlíus segir að spilafíkn sé
mjög falin fíkn. „Það sjá allir ef
þú hefur verið að drekka og lík-
amlegu einkennin eru miklu
sterkari. Spilafíkillinn getur hins
vegar haldið fíkninni leyndri þar
til hann er búinn að tapa öllu og
jafnvel rústa nokkrum fjölskyld-
um,“ segir Júlíus „Spilafíklar
hækka fyrst yfirdráttarheimild-
ina í viðskiptabankanum og svo í
öðrum bönkum. Svo taka þeir lán,
jafnvel falsa nöfn ættingja og svo
hrúgast inn kröfurnar og
spilafíkillinn tekur yfir lífið. Eftir
sitja ættingjar og vinir umvafðir
skuldum. Þetta er kannski svart-
asta sýnin á spilafíkla en þetta er
að gerast í þjóðfélaginu og fólk
verður að vita af þessu. Það vant-
ar kynningu á áhættunni sem
fylgir fjárhættuspilum og að fólk
geri sér grein fyrir því,“ segir
Júlíus.
Fjárhættuspil undir eftirliti
Júlíus stofnaði Samtök áhuga-
fólks um spilafíkn eftir að meðferð
lauk til að hjálpa öðrum spilafíkl-
um. Hann segir að samtökin séu
ekki í herferð gegn fjárhættuspili
heldur vilji koma á fót ábyrgari
spilamennsku. „Hún felst meðal
annars í því að fólk líti á fjárhættu-
spil sem einhvers konar hættu. Al-
veg eins og þegar fólk kveikir sér í
sígarettu veit það að það á í hættu
að fá lungnakrabbamein eða að
fólk veit að það getur skaðast af
því að drekka of mikið,“ segir Júlí-
us. „Við viljum að fjárhættuspil
séu undir opinberu eftirliti og að
það sé takmarkaður fjöldi staða og
takmarkaður fjöldi kassa. Þá
minnkar þessi hætta sem er fyrir
hendi í dag.“
Júlíus telur einnig brýna nauð-
syn á því að meðferðarúrræði séu
til staðar fyrir spilafíkla. „Ég tek
ofan fyrir SÁÁ og því starfi sem
samtökin vinna en það er ekki til
neitt meðferðarúrræði sem slíkt
fyrir spilafíkla. Það þarf að koma á
fót dagmeðferð, jafnvel innliggj-
andi meðferð. Það er ekki nóg fyrir
fólk að koma og setjast í viðtal. Það
þarf að virkja fólkið, til dæmis það
sem hefur flosnað upp úr námi eða
vinnu. Það þyrfti að hafa eitthvað
afdrep þar sem það getur hist og
sótt tölvunámskeið, farið í útreiða-
túra eða slíkt. Þótt við myndum ekki
22 16. maí 2004 SUNNUDAGUR
Ég var alltaf að friða
samviskuna með því
að gera eitthvað fyrir fjöl-
skylduna. Þegar konan mín
spurði hvar peningarnir
væru sagði ég að þeir hefðu
allir farið í greiðsluþjónust-
una sem hún kom ekki ná-
lægt. Það var ekki fyrr en
vanskilatilkynningar fóru að
streyma inn að þetta komst
upp.
,,
Hver er maðurinn?
Vinnusamur
og forn í
háttum
Maðurinn sem við spyrjum umað þessu sinni er karl á miðj-
um aldri. Hann er öllu jafna hress
og kátur, ljúfur í samskiptum og
hrókur alls fagnaðar á góðum
stundum.
Maðurinn er vinnusamur í meira
lagi og hefur gríðarlegan áhuga á
viðfangsefnum sínum. Sá áhugi
endurspeglast vel í störfum hans.
Sumum þykir hann raunar vita
meira en góðu hófu gegnir um
hugðarefni sín en sagan og stað-
reyndir eru ljóslifandi í kolli hans.
Áhugamál hans og vinnan eru að
mestu hin sömu og má því segja að
hann lifi og hrærist í einum af-
mörkuðum þætti samfélagsins.
Okkar maður hefur ferðast um
veröldina þvera og endilanga í
krafti starfs síns og er vel kynntur
á sínu sviði í heiminum. Hann hefur
leiftrandi frásagnargáfu og nýtur
þess að segja frá og einn viðmæl-
enda blaðsins sagði hann hafa afar
gaman af að hlusta á sjálfan sig.
Maðurinn er nokkuð forn í hátt-
um og hefur gaman af fyrirbærum
á borð við ferskeytlur, limrur og
annan kveðskap. Hann sækir þorra-
blót og réttir í heimasveit sinni og
lætur jafnan nokkuð til sín taka á
slíkum mannamótum.
Okkar manni er það helst fund-
ið til vansa að hafa slæman fata-
smekk og vera oft hálf undarlega
til fara miðað við starf sitt. Þá er
hann sagður geta verið heldur
langorður í samræðum við sam-
starfsfólk sem aðeins þarf að fá já
eða nei upp úr honum. Slík erindi
eiga það til að enda með löngum
sögum um alls óskyld málefni.
Nú er spurt, hver er maðurinn?
Svarið má finna á blaðsíðu 24. ■
Sérkennilegt
heimilishald:
Með
dýragarð á
heimili sínu
Jamie L. Verburgt sem býr íWisconsin er engin venjuleg
kona. Nágrönnum hennar var ekki
um sel þegar stækur þefur tók að
berast frá íbúð hennar og hvarf
ekki. Þeir sáu sér ekki annað fært
en að kalla á lögreglu. Þegar lög-
reglan kom inn í íbúð Jamie fundu
þeir 200 dýr, þar á meðal krókó-
díla, sporðdreka, snáka, og rottur.
Í kjallara hússins voru sjötíu end-
ur, fjölmargar dúfur og froskar. Í
nálægum bílskúr fann lögreglan
nokkur hundruð rotnandi hræ af
fuglum og kanínum sem Jamie
hafði safnað til að næra gæludýr
sín á. Lögreglumaður sem var á
staðnum sagði lyktina hafa verið
óbærilega. Dýrin eru nú öll í
vörslu dýraverndarsamtaka.
Jamie keypti dýrin á internet-
inu. Árið 2000 var kærasti hennar
sóttur til saka eftir að lögregla
fann ref, hlébarða, púmu, kyrk-
islöngu og eðlu á heimili hans. ■
• Viðkomandi er upptekinn af fjárhættuspili
• Þarf að leggja undir meira fé en áður til að öðlast þá spennu sem sóst er eftir
• Endurteknar tilraunir til að stjórna, draga úr eða hætta fjárhættuspili hafa mistekist
• Eirðarleysi eða pirringur þegar reynt er að draga úr eða hætta fjárhættuspili
• Fjárhættuspil er notað sem aðferð til að flýja vandamál eða bæta úr vanlíðan
• Eftir að hafa tapað fer einstaklingurinn oft aftur til þess að vinna upp tapið
• Viðkomandi lýgur að fjölskyldumeðlimum, meðferðaraðilum eða öðrum til að leyna
því hve djúpt hann er sokkinn
• Hefur gripið til ólöglegs athæfis til að fjármagna fjárhættuspil, til dæmis skjala-
fals, fjársvika, þjófnaðar eða fjárdráttar
• Hefur stofnað í hættu eða glatað dýrmætum tengslum við fólk, atvinnu, skólagöngu
eða tækifærum á frama vegna fjárhættuspilsins
• Treystir á fjárhagsaðstoð annarra til að bæta slæman fjárhag vegna fjárhættu-
spila
(Heimild: saa.is)
Athugaðu – til þess að fá endanlega úr því skorið hvort þú ert spilafíkill þarft
þú að fara í greiningarviðtal hjá fagmanni með nægilega góða reynslu.
Viðmiðanir SÁA
fyrir spilafíkn:
Spilafíkn hefur talsvert verið í umræðunni undanfarið.
Nýlega voru stofnuð Samtök áhugafólks um spilafíkn.
Formaður félagsins sagði Fréttablaðinu sögu sína og
frá hinni földu fíkn.
Spilaði sig í strand