Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 4
4 16. maí 2004 SUNNUDAGUR Á forsætisráðherra að biðja forseta Íslands afsökunar á ummælum sínum hann í fréttum Sjónvarps? Spurning dagsins í dag: Horfðir þú á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 32% 68% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Fá fordæmi fyrir átökum forsætisráðherra og forseta: Opinskárri deilur en áður STJÓRNMÁL „Ég man almennt ekki eftir neinum slíkum orðaskiptum milli forseta og forsætisráðherra,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um samskipti forseta og forsætisráð- herra undanfarna daga og ummæl- um Davíðs Oddssonar forsætis- ráðherra. Forsætisráðherra sagði Ólaf Ragnar Grímsson forseta vera vanhæfan vegna tengsla sinna við Norðurljós og starfa dóttur hans hjá Baugi. Eina dæmið sem Gunnar Helgi minnist um að hlaupist hafi svo í kekki með forseta og forsætisráð- herra sé uppákoman í kringum heimastjórnarafmælið. „Ég þykist vita að börnum stjórnmálamanna hafi iðulega verið blandað í stjórn- málaumræðu þar sem menn hafi virt takmörk misjafnlega mikið. Í seinni tíð er það ekki algengt.“ Deilur forseta og stjórnmála- manna hafa aldrei verið jafn áber- andi og nú þó áður hafi komið til deilna. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og Jón Baldvin Hanni- balsson, þáverandi utanríkisráð- herra, þrýstu mjög á Vigdísi Finn- bogadóttur, fyrrum forseta, þegar hún íhugaði að skjóta EES-samn- ingnum í þjóðaratkvæði. Þá fór það mun hljóðar en nú. ■ Forsetinn er ekki vanhæfur Lögspekingar, sem greinir á um hvort forseti hafi rétt til að synja lögum staðfestingar, eru sammála um að reglur um vanhæfi forsetans hljóti að vera mjög rúmar. Þær hljóti að vera í samræmi við hæfnisreglur þingmanna. STJÓRNMÁL Lögspekingar segja að meta þurfi hæfi eða vanhæfi for- seta til að synja lögum staðfest- ingar út frá hlutverki hans í lög- gjafarvaldinu þar sem litlar tak- markanir séu settar við hæfi manna. Jakob Möller hæstaréttarlög- maður hefur sagt að forseti hafi ekki synjunarvald á lögum. Hann segir hins vegar að gefi menn sér að forseti hafi þennan rétt, fái hann ekki séð að forseti yrði van- hæfur til að staðfesta lögin eða synja þeim, ekki frekar en að þingmenn mættu ekki greiða at- kvæði um lögin vegna ein- hverra tengsla við fyrirtæki sem um ræðir. „Forseti er í þessari sér- stöku stöðu að vera hvort tveggja hluti framkvæmda- valds og lög- gjafavalds. Þá hefur hann synjunarvald sem hluti lög- gjafans. Um al- þ i n g i s m e n n gilda ekki aðr- ar reglur en að þeir mega ekki greiða atkvæði með fjárveitingu til sjálfs síns.“ Jakob segir engar l a g a r e g l u r gilda um hæfi forseta og vitnar í að Ólafur Jó- h a n n e s s o n , fyrrum forsætisráðherra og lagaprófessor, hafi talið að for- seti yrði aldrei vanhæfur og und- ir það hafi Páll Hreinsson laga- prófessor tekið. „Jafnvel þó einhverjar van- hæfisreglur giltu um löggjafann fæ ég ekki séð að forseti yrði van- hæfur til að staðfesta þessi lög eða synja þeim,“ segir Jakob. Björg Thorarensen, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir engar reglur til um hæfi for- seta og að aldrei hafi reynt á hæfi hans. Ef meta eigi hæfi forseta hljóti það að byggja á svipuðum grunni og reglur um hæfi þing- manna sem eru mjög rúmar. Björg segir að þar sem mál- skotsréttur- inn byggir á hlutverki forseta sem hluta löggjafarvaldsins eigi hæf- isreglur stjórnsýslulaga ekki við en mun strangari reglur gilda um hæfi stjórnsýslunnar en lög- gjafans. Björg bendir á að þó hann synji staðfestingu sé hann ekki endi- lega að taka efnislega afstöðu til málsins. „Hann er fyrst og fremst að nýta þennan rétt til að skjóta þessu álitamáli í dóm þjóðarinn- ar.“ brynjolfur@frettabladid.is Erfðabreytt korn: Leyft eftir langa bið BRUSSEL, AP Eftir sex ára hik og deilur við bandarísk stjórnvöld hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákveðið að samþykkja innflutning og sölu á erfðabreyttu korni. Óvíst er þó hvort þetta verði til þess að mikið seljist af erfða- breyttu korni í ríkjum Evrópusam- bandsins. Samkvæmt reglum sem tóku gildi í síðasta mánuði verður að tilgreina á umbúðunum ef vara er framleidd úr erfðabættum hrá- efnum. Tortryggni í garð erfða- breyttra matvæla er útbreidd í Evr- ópu og líkleg til að hamla sölu. ■ ÁRNI JOHNSEN Iðnaðarráðherra skipaði Árna Johnsen í stjórn Rarik á föstudag. Árni Johnsen: Skipaður í stjórn Rarik RARIK Fyrrum alþingismaðurinn Árni Johnsen tók sæti í stjórn Rarik á föstudag. Árni Johnsen hlaut fangelsisdóm fyrir fjárdrátt og mútuþægni í opinberu starfi. Árni er nú laus úr fangelsi en er ennþá á skilorði. Valgerður Sverrisdóttir iðnað- arráðherra skipaði Árna í stjórn- ina eftir tilnefningu frá Sjálfstæð- isflokknum. „Árni er búinn að taka út sinn dóm og ég tel því eðli- legt að verða við þeirri ósk flokks- ins að skipa hann í embættið.“ ■ ÞYRLA LANDHELGISGÆSLUNNAR Slasaður sjómaður var sóttur um borð í norskt karfaveiðiskip í fyrrakvöld. Slasaður sjómaður: Sóttur í þyrlu SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SIF sótti í gærkvöld slasaðan sjómann um borð í norska út- hafskarfaveiðiskipið Nordstar. Haft var samband við Landhelgis- gæsluna um ellefuleytið og var skipið þá statt á karfamiðunum á Reykjaneshrygg. Þar sem stærri þyrla Land- helgisgæslunnar, TF-LIF, er í við- gerð og þyrlan TF-SIF nær aðeins 150 sjómílur frá landinu var skip- stjóri Nordstar beðinn að halda í átt til Reykjavíkur. TF-SIF lagði síðan af stað um níuleytið og var komið með sjómanninn til lands rétt fyrir klukkan eitt. Sjómaður- inn var fluttur á Landspítala - há- skólasjúkrahús með meiðsli á hendi. ■ FORT ASHBY, AP „Þetta er yndislegur bær með yndislegu fólki,“ segir Laura Sours, ein af 1.300 íbúum bæjarins Fort Ashby, sem er skammt frá Washington-borg í Bandaríkjunum. „Það sem gerðist er hræðilegt og ég vona bara að það hafi engin áhrif á álit um- heimsins á okkur.“ Bandaríska herkonan Lynndie England, sem fræg er af pynting- armyndunum frá Írak, er frá Fort Ashby. Hún er 21 árs og vann við að setja vörur viðskiptavina í poka í stórmarkaði bæjarins áður en hún hélt til Íraks. Í þessum friðsæla bæ, þar sem menn læsa ekki einu sinni bílun- um sínum, var fólk vant því að taka vel á móti aðkomufólki. Nú eru breyttir tímar. Stærsta ógn bæjarbúa eru aðkomublaða- menn, sem hafa streymt þangað til þess að kynna sér bakgrunn Lynndie. „Það mun ekki nokkur maður tala við ykkur vegna þess að þeir trúa því ekki að fjölmiðlarnir segi sannleikann,“ segir Joe God- lewski, rakari í bænum. „Einhver skipaði henni að taka þessar myndir til þess að auðmýkja þessa menn,“ segir Godlewski. „Allir sem ég tala við trúa því.“ Í tveggja manna tali segjast margir íbúanna standa með stúlkunni sem fór til starfa í hinu illræmda fangelsi í Bagdad. En fáir vilja segja það opinberlega lengur. ■ M YN D /A P GUNNAR HELGI KRISTINSSON Fá fordæmi fyrir jafn hörðum orðaskiptum forsætisráðherra og forseta og síðustu daga. BJÖRG THORARENSEN Engar reglur eru til um hvort og hvenær forseti er vanhæfur. JAKOB MÖLLER Synjunarvaldið er hluti löggjafar- hlutverks forseta. FORSETINN SETUR ALÞINGI Forsætisráðherra hefur sagt forseta vanhæfan til að synja fjölmiðlalögunum. Hann segir forseta vanhæfan vegna tengsla sinna við stjórnendur Norðurljósa og þess að dóttir hans vinnur hjá Baugi. „Jafnvel þó einhverjar vanhæfisregl- ur giltu um löggjafann fæ ég ekki séð að forseti yrði vanhæfur til að staðfesta þessi lög eða synja þeim. SMÁBÆJARSTÚLKAN Í HERNUM Blaðamenn flykkjast nú til heimabæjar hennar þar sem þeim er tekið af tortryggni. Fort Ashby heimabær Lynndie England: Bæjarbúar hræðast blaðamenn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.