Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 2
2 16. maí 2004 SUNNUDAGUR
„Hann stóð sig
frábærlega vel.“
Sigrún Hjálmtýsdóttir söngkona fylgdist vel með
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva,
sem fram fór í gærkvöldi.
SPURNING DAGSINS
Diddú, hvernig var Jónsi?
Sértæk löggjöf
eftir allt saman
Davíð Oddsson er harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín um forseta
Íslands. Óviðurkvæmilegt, segir Guðjón A. Kristjánsson. Davíð verður
að biðja Ólaf Ragnar afsökunar, segir Össur Skarphéðinsson.
ALÞINGI „Forsætisráðherra tekur
málið upp með þeim hætti að for-
seti lýðveldisins sé vanhæfur þar
sem hann hafi ákveðin tengsl við
tiltekið fyrirtæki. Ég spyr þá, er
þetta þá eftir allt saman sértæk
löggjöf, sem beinist að tilteknu
fyrirtæki,“ sagði Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar-
innar, við upphaf þingfundar á Al-
þingi í gær.
Tilefnið að umræðunni voru
ummæli Davíðs Oddssonar, for-
sætisráðherra, í fréttum Sjón-
varpsins í fyrrakvöld, um að for-
seti Íslands, væri vanhæfur til að
neita að staðfesta fjölmiðlalögin
og skjóta málinu til þjóðarinnar
vegna þess að fyrrverandi kosn-
ingastjóri hans væri forstjóri
Norðurljósa og af því dóttir hans
ynni hjá Baugi.
Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, sagð-
ist ekki átta sig á því hvers vegna
forsætisráðherra væri að fara á
þessa braut, enda stjórnarliðar
lagt áherslu á almenn lög.
„Forsætisráðherra lætur sér
detta í hug að fullyrða það að forset-
inn sé vanhæfur, en þetta snýst um
að skjóta málinu til þjóðarinnar,
ákveði forsetinn að synja lögunum
staðfestingu. Ég tel að það hafi ver-
ið óviðurkvæmilegt af forsætisráð-
herra að tala á svona nótum,“ sagði
Guðjón, sem bætti því við að hann
væri glaður að sjá alla þá ráðherra
sem voru mættir í þingsal til að
fylgjast með umræðunum.
„Ég býð þá alla hjartanlega vel-
komna, þeir hafa lítið sést hér und-
anfarið. Þetta er ánægjulegur dag-
ur, enda fyrsta deildin að hefjast
og Júróvisjón í kvöld, en menn
verða að gæta hófsemi í því sem
þeir segja,“ sagði hann.
Formaður Samfylkingarinnar
sagði að menn yrðu að gæta sín á
því að láta ekki taugakerfið bresta
með þeim hætti sem sást í sjón-
varpsviðtali við forsætisráðherra.
„Þetta var til vansa fyrir þingið.
Það getur ekki nokkur alþingis-
maður ráðist svona á forseta lýð-
veldisins og til að lægja öldur ber
forsætisráðherra að biðja þjóð-
höfðingjann afsökunar. Við lend-
um oft í pólitísku skaki, en fjöl-
skyldur okkar eru friðhelgar og
menn draga hana ekki í umræð-
una, eins og forsætisráðherra
gerði,“ sagði Össur.
Össur taldi Davíð ekki skilja
grundvallarreglur í íslenskri
stjórnskipan. Hann minnti þing-
menn á orð Ólafs Jóhannessonar
um að forsetinn væri aldrei van-
hæfur, hann væri hluti af lagasetn-
ingarvaldinu.
bryndis@frettabladid.is
Ísraelsher dregur sig í hlé:
Skilur eftir slóð
eyðileggingar
RAFAH, SHUNEH, AP Ísraelskir her-
menn skildu eftir sig slóð eyði-
leggingar þegar þeir fóru frá
flóttamannabúðunum í Rafah á
suðurhluta Gazasvæðisins í gær-
morgun. Þeir eyðilögðu tugi húsa,
bæði íbúðarhúsa og fyrirtækja,
skemmdu vatnslagnir og raflagn-
ir og sáu til þess að hundruð
Palestínumanna misstu heimili
sín.
Ísraelski herinn sagðist hafa
þurft að tryggja öryggi hermanna
á svæðinu þegar þeir fóru til þess
að ná í líkamsleifar fimm ísrael-
skra hermanna, sem fórust þegar
Palestínumenn sprengdu her-
bifreið þeirra í loft upp fyrr í vik-
unni.
Palestínumenn, sem börðust
við Ísraelsmenn, leituðu skjóls í
íbúðarhúsum og notuðu jafnt
moskur, börn og sjúkrabifreiðar
til að skýla sér á bak við í átökun-
um, að því er ísraelski herinn full-
yrðir.
Meira en hundrað þúsund
Ísraelsmenn söfnuðust saman í
Tel Aviv í gær til þess að krefjast
brottfarar ísraelska herliðsins
frá Gazaströnd, og sýndu þar
með fram á að nýtt líf er að
færast í friðarhreyfingu Ísraels-
manna sjálfra, sem legið hefur
hálfpartinn í dvala um langt
skeið. ■
Dagblaðið Daily Mirror:
Biðst
afsökunar
LONDON, AP Breska dagblaðið Daily
Mirror birti á forsíðu sinni í gær
afsökunarbeiðni fyrir að hafa birt
falsaðar ljósmyndir sem fullyrt
var að væru teknar af breskum
hermönnum að pynta íraska
fanga.
„Fyrirgefið.. við vorum
blekkt,“ sagði í risafyrirsögn á
forsíðunni.
Breska varnarmálaráðuneytið
skýrði jafnframt frá því að fjórir
breskir hermenn hefðu verið hand-
teknir í tengslum við ásakanir um
pyntingar. Þeir hefðu hins vegar
verið látnir lausir fljótlega, en
rannsókn málsins haldi áfram. ■
DRUKKIN UNGMENNI Lögregla á
höfuðborgarsvæðinu þurfti víða
að hafa afskipti af ungmennum í
fyrrakvöld vegna áfengisneyslu.
Nokkrum, sem ekki höfðu náð til-
skyldum aldri, var ekið til síns
heima.
Forseti Íslands:
Neitar að tjá
sig um Davíð
STJÓRNMÁL Ólafur Ragnar Gríms-
son forseti tjáir sig ekki um þau
ummæli Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra að forseti sé van-
hæfur um að synja fjölmiðlalög-
um staðfestingar vegna tengsla
við Norðurljós.
Fréttablaðið leitaði eftir við-
brögðum forseta við orðum for-
sætisráðherra í gær en fékk þau
svör frá forsetaembættisins að
forseti myndi ekki tjá sig um um-
mælin. Það myndu starfsmenn
embættisins heldur ekki gera. ■
STEKKUR YFIR ELD
Þessi palestínski drengur stökk yfir eld á mótmælafundi í Gazaborg í gær þar sem
Palestínumenn minntust ófara sinna árið 1948 þegar Ísraelsríki var stofnað.
AP
/D
AI
LY
M
IR
RO
R
AFSÖKNARBEIÐNI Á FORSÍÐU
Piers Morgan, ritstjóri Daily Mirror, sagði af
sér á föstudag. Í gærmorgun birti blaðið
síðan afsökunarbeiðni.
ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Formaður Samfylkingarinnar sagði að menn yrðu að gæta sín á því að láta ekki tauga-
kerfið bresta með þeim hætti sem sást í sjónvarpsviðtali við forsætisráðherra
GUÐJÓN ARN-
AR KRISTJÁNS-
SON
Formaður Frjáls-
lynda flokksins,
sagðist ekki átta
sig á því hvers
vegna forsætis-
ráðherra væri að
fara á þessa
braut.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SLEGIST Á BAR Tveir voru fluttir
á slysadeild eftir slagsmál á
Kaffi Akureyri í fyrrinótt. Annar
skarst nokkuð á eyra eftir að glas
var brotið á höfði hans, en hinn
kinnbeinsbrotnaði.
ÁRÁS Á SKEMMTISTAÐ Maður var
sleginn með flösku og skarst nokk-
uð í andliti á skemmtistað í Kefla-
vík í fyrrinótt. Líkamsárásin var
kærð til lögreglu en árásarmaður-
inn var horfinn af vettvangi þegar
lögregla kom. Ekki er vitað að svo
stöddu hver var að verki.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
STJÓRNMÁL Ósmekklegt og ómál-
efnalegt og tengist ekki á nokkurn
hátt umræðum um fjölmiðlafrum-
varpið, sagði þingmaður Fram-
sóknar um þau ummæli Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra að
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
væri vanhæfur um að synja lög-
um undirskriftar vegna tengsla
sinna við Norðurljós og dóttur
sinnar við Baug.
Annar úr þingflokknum sagði að
í sjónvarpsviðtalinu hefði forsætis-
ráðherra í raun viðurkennt að laga-
setningin um eignarhald á fjölmiðl-
um snerti bara Norðurljós. Það fór
ekki á milli mála, sagði þingmaður-
inn sem taldi forsætisráðherra
hafa farið yfir öll mörk í ummæl-
um sínum um forsetann og fjöl-
skyldu hans. Þingmaðurinn sagði
forsætisráðherra nauðsynlega
þurfa að fara að hugsa sinn gang.
Enn einn úr þingliði Framsókn-
arflokksins sagði að orð forsætis-
ráðherra hefðu verið alger óþarfi,
en þau hefðu þó ekki áhrif á um-
ræðuna um frumvarpið sem slíka.
Þingmaðurinn sagði enn fremur
að í sínum huga væru lögin al-
menn og beindust ekki að einu
fyrirtæki, en hann bætti við:
Fjórði viðmælandinn úr þing-
flokknum sagði mönnum talsvert
brugðið vegna orða forsætisráð-
herrans, enda væru þau algerlega
óviðeigandi og á mjög lágu plani. ■
Þingmenn Framsóknar ósáttir við ummæli forsætisráðherra:
Ósmekklegt og ómálefnalegt
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Ráðherrar Framsóknarflokksins tjáðu sig ekki um málið á Alþingi í gær
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FORSETI ÍSLANDS
Ólafur Ragnar Grímsson hefur ekki viljað
tjá sig um ummæli Davíðs Oddssonar í
Sjónvarpinu á föstudagskvöld.
M
YN
D
/A
P