Fréttablaðið - 16.05.2004, Qupperneq 6
6 16. maí 2004 SUNNUDAGURVEISTU SVARIÐ?
1Lögregla hvaða lands ekur nú um áLamborghini-lögreglubíl?
2Hvaða þingmaður líkti forsætisráð-herra við gungu og druslu á Alþingi í
fyrradag?
3Ritstjóri hvaða breska dagblaðs sagðiaf sér eftir að í ljós kom að blaðið
hafði birt falsaðar myndir af pyntingum
breskra hermanna í Írak?
Svörin eru á bls. 35
Héraðslögregla á bakvakt komi upp neyðartilfelli:
Íbúar Vopnafjarðar vilja lögreglu
LÖGREGLUMÁL Engin lögregla hefur
verið sýnileg á Vopnafirði um
fjögurra vikna skeið. Þorsteinn
Steinsson, sveitarstjóri bæjar-
félagsins, segir þetta ekki í
fyrsta sinn sem ástand sé með
þessum hætti. „Ástandið nær ekki
nokkurri einustu átt,“ segir hann.
Björn Sveinsson, einn af þrem-
ur héraðslögreglumönnum, segir
að tveir héraðslögreglumenn hafi
verið á bakvakt til að sinna bráða-
tilfellum, þar á meðal hann sjálf-
ur. Þeir kalla til lögreglu frá Eg-
ilsstöðum ef nauðsyn krefur.
Björn er í fullri vinnu sem raf-
virki á staðnum og er óánægður
með stöðu mála.
„Lögreglan á Egilsstöðum á að
sinna vakt hérna, en þeir hafa
ekkert sést,“ segir Björn. Milli
staðanna eru 135 kílómetrar nú
þegar Hellisheiði eystri er ófær,
en um 750 manns búa á Vopna-
firði.
Þorsteinn segir ástandið valda
bæjarbúum áhyggjum.
„Við teljum okkur eiga rétt á
jafn góðri þjónustu hvað þetta
varðar eins og aðrir íbúar þessa
lands. Ég hef alloft kvartað yfir
þessu við sýslumann.“
Lárus Bjarnason, sýslumaður á
Seyðisfirði, segir sýslumanns-
embættið hafa yfir sjö lögreglu-
mönnum og níu héraðslögreglu-
mönnum að ráða. Komi eitthvað
upp á sé lögregla send á staðinn.
Málum hafi verið sinnt en þetta er
vissulega vandamál í sambandi
við forvarnir.
„Ég hef ítrekað sett fram óskir
hjá dómsmálaráðuneytinu og fjár-
laganefnd um að bætt verði við
einni stöðu lögreglumanns á
Vopnafirði.“ ■
Bananalýðveldi auðhringa
Forsætisráðherra segir lönd verða bananalýðveldi séu auðhringar búnir að ná öllum völdum.
Fjölmiðlafrumvarpinu var vísað til þriðju umræðu á Alþingi í gær. Jónína Bjartmarz
vill sjá frekari breytingar. Óvíst er hvenær þriðja umræða hefst.
ALÞINGI Annarri umræðu um fjöl-
miðlafrumvarp forsætisráðherra
lauk á Alþingi í gær, en tillaga
stjórnarandstöðunnar um að vísa
málinu frá var felld. Meirihluti
stjórnarflokkanna samþykkti með
30 atkvæðum gegn 27 atkvæðum
stjórnarandstöðunnar og Kristins
H. Gunnarssonar, Framsóknar-
flokki, að málið gengi til þriðju
umræðu. Óvissa ríkir um það
hvenær þriðja umræða hefst. For-
seti Alþingis hefur ekki gefið
neitt út um framhald málsins.
Orð Jónínu Bjartmarz, Fram-
sóknarflokki, vöktu athygli þegar
hún gerði grein fyrir atkvæði
sínu.
„Ég samþykki frumvarpið, en
geng út frá því að málið verði
skoðað fyrir þriðju umræðu,“
sagði hún.
Össur Skarphéðinsson, Sam-
fylkingunni, sagði þetta þýða að
Jónína vildi sjá frekari breytingar
á frumvarpinu og að flótti væri að
bresta á hjá Framsóknflokknum.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sagði að þingmenn stjórnar-
andstöðunnar hefðu misboðið
þingmönnum og þjóð með mál-
þófi, og án þess að kynna sér mál-
ið til hlítar.
Hann sagði
margt hafa
skýrst á undan-
förnum dögum,
jafnvel mörg
dularfull mál og
sagðist lengi
hafa átt erfitt
með að skilja
hvert tilefni
hinnar frægu
Borgarnesræðu
var, en það mál
hefði skýrst í
umræðum um
fjölmiðlafrum-
varpið.
„Ég hef átt
erfitt með að
skilja hvers
vegna Samfylk-
ingin hefur al-
gerlega farið í
för og föt Norð-
urljósa í allri
þessari um-
ræðu. Þar skilur hvergi á milli,
ekki bókstaf. Öll rök sem þaðan
koma eru ekki bara tekin gild,
heldur étin upp hvert á fætur öðru
af talsmönnum Samfylkingarinn-
ar. Kannski koma einhverjar
skýringar á þessu einn góðan veð-
urdag, rétt eins og á því hvers
vegna Samfylkingin ákvað fyrir
síðustu kosningar að gera þrjú
fyrirtæki; Jón Ólafsson, Baug og
Kaupþing sérstaklega að sínum
fyrirtækjum,“ sagði Davíð.
Forsætisráðherra sagði það
furðulegt að einn stjórnmála-
flokkur skyldi kokgleypa og gera
að sínum, rök eins fyrirtækis eða
eins auðhrings í landinu.
„Lönd verða fyrst banana-
lýðveldi þegar auðhringar eru
búnir að ná öllum völdum og ná
undir sig fjölmiðlum og stjórn-
málaflokkum. Þetta hefur maður
aldrei séð,“ sagði hann og nefndi
dæmi. „Þegar fulltrúar Norður-
ljósa héldu því fyrst fram að skað-
inn af þessu máli gæti verið 300
milljónir, sem mér finnst kunnug-
leg tala, þá varð sú fullyrðing étin
upp strax,“ sagði Davíð.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Samfylkingunni, svaraði: „Hinn
pólitíski ófriður hefur gengið of
langt í þessu máli. Það urðu skil í
málinu í sjónvarpsviðtalinu við
forsætisráðherra og það var inn-
siglað í þeim dylgjum og þeim
óhróðri sem forsætisráðherra
hefur hellt yfir okkur.“
bryndis@frettabladid.is
STYTTIST Í ÁKÆRU
Ríkissaksóknari Noregs segir að
ákvörðun verði tekin í næsta
mánuði um hvort múslimaklerk-
urinn Krekar verði kærður fyrir
tengsl við íslömsku samtökin
Ansar al-Islam. Krekar hefur
nokkrum sinnum verið hand-
tekinn við rannsókn málsins en
ávallt sleppt aftur.
FÆKKA FRIÐARGÆSLULIÐUM
Sænska ríkisstjórnin ætlar að
kalla heim rúmlega þriðjung þess
liðs sem Svíar sendu til friðar-
gæslu í Kosovo. 190 friðargæslu-
liðar verða kallaðir heim í næsta
mánuði og verða þá 330 áfram til
staðar í héraðinu róstusama.
■ NORÐURLÖND
ENDURKOMU FAGNAÐ
Stuðningsmaður Roh fagnar því að forset-
inn skuli settur í embætti á ný.
Roh Moo-hyun:
Tekur aftur
við embætti
SEÚL, AP Tveimur mánuðum eftir
að suður-kóreska þingið vék Roh
Moo-hyun forseta úr embætti
hefur stjórnlagadómstóll landsins
sett hann aftur í embætti.
Þingheimur samþykkti 12.
mars að víkja Roh úr embætti þar
sem hann hefði brotið gegn kosn-
ingalögum. Stjórnlagadómstóllinn
staðfesti að hann hefði framið
lagabrot en ekki nógu alvarlegt til
að réttlæta að honum yrði vikið úr
embætti.
Roh má eiga von á friðsamlegri
sambúð við þingið en áður því
stuðningsmenn hans unnu mikinn
sigur í kosningum eftir að þingið
vék honum frá. ■
ÞORSTEINN STEINSSON
Sveitarstjóri Vopnafjarðahrepps segir Vopn-
firðinga eiga rétt á sömu þjónustu og aðrir
íbúar þessa lands. Hann hefur ítrekað ósk-
að eftir bót á málum hjá sýslumanni sem
hefur komið boðunum áleiðis
til dómsmálaráðuneytis.
DAVÍÐ ODDSSON
Forsætisráðherra sagði það furðulegt að einn stjórnmálaflokkur skyldi kokgleypa
og gera að sínum, rök eins fyrirtækis eða eins auðhrings í landinu.
JÓNÍNA BJARTMARZ
Jónína sagðist ganga út frá því að málið
yrði skoðað fyrir þriðju umræðu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
„Hinn póli-
tíski ófriður
hefur gengið
of langt í
þessu máli.
Það urðu skil í
málinu í sjón-
varpsviðtalinu
við forsætis-
ráðherra og
það var inn-
siglað í þeim
dylgjum og
þeim óhróðri
sem forsætis-
ráðherra hef-
ur hellt yfir
okkur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T