Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.05.2004, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 16.05.2004, Qupperneq 12
Eftirminnilegasti afmælisdag-urinn minn var þegar ég varð 28 ára,“ segir Ragnheiður Elín Clausen. „Þá var ég flugfreyja og áhöfnin lenti í Hamborg í leið- indaveðri. Einn flugmaðurinn var svo elskulegur að kíkja með mér út á lífið vegna þess að ég átti af- mæli. Mig langaði svo að sjá Her- bert Strasse, vændisgötuna frægu á Reperbahn, því þangað hafði ég aldrei komið. En það er víst þannig að konur mega ekki ganga niður götuna því þjónustan er einungis ætluð karlmönnum. Og ef konur hætta sér í hverfið þá mega þær eiga von á því að hlandi sé skvett yfir þær. Það var mjög kalt í veðri og vændiskonurnar héngu því allar inni og voru í raun eins og gínur í sýningargluggum. Þetta var svolítið mögnuð sjón og ég ríghélt í flugmanninn til að forðast hlandskvetturnar sem ég slapp sem betur fór við á afmælis- daginn. Eftir á fundum við okkur svo huggulegan bar og skemmt- um okkur vel.“ Þó Ragnheiður hafi sloppið við öll vandkvæði í þetta skiptið þá átti hún síðar eftir að fara verr út úr vændiskonunum. „Það var nokkurs konar eldskírn fyrir flug- freyjurnar að fara í þetta hverfi og því fórum við nokkrum sinnum þangað. Í eitt skiptið þá kom ein vændiskona askvaðandi út úr húsinu og skvetti yfir mig heilu glasi af því sem ég held og vona að hafi bara verið vatn. Ég hlýt að hafa litið ógurlega vel út þetta kvöld því það var ekkert skvett á hinar flugfreyjurnar en ég veit ekki hvort það er kompliment fyrir mig að hafa veitt vændis- konunum samkeppni.“ Þó Ragnheiður Elín hafi átt eftirminnilegan afmælisdag í vændishverfinu í Hamborg segir hún afmælin oftast vera róleg. „Í seinni tíð hef ég oftast farið út að borða en pabbi heitinn, var líka vanur að búa til uppáhaldsmatinn minn, humar með sérstakri hvítvínssósu á afmælisdaginn minn. Í dag ætla ég hins vegar á kaffihús með góðum vinum og fara út að ganga með hundana mína tvo,“ segir Ragnheiður að lokum, en hundarnir hennar heita Krumma og Hríma. ■ Fyrir 36 árum ríkti neyðar-ástand í Frakklandi þegar verkafólk fór í almennt verkfall með þeim afleiðingum að dagblöð komu ekki út, flugvélar hófust ekki á loft og vagnar tveggja stærstu lestarfélagana stóðu kyrrir á teinum sínum. Í lok mán- aðar voru milljónir verkamanna í verkfalli og útlit var fyrir að Frakkland væri á barmi rót- tækrar vinstri byltingar. Óregluleg nemendamótmæli hófust 1968 og 3. maí voru stór mótmæli við Sorbonne-háskólann brotin á bak aftur af lögreglu. Nokkur hundruð nemar voru teknir höndum og tugir slösuðust. Eftir þennan atburð var kennsla lögð niður í Sorbonne og nemendur þyrptust út á götur Lat- ínuhverfisins til að halda mót- mælunum áfram. Árekstrar lög- reglu og nemenda 6. maí leiddu til þess að hundruðir slösuðust og eftir enn harðari átök 10. maí end- uðu um fjögur hundruð manns á sjúkrahúsi. Meirihluti þeirra voru lögreglumenn. 30. maí sagði de Gaulle, forseti Frakklands, í útvarpstilkynningu að þingið yrði leyst upp og kallað til þingkosninga. ■ MÓTMÆLI NEMENDA Í PARÍS Sjöundi áratugurinn hafði verið nokkuð rólegur í Frakklandi. Ungt fólk, sérstaklega háskólanemendur voru þó óánægðir, sérstaklega með, að þeim fannst, úrelt fyrirkomulag háskólanna og fá atvinnutækifæri eftir útskrift. Frakkland á barmi byltingar 12 16. maí 2004 SUNNUDAGUR ■ AFMÆLI Róbert Árni Hreiðarsson lögmaður er 58 ára. ■ ANDLÁT Bernódus Halldórsson lést fimmtu- daginn 13. maí. Inga Helma Þorgrímsdóttir lést laugar- daginn 8. maí. Jarðarförin fór fram í kyrr- þey. Ingibjörg M. Þórhallsdóttir, Garðsenda 12, Reykjavík, lést fimmtudaginn 13. maí. Stefanía Una Pétursdóttir, Austurbrún 6, Reykjavík, lést fimmtudaginn 6. maí. Sveinborg J. Kristjánsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík, lést miðvikudaginn 12. maí. ■ ÞETTA GERÐIST 1717 Voltaire er tekin höndum og sendur í Bastilluna. 1770 Maria Anoinette, 14 ára, giftist verðandi konungi Frakklands, Lúðvík VI, 15 ára. 1920 Jóhanna af Örk er tekin í helgra manna tölu í Róm. 1929 Fyrstu Óskarsverðlaunin eru veitt á Hollywood Roosevelt-hótelinu. Emil Jannings var valinn besti leik- arinn og Janet Gaynor besta leik- konan. 1943 Gettóuppreisninni í Varsjá lýkur. 1989 Mikhail Gorbachev og Deng Xia- oping hittast í Bejing. Með þessu voraði í samskiptum Rússa og Kínverja, eftir 30 ára kuldakast. 1990 Prúðuleikarahöfundurinn Jim Henson deyr. 1991 Elísabet II er fyrsti breski þjóð- höfðinginn sem heldur ræðu á bandaríska þinginu. 2002 Star Wars Episode II: Attack of the Clones er frumsýnd víða um lönd. 16. MAÍ 1968 FRÖNSK MÓTMÆLI ■ Nemendamótmæli breytast í verkfall milljóna. JANET JACKSON Söngkonan sem hætt er að bera á sér brjóstið í bili er 38 ára í dag. 16. MAÍ Vikan hjá Elísu Sigurðardótturhandboltakonu verður nokkuð viðburðarík. Í dag ætlar hún að horfa á stöllur sínar í íslenska landsliðinu kljást við Evrópu- meistara Dani sem hingað eru komnir til að leika tvo vináttuleiki gegn stelpunum okkar. Framundan eru svo lokahóf HSÍ og skírn í fjöl- skyldunni. „Þrátt fyrir allt hefur maður ekki fengið alveg nóg af handbolta þó ég nenni kannski að spila hann sjálf,“ segir Elísa en mikið hefur mætt á henni að undanförnu þar sem Eyjaliðið lék marga leiki á fáum dögum og æfði þess á milli. „Svo þarf ég að koma mér aftur í gang í vinnunni og ganga líka frá skóladótinu mínu en ég var að ljúka prófum.“ Hún er kennari við Barnaskóla Vestmannaeyja og stundar, samhliða vinnunni, fjar- nám við Kennaraháskóla Íslands. Elísa er borin og barnfædd í Vestmannaeyjum og líður best þar í bæ. Kvöldunum ver hún vanalega heima fyrir, við sjónvarpsgláp eða lestur. Hún segir lítið um kaffi- húsaferðir í Eyjum en bregður sér stundum í molasopa þegar hún er í Reykjavík. „Þetta verða að mestu róleg- heit, ef undan er skilið lokahóf HSÍ sem verður á Broadway á miðviku- dagskvöldið. Við Eyjastúlkur ætlum auðvitað að fjölmenna þangað,“ segir hún. Þar þarf hún samt að ganga hægt um gleðinnar dyr því daginn eftir verður hún viðstödd skírn bróðurdóttur sinnar í Vestmannaeyjum. Þeirri stuttu verður gefið nafnið Bertha og gegnir Elísa ákveðnum skyldum við athöfnina því hún er skírnar- vottur. ■ Vikan sem verður ELÍSA SIGURÐARDÓTTIR ■ fyrirliði Íslandsmeistara ÍBV í handbolta. Landsleikur, lokahóf og skírn ELÍSA SIGURÐARDÓTTIR Varð Íslandsmeistari í handbolta í síðustu viku. Fer á völlinn, Broadway og í skírn í þessari viku. Hélt í flugmann til að forðast vændiskonur RAGNHEIÐUR ELÍN CLAUSEN Ætlar meðal annars að viðra hundana Krummu og Hrímu á afmælisdaginn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN JÓHANNESSON Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis að Laugavegi 85, Reykjavík Guðbjörg Björnsdóttir Arndís H. Björnsdóttir Jóhanna G. Björnsdóttir Tryggvi Eyvindsson Hildur Björnsdóttir Ólöf S. Björnsdóttir Magnús Kristmannsson Arinbjörn Björnsson afabörn og langafabörn sem lést fimmtudaginn 6. maí, sl. verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju, mánudaginn 17. maí kl. 15:00. Þeir sem vildu minnast hans er bent á að láta Dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, Reykjavík, njóta þess. AFMÆLI RAGNHEIÐUR ELÍN CLAUSEN ■ er 36 ára í dag en hún segir eftir- minnilegasta afmælisdaginn hafa verið í Herbert Strasse í Hamborg. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.