Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 68 stk.
Keypt & selt 19 stk.
Þjónusta 25 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 8 stk.
Tómstundir & ferðir 9 stk.
Húsnæði 31 stk.
Atvinna 17 stk.
Hvernig verður maður auglýsingateiknari?
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er sunnudagurinn 16. maí,
137. dagur ársins 2004.
Reykjavík 4.08 13.24 22.42
Akureyri 3.33 13.09 22.47
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég hafði unnið við skrifstofustörf hjá Ísaga
í mörg þegar mér gafst tækifæri til að
breyta til og fá nýtt starf innan fyrir-
tækisins,“ segir Mjöll Hólm, starfsmaður á
rannsóknarstofu Ísaga sem er fyrirtæki sem
framleiðir og selur ýmsar lofttegundir til
notkunar í iðnaði, heilbrigðisþjónustu og
rannsóknum.
„Starf mitt felst í því að sannreyna inni-
hald þeirra loftegunda sem notaðar eru við
heilbrigðisþjónustu og matvæla- og gos-
drykkjaframleiðslu,“ segir Mjöll sem sér
meðal annars um að gæðaprófa allt það
koldíoxíð sem fer í gosdrykki landsmanna.
Hún náði sér í menntun hjá Iðntæknistofnun
til þess að geta fullnægt þeim kröfum sem
gerðar eru til starfsmanns sem vinnur við
gæðaeftirlit. „Þetta er starfstengt nám fyrir
aðstoðarmenn á rannsóknarstofum. Náms-
efnið felur í sér ýmislegt sem tilheyrir slíku
starfi eins og til dæmis efnafræði,
örverufræði, matvælafræði, gæðastjórnun
og fleira,“ segir Mjöll.
Starfið segir hún vera algera byltingu frá
fyrra starfi þó hún sé enn á sama vinnustað.
„Ég fæst við stór og þung hylki sem inni-
halda mismunandi lofttegundir auk þess tek
ég sýni úr stórum tönkum. Þetta reynir
talsvert á kraftana og sumir myndu segja
mig fara öfugt að þessu þar sem ég ætti í
raun að byrja á svona starfi og enda sitjandi
við tölvuna,“ segir Mjöll hlæjandi.
„Þetta er óvenjulegt starf og verulega
spennandi að takast á við það. Auk þess eru
starfsmennirnir sem ég umgengst allir upp
til hópa mjög skemmtilegir.“ ■
Gæðaprófar gosdrykki:
Óvenjulegt og
spennandi starf
atvinna@frettabladid.is
55 milljónum var úthlutað úr
starfsmenntasjóði félagsmála-
ráðuneytisins þegar ráðuneytið
úthlutaði styrkjum til starfsmennt-
unar í atvinnulífinu 55 verkefni
hlutu styrki. Meðal þeirra sem
hlutu styrk voru SVÞ (Samtök
verslunar og þjónustu) sem fengu
2,5 milljónir til námsbrautar fyrir
verslunarfólk, Með námsbrautinni
er verið að bæta úr mjög brýnni
þörf fyrir starfstengt nám í einni
fjölmennustu starfsgrein á land-
inu. Til úthlutunar að þessu sinni
voru 55 milljónir. Alls sóttu 69 um
styrk samtals að upphæð krónur
206.398.680 til 94 verkefna og 45
aðilar fengu úthlutað samtals
styrk að upphæð kr. 55.375.000
til 55 verkefna. Frá árinu 1992
hefur Starfsmenntaráð veitt
tæplega 650 milljónum króna til
nálægt 800 starfsmenntunar-
verkefna sem hafa það að mark-
miði að efla hæfni starfsfólks og
styrkja stöðu atvinnugreina og
fyrirtækja hér á landi.
Flestir vilja færa frídaga að
því er fram kemur í þjóðarpúlsi
Gallups, það er að segja frídaga á
borð við sumardaginn fyrsta og
uppstigningardag. Þjóðarpúlsinn
sýnir að helmingur landsmanna
vill færa dagana þannig að þeir
verði hluti af langri helgi, en
þannig nýtist helgin betur vinnan-
di fólki. Til viðbótar vilja 10
prósent einungis færa sumar-
daginn fyrsta og 2,5 prósent vilja
aðeins færa uppstigningardag. Því
vilja alls um 62 prósent færa til
báða eða annan daginn. Um 38
prósent vilja enga breytingu á
þessum rótgrónu frídögum.
Mjöll Hólm gæðaprófar lofttegundir á rannsóknarstofu.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR ATVINNU
Montana tjaldvagnar
Árg. 1998 og 1999 Fortjald og fl. Verð:
350-370.000 Til sýnis hjá Evró, sími
533-1414
VW Passat 1600. Árg. ‘99. Ek. 91 þ. Fal-
legur bíll í toppviðhaldi, þjónustubók,
ný tímareim, nýskoðaður ofl. Bílalán
340 þ. Verð aðeins 990 þ. S. 695 1198
& 567 9898.
ísbjarnarskinn. Verð frá kr. 190.000-
250.000 Upprunavottorð (Ex-
port/CITES) Uppl. 8925556
(kulusuk@greennet.gl)
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.