Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 21

Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 21
ATVINNA Í BOÐI: Bakarameistarinn ehf. Suðurveri óskar eftir fólki í eftirfarndi störf til frambúðar: 1. Bakari: Óskum eftir lærðum bakara til starfa sem fyrst. Þarf að geta unnið sjálfstætt og vera vanur öllum verkþáttum baksturs. Vinnutími: breytilegur. 2. Aðstoð í framleiðslusal: Vinnusvið: Almenn aðstoð við bakara í framleiðslusal. Vinnutími : breytilegur. Allar nánari upplýsingar gefur, Óttar Sveinsson framleiðslustjóri í síma: 864-7733 Office1 leitar að sölustjóra fyrirtækjaþjónustu Fyrirtækjaþjónusta Office1 selur ritföng, rekstrarvöru og tölvu- og jaðarbúnað til fyrirtækja og stofnana um land allt. Við leitum að hæfum einstaklingi til að stýra hóp reyndra sölumanna á fyrirtækjamarkaði. Sölustjórinn ber ábyrgð á verkefnastýringu og árangri hópsins í heild. Hann er ábyrgur fyrir að veita viðskiptavinum fyrirtækjaþjónustu framúrskarandi þjónustu og leitast við að tryggja gæði í sölu og ráðgjöf. Nauðsynleg reynsla og þekking • Góð reynsla af sölu- og þjónustustörfum á fyrirtækjamarkaði • Góð þekking og áhuga á skrifstofu- og rekstrarvöru og tölvubúnaði. Menntun • Stúdentspróf eða sambærilegt framhaldsnám að lágmarki er æskilegt en ekki skilyrði Við leitum að jákvæðu fólki með ríka þjónustugleði og hæfni í mannlegum samskiptum. Mikilvægt er að sýna frumkvæði til verka, vera árangursdrifinn auk þess að hafa tileinkað sér skipuleg og vönduð vinnubrögð. Nánari upplýsingar og umsóknir með ferilskrá sendist á annabirna@office1.is Umsóknarfrestur er til 24. maí 2004. Sölustjóri Deildastjóri Kaupfélag Vestur Húnvetninga óskar eftir að ráða deildastjóra afurðasviðs. Starfið fellst í umsjón með rekstri sláturhúss og kjötvinnslu sem rekin er á Hvammstanga. Helstu starfsþættir eru: · Starfsmannastjórnun · Framleiðsluskipulagning · Umsjón með kostnaðarbókhaldi · Markaðssetning og sala · Móttaka gesta Hæfniskröfur: Menntun í kjötiðnaði/matvælaiðnaði Gott vald á ensku Tölvukunnátta (s.s. excel og Navision Financials) Góðir samskiptahæfileikar Menntun og eða reynslu í rekstri og stjórnun Starfið er mjög fjölbreytt og krefst frumkvæðis. Leitað er að liprum en ákveðnum starfsmanni. Kaupfélag Vestur Húnvetninga á og rekur mjög öflugt sláturhús á Hvammstanga sem hefur útflutningsleyfi til Evrópu og Bandaríkjanna. Þá er félagið stór hluthafi í kjötvinnslunni Norðan heiða ehf. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar á netfangið vk@kvh.is merkt “afurðasvið” fyrir 20. maí. Kaupfélag Vestur Húnvetninga svf. Strandgötu 1 530 Hvammstanga Þjónustufyrirtæki á sviði Internetlausna óskar að ráða sölumann / sölustjóra. Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af sölu á Internetþjónustu og tölvulausnum. STARFSVIÐ Sala og ráðgjöf á net- og tölvulausnum Tilboðs- og samningagerð Uppbygging viðskiptatengsla Þátttaka í vöruþróun ofl. Önnur verkefni t.d. á sviði markaðs- kynningar og sölumála. HÆFNISKRÖFUR Söluhæfileikar. Góð tölvu og Internet kunnátta nauðsynleg. Bílpróf er skilyrði. Áhersla er lögð á að viðkomandi sé stund- vís, heiðarlegur, sjálfstæður, skapandi og jákvæður. Reynsla af sölustörfum nauðsynleg. Góðir samskiptahæfileikar. Umsókn skal senda með tölvupósti á póstfangið sala2004@vortex.is - merkt: Sölumaður Grunnskóli Grindavíkur Eftirfartalin störf eru laus til umsóknar frá 1. ágúst nk. Starf íþróttakennara, 100 % starf Starf námsráðgjafa, 75 % starf Upplýsingar um ofangreind störf veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í síma 420-1150, netföng gdan@ismennt.is og mariam@ismennt.is. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Skólastjóri M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 • Opin virka daga kl. 12-14 • www.redcross.is/kopavogur Börn og umhverfi (áður barnfóstrunámskeið) Námskeiðið er fyrir einstaklinga á aldrinum 12-15 ára og kennt er í Hamraborg 11, 2. hæð. Fyrsta námskeiðið fer fram 19., 21., 24. og 25. maí kl. 17-20 alla dagana. Skráning eigi síðar en 17. maí. Annað námskeiðið fer fram 2., 3., 7. og 8. júní kl. 17-20 alla dagana. Skráning eigi síðar en 28. maí. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn. Rætt er um árangursrík sam- skipti, leiðtogahæfni, agastjórnun, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Fjallað er um slysavarnir og algengar slysahættur og veitt ítarleg kennsla í skyndihjálp. Þátttakendur fá innsýn í sögu og starf Rauða krossins. Námskeiðsgjald: 5.300 kr. Innifalin eru námskeiðsgögn og bakpoki með skyndihjálparbúnaði. Skráning: Í síma 554 6626 eða á kopavogur@redcross.is ATVINNA Ljósafossskóli Lausar stöður Ljósafossskóli auglýsir eftir kennurum til að annast kennslu í 1.-7. bekk næsta vetur. Einnig eru lausar til umsóknar tvær 90% stöður skólaliða og staða matráðs við skólann. Ljósafossskóli er fámennur sveitaskóli með um 35 nemendur í 1.-7. bekk. Gott húsnæði á staðnum. Frá skólanum tekur um klukkustund að aka til Reykjavíkur. Umsóknarfrestur er til 20. maí Nánari upplýsingar veitir skólastjóri Daði Ingimundarson í síma: 895 8401 netfang dadi@ismennt.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.