Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 35

Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 35
bjarga nema um hundrað manns, sem að öðrum kosti færu á bætur, geðlyf, þunglyndislyf og svo fram- vegis, myndum við spara þjóðfélag- inu mikla peninga.“ Júlíus vinnur nú af fullum krafti við að koma Samtökum áhugafólks um spilafíkn á fót. Samtökin hafa þegar komið sér fyrir í húsnæði við Dugguvog 17–19 en þau bjóða einnig upp á sálfræðiaðstoð og fjárhagsráðgjöf fyrir spilafíkla og aðstandendur þeirra. Samtökin hafa einnig opn- að heimasíðu þar sem hægt er að fá nánari upplýsingar um þau en slóðin er: spilavandi.is kristjan@frettabladid.is SUNNUDAGUR 16. maí 2004 Tapasveislur og tertur við öll tækifæri Útskriftarveislan þín er í öruggum höndum hjá Kökumeistaranum Miðvangi 41 Sími 555 6655 Um 50–60 ný tilfelli spilafíklaleita eftir meðferð á Vogi á ári hverju og eru spilafíklar um 8–10% af þeim sem leita eftir meðferð þar. Samkvæmt skilgreiningu SÁÁ eru spilafíklar þeir sem hafa misst stjórn á hegðun sinni þegar spil eru annars vegar. „Það er leitast eftir ákveðnum einkennum í fari fólks og ef þau eru nógu mörg er greiningin feng- in,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, um skilgrein- inguna á spilafíkli. „Ef slíku fólki er fylgt eftir kemur í ljós að vand- inn er þrálátur og það þarf að koma til meiriháttar inngrips svo hægt sé að stoppa það.“ Að sögn Þórarins er það alls konar fólk sem leitar eftir með- ferð við spilafíkn – allt frá tekju- miklu fjölskyldufólki til tekju- lítilla einstaklinga. Betur má ef duga skal Á Vogi hefur verið unnið að uppbyggingu meðferðarúrræða fyrir spilafíkla í ein fimmtán ár. Margt hefur áunnist á þeim tíma en betur má ef duga skal. „Við erum alls ekki ánægð með hvaða úrræði við bjóðum sjúklingunum upp á. Það eru margar ástæður fyrir því til dæmis tímaskortur, fyrirhöfnin við að þróa meðferðarúrræði og svo að fá fólk til að leita eftir meðferð,“ segir Þórarinn en fyrstu árin sem boðið var upp á meðferð við spilafíkn var eftir- spurnin lítil sem engin. „Samt hefur breiddin orðið miklu meiri frá því að við byrjuðum. Við höf- um einnig verið að læra hvernig sjúklingar spilafíklar eru og nú höfum við hóp starfsmanna sem hefur þekkingu á þessu máli. Við höfum einnig náð okkur í þekk- ingu erlendis frá og þróað ákveð- in úrræði.“ Alsherjarmeðferð nauðsynleg Að sögn Þórarins þurfa spilafíklar á allsherjarmeðferð að halda líkt og fíkniefnaneytendur. „Það er ekki nóg að tala bara við einn mann á stofu út í bæ. Það þarf fjölbreyttara inngrip og hóp starfsmanna sem kemur að mál- inu. Hópurinn verður að búa yfir ákveðinni þekkingu og það þarf að vera til aðstaða þar sem hægt er að veita fólki aðstoð á ýmsum stigum vandans,“ segir Þórarinn. „Það þarf talsverð mikil inngrip, breytingar á hegðun, hugsunar- hætti og viðhorfum. Síðan þarf að halda því við eins lengi og menn eru lifandi.“ Þórarinn segir að ýmis samtök spilafíkla séu til sem veiti ágætt aðhald í meðferðinni. Sumir kjósa þó aðrar aðferðir til dæmis viðtöl. „En við ráðleggjum öllum sem leita á Vog að njóta þeirrar með- ferðar sem við bjóðum upp á. Það er ákveðið inngrip með fræðslu, viðtalsmeðferð og hópmeðferð sem miðar að því að kenna fólki að fást við sína fíkn, hvað geti komið fíkninni af stað og hvernig fólk eigi að ráða við hana. Síðan er fólki kennt að styrkja sjálft sig og breyta sínu lífsmynstri eins og það óskar eftir til að fá varanlegan og góðan bata. Við ráðleggjum fólki líka að stunda hliðarsamtök- in af miklu kappi,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. ■ ÞÓRARINN TYRFINGSSON Yfirlæknirinn á Vogi segir að meðferðar- úrræði sem boðið er upp á fyrir spilafíkla séu ekki nægilega góð. Sextíu ný tilfelli á hverju ári NÁMSKEIÐ UM SPILAFÍKN Á þriðjudag hefst námskeið hjá Sam- tökum áhugafólks um spilafíkn fyrir að- standendur spilafíkla. Námskeiðið verð- ur haldið í húsnæði samtakanna að Dugguvogi 17–19. Samtökin bjóða ein- nig upp á sálfræði- og fjármálaþjón- ustu. Skrifstofa félagsins er opin frá 10–12 og 13–17. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T JÚLÍUS VIÐ SPILAKASSANN Júlíus var spilafíkill í ein fimmtán ár. Hann eyddi heilu og hálfu dögunum við kassana og glataði umtalsverðum fjárhæðum. Í desember í fyrra vatt hann kvæði sínu í kross.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.