Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 39
27SUNNUDAGUR 16. maí 2004
RALL Finninn Marcus Grönholm, á
Peugeot, er fyrstur í Kýpurrallinu
fyrir lokadaginn. Grönholm er
22,9 sekúndum á undan Frakkan-
um Sebastien Loeb sem ekur á
Citroen. Eistlendingurinn Markko
Martin, á Ford, er þriðji, 10,5 sek-
úndum á eftir Loeb.
Grönholm var sáttur en varkár
eftir ágætt dagsverk. „Ég ætla
bara að einbeita mér að því að
keyra af öryggi og passa upp á bíl-
inn. Ég er ángæður en morgun-
dagurinn er eftir.
Heimsmeistarinn Petter Sol-
berg sigraði á þremur sérleiðum,
Sebastien Loeb á tveimur en
ellefta sérleiðin, milli Foini og
Koilinia, var felld niður af örygg-
isástæðum. Áhorfendur voru of
nálægt þeim stað þar sem kepp-
endur óku yfir ánna Gellefos.
Föstudagurinn reyndist Solberg
erfiður svo góður árangur í gær
dugði aðeins til að lyfta honum
upp í áttunda sætið. Hann er
9.30,5 mínútum á eftir Grönholm.
Kýpurrallinu lýkur í dag og þá
verða eknar sex sérleiðir sem
samtals eru 95,34 kílómetrar. ■
Kýpurrallið:
Grönholm fyrstur
fyrir lokadaginn
MARCUS GRÖNHOLM
Fyrstur eftir tveggja daga
keppni á Kýpur.
Umspil í 1. deild:
Ipswich
vann
FÓTBOLTI Ipswich sigraði West
Ham 1-0 í fyrri viðureign þeirra í
keppni fjögurra félaga um sæti í
úrvalsdeildinni á næsta ári.
Darren Bent skoraði eina mark
leiksins á 57. mínútu. Félögin
leika að nýju á mánudag en sigur-
vegarinn leikur til úrslita við
Sunderland eða Crystal Palace
laugardaginn 29. maí.
Hartlepool United og Bristol
City gerðu jafntefli í umspili 2.
deildar. Þau mætast að nýju í
Bristol á miðvikudag en Brighton
og Swindon leika fyrri leik sinn í
dag.
Í umspili 3. deildar vann Hudd-
ersfield Lincoln 2-1 á útivelli.
Félögin mætast að nýju á
miðvikudag en í dag leika Mans-
field og Northampton. ■
HANDBOLTI Danir sigruðu Íslendinga
34-31 í vináttulandsleik í íþrótta-
húsi Seltjarnarness í gær. Íslenska
liðið lék mjög vel og leiddi mestan
hluta leiksins en gaf eftir á
lokakaflanum.
Þær íslensku skoruðu tvö fyrstu
mörkin og héldu forystunni allan
fyrri hálfleikinn. Munurinn var
jafnan eitt til tvö mörk en þegar
dró nær hléi náðu þær nokkrum
sinnum fjögurra marka forskoti.
Staðan í leikhléi var 16-13 Íslend-
ingum í vil.
Þær dönsku byrjuðu seinni hálf-
leikinn af krafti og eftir tæpar
þrjár mínútur var munurinn orðinn
eitt mark, 17-16. Þremur mínútum
síðar jöfnuðu þær síðan í fyrsta
sinn, 19-19, en Íslendingar náðu
frumkvæðinu að nýju og höfðu for-
ystu fram í miðjan háfleikinn þegar
Danir komust yfir í fyrsta sinn. Ís-
lendingar leiddu 29-27 þegar tíu
mínútur voru til leiksloka þá gerðu
Danir fjögur mörk í röð. Kristín
Guðmundsdóttir náði að minnka
muninn í 31-30 og Berglind Hans-
dóttir varði vítakast í næstu sókn.
Íslendingum tókst hins vegar ekki
að fylgja þessu eftir og Danir bættu
við forskotið og sigruðu 34-31.
Kristín Guðmundsdóttir átti
mjög góðan leik og skoraði tíu mörk
úr tólf skotum. Dagný Skúladóttir
skoraði fimm, Inga Fríða Tryggva-
dóttir fjögur, Hrafnhildur Skúla-
dóttir þrjú, Jóna Margrét Ragnars-
dóttir, Hanna G. Stefánsdóttir og
Rakel Dögg Bragadóttir tvö hver
og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og
Guðrún Hólmgeirsdóttir eitt hvor.
Berglind Íris Hansdóttir varði
tólf skot, þar af eitt víti, og Helga
Torfadóttir varði fjögur skot.
Tine Ladefoged skoraði níu
mörk fyrir Dani, þar af fjögur úr
vítaköstum, og Rikke Nielsen sex
og fyrirliðinn Heidi Johansen
skoraði fimm mörk. ■
A-landslið kvenna í handbolta:
Þriggja marka tap fyrir Dönum
KRISTÍN GUÐMUNDSDÓTTIR
Skoraði tíu mörk gegn Dönum í gær.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FÓTBOLTI Fyrstu umferð Lands-
bankadeildar karla lýkur í dag
með fjórum leikjum. Þrír hefjast
klukkan 14 en leikur Fram og Vík-
ings hefst á Laugardalsvelli
klukkan 19.15.
Víkingar geta teflt fram sínu
sterkasta liði en ólíklegt er að Rík-
harður Daðason og Baldur
Bjarnason leiki með Frömurum í
kvöld. Þorvaldur Makan Sig-
björnsson, Andri Steinn Birgisson
og Andri Fannar Ottósson hafa
einnig átt við meiðsli að stríða en
þeir verða líklega leikfærir í
kvöld.
Grindavík og ÍBV leika í
Grindavík. Félögin áttu í fall-
baráttu í fyrra og samkvæmt spá
fyrirliða, þjálfara og forráða-
manna félaganna í Landsbanka-
deildinni bíður sama barátta
þeirra í sumar. Albert Sævarsson
og Grétar Ólafur Hjartarson leika
að nýju með Grindvíkingum. Al-
bert lék í Færeyjum í fyrra en
Grétar missti af leiktíðinn í fyrra
vegna meiðsla. Paul McShane er
meiddur á rist og missir af
leiknum í dag.
Óvíst er hvort Þórður Þórðar-
son geti leikið með Skagamönnum
gegn Fylki í dag. Haraldur Ing-
ólfsson leikur hins vegar sinn
fyrsta deildarleik með Skaga-
mönnum síðan 1997.
Guðni Rúnar Helgason og
Björgólfur Takefusa leika með
Fylki í fyrsta sinn en Ólafur Stígs-
son leikur að nýju með Árbæing-
unum eftir tveggja ára vist hjá
Molde í Noregi. Fylkismenn sakna
hins vegar Hauks Inga Guðnason-
ar og Hrafnkels Helgasonar sem
eru meiddir og missa líklega af
allri leiktíðinni.
Ólafur Gottskálksson leikur
með Keflavíkingum í fyrsta sinn
síðan 1997 þegar Keflavík mætir
KA á Akureyri. Ólafur verður á
kunnuglegum slóðum því hann
varði mark KA árið 1987. Sandor
Matus, Kristján Elí Örnólfsson og
Jóhann Þórhallsson leika með KA
í fyrsta sinn en Atli Sveinn Þórar-
insson lék síðast með KA árið
1999 þegar KA var í 1. deild. ■
HARALDUR INGÓLFSSON
Lék síðast með Skagamönnum árið 1997.
Landsbankadeild karla:
Fjórir leikir í dag
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Þ
Ö
K