Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 46

Fréttablaðið - 16.05.2004, Side 46
Þetta kom mér algerlega áóvart, ég átti alls ekki von á þessu,“ segir Guðbjörn Guð- björnsson óperusöngvari, sem ný- lega var settur deildarstjóri í toll- gæslunni við Keflavíkurflugvöll. „En það er ekki búið að skipa mig. Ég var bara settur deildar- stjóri til áramóta. Svo verður starf- ið auglýst og auðvitað vonast ég til að eiga þá einhverja möguleika.“ Guðbjörn hóf störf hjá tollinum á Keflavíkurflugvelli árið 1998, þegar hann kom heim eftir að hafa sungið við þýsk óperuhús í ein tíu ár. Ósköp hversdagslegur ofnæm- iskvilli kippti fótunum algerlega undan glæsilegum óperuferli og hann átti ekki annars úrkosta en að koma heim að leita sér að vinnu. „Þetta var bara þetta venjulega frjókornaofnæmi sem svo margir eru með. Þó maður geti sinnt allri venjulegri vinnu þá hefur það gíf- urleg áhrif á sönginn,“ segir Guð- björn, en tekur fram að þótt rödd- in standi ekki undir því álagi sem fylgir föstu starfi í óperunni láti hann sig ekkert muna um að syngja einsöng á tónleikum við og við. Síðast kom hann fram með Samkór Kópavogs á tónleikum nú í byrjun vikunnar. „Ég er að syngja einhvers stað- ar opinberlega einu sinni eða tvisvar í mánuði, þannig að ég er hreint ekkert hættur.“ Í tollinum er Guðbjörn nú yfir- maður í fraktdeildinni, þar sem fylgst er grannt með öllum inn- flutningi sem kemur um Keflavík- urflugvöll. „Þetta er allt grænmetið sem kemur til ykkar og svo er fólk far- ið að flytja allar tölvur og aðra tækni með flugi. Fólk áttar sig oft ekki á því hvað það hefur verið gífurlega hröð þróun í flugfragt undanfarið. Aukningin hefur ver- ið 15-20 prósent á hverju ári. Þetta eru fleiri fleiri vélar á dag sem eru að koma.“ Guðbjörn hefur mörg járn í eldinum. Fyrir utan tollinn er hann að kenna söng í Nýja söng- skólanum „Hjartans mál“, sem hefur aðstöðu í tónlistarhúsinu Ými við Skógarhlíð. „Ég fékk leyfi til þess hjá sýslu- manninum að kenna með vinnu, en er samt bara með örfáa nemendur. En það gefur mér óskaplega mikið og ég get ekki hugsað mér að sleppa hendinni af því.“ Þar að auki hefur hann verið í Háskóla Íslands þar sem hann er langt kominn með BA-nám í þýsku. „Ég á bara eftir BA-ritgerðina. Ég ætlaði að skila henni inn í vor en þessi stöðuhækkun setti strik í reikninginn. En ég ætla að klára ritgerðina í sumarfríinu og út- skrifast svo fyrir næstu jól með BA-próf.“ ■ 34 16. maí 2004 SUNNUDAGUR ■ FRÉTTIR AF FÓLKI Þrátt fyrir að gríðarleg spennasé í kringum Ólaf Ragnar Grímsson forseta þessa dagana tengist hún í engu væntanlegum forsetakosningum. Þrír hafa þó lýst því yfir að þeir hyggist ná fun- heitum forsetastólnum af Ólafi í kosningunum en allir virðast þeir eiga býsna langt í land. Það sem hefur vakið einna mesta eftirtekt við mótframbjóðendurna er að þeir virðast ekki neitt sérstaklega spenntir fyrir íslenskum konum og því eru hverfandi líkur á að ís- lensk kona taki við húsfreyjuhlut- verkinu á Bessastöðum. Snorri Ás- mundsson hefur að vísu ekki flaggað neinni konu í sinni baráttu en Baldur Ágústsson á enska eig- inkonu, Jean, og Ástþór Magnús- son hefur, sem kunnugt er, bundið trúss sitt við hina rússnesku Natalíu Wium. Þessum heiðurs- konum bíður svo það erfiða verk- efni að sækja að Dorrit frá Ísrael á meðan íslenskar valkyrjur fylgj- ast með af hliðarlínunni. SÖNGELSKUR TOLLVÖRÐUR GUÐBJÖRN GUÐBJÖRNSSON ■ tenórsöngvari hlaut nýlega stöðuhækkun í tollinum á Keflavíkur- flugvelli, þar sem hann er nú yfirmaður í fraktdeildinni. Minn fyrirmyndarfrídagur erfyrir framan sjónvarpið að horfa á knattspyrnuleik. Maður er kröfuharður og vill helst horfa á úrslitaleiki með KR,“ segir - Elísabet Jökulsdóttir rithöf- undur. „Ég hlakka mikið til þegar EM byrjar. Þá verða allir dagar frídagar. Áhorfi eins og því fylgir djúp slökun. Það getur líka verið mjög gam- an að fara með barnabörnin út í Gróttu og heyra snjallyrði af þeirra munni og verða vitni að því hvernig þau upplifa heiminn. Á frídögum vil ég líka gjarnan vera uppi á öræfum. Þá er eins og maður sé lítill guð á stjákli. Mað- ur er síundrandi og glaður. Þar mætir maður sjálfum sér. Síðast þegar ég fór í öræfaferð hugsaði ég stöðugt um mann sem ég var skotin í og það var ekki fyrr en ég fór yfir Vatnajökul að mér tókst að hætta að hugsa um hann, svo hættulegt var það ferðalag. Elísabet segir að sér hafi alltaf þótt erfitt að fara í frí. „Mér finnst mjög gaman að vinna og þurfti að læra að fara í frí og vera ekki að gera eitthvað óskaplega mikið. Það er helst að knatt- spyrna, barnabörnin og hálendis- ferðir geti dregið mig í frí.“ ■ FRÍDAGURINN ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR ■ vill helst eyða frídeginum fyrir framan sjónvarpið þegar góður fótboltaleikur er á dagskrá. Knattspyrnudagar eru frídagar Söngelskur tollari skoðar grænmeti HREINT EKKI HÆTTUR AÐ SYNGJA Guðbjörn Guðbjörnsson, deildarstjóri í tollinum á Keflavíkurflugvelli. -lang heitastir Háteigsvegi 7 105 Reykjavík Sími: 511 1100 Fax: 511 1110 www.ofn.is ofnasmidjan@ofn.is Heitir fallegir og Ofnar Ofnlokar Handklæðaofnar Sérpantanir ■ HRÓSIÐ ... fær Friðrik krónprins fyrir að sýna tilfinningar, eins og sannur karlmaður, og fella tár þegar hann stóð andspænis glæsilegri brúði sinni. ELÍSABET JÖKULSDÓTTIR Það er helst að knattspyrna, barnabörnin og hálendisferð- ir geti dregið mig í frí.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Elín Ebba Ásmundsdóttir fékká dögunum aðalviðurkenningu Brautargengis, námskeiðs á veg- um Impru fyrir konur sem luma á viðskiptahugmyndum. Hún var með áætlun sem lýsir stofnun fyr- irtækis sem hún nefnir Hlut- verkasetrið. Hugmyndin lýsir vinnustað geðsjúkra á batavegi og fagfólks þar sem ákvarðanir eru teknar í sameiningu með það að markmiði að auka virkni einstak- linga með geðsjúkdóma og að fleiri taki virkan þátt í samfélag- inu og snúi frá sjúklingshlutverk- inu. „Það sem kom mér út í þetta er að ég er í samstarfi við Auði Ax- elsdóttur iðjuþjálfa hjá Heilsu- gæslunni og Hugarafli, sem er hópur geðsjúkra í bata sem vilja hafa áhrif á geðheilbrigðisþjón- ustuna. Í fyrrasumar vantaði okk- ur verkefni þegar ég sá að í tilefni Evrópuárs fatlaðra var verið að leita eftir hugmyndum til að styrkja. Þá kviknaði hugmyndin um Hlutverkasetur sem byggist á notendarannsóknum á reynslu geðsjúkra sem virka í bata. Fyrir þessa hugmynd fengum við hálfa milljón.“ Í framhaldi af því segir Ebba að hún hafi farið á námskeið Impru til að læra að gera við- skiptaáætlun til að koma hug- myndinni í framkvæmd. „Það að viðskiptaáætlunin fékk svona góðan grunn gefur okkur brautar- gengi til áframhaldandi sigra. Þetta er fyrst og fremst sigur fyr- ir geðsjúka, því áætlunin byggir á því að virkja þá og með því að við- urkenna áætlunina er verið að segja að þeir hafi líka trú á geð- sjúkum.“ Viðskiptaáætlunin á ekki að enda ofan í skúffu, heldur eru Ebba og félagar í viðræðum við ýmsa að- ila um að hrinda henni í fram- kvæmd. „Nú er spurningin hver hoppar fyrst á hugmyndina.“ ■ Sigur fyrir geðsjúka VERÐLAUN ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR ■ Hlaut aðalviðurkenningu Brautargengis. VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR, SIGRÚN RAFNSDÓTTIR OG ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR Verðlaunahafar Brautargengis ásamt viðskipta- og iðnaðarráðherra.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.