Fréttablaðið - 16.05.2004, Síða 47
SUNNUDAGUR 16. maí 2004
es.xud.www
21:21 XUD
Sænsk hágæðarúm The
DUX® Bed
m a d e i n S w e d e n
„Áratuga reynsla á Íslandi“
DUXIANA
Háþróðaður svefnbúnaður
Ármúla 10 • 108 Reykjavík
Sími: 5689950
7007 XUD
FJÖRUGRJÓT
Listaverk Árna Johnsen eru komin til Stokkseyrar þar sem þau verða
til sýnis á Bryggjunni.
Da Vinci lykillinn heitir bóksem mörgum áskotnaðist um
jólin og hlaut lof gagnrýnenda,“
segir Karl Sigurbjörnsson biskup
í áhugaverðum pistli sem hann
birtir á vefsíðunni kirkjan.is þar
sem hann gerir hina vinsælu
spennusögu Da Vinci lykilinn að
umtalsefni.
Í Da Vinci lyklinum er gengið út
frá kenningum um að María
Magðalena hafi verið eiginkona
Krists og meintir afkomendur
þeirra lenda í ýmsum hremming-
um þegar óprúttnir aðilar leggja
allt í sölurnar til að varðveita
leyndarmálið um kvonfang Krists.
„Bókin er forvitnileg áhuga-
fólki um kristna trú, guðspjöllin
og sögu kirkjunnar, vegna þess
sem þar er haldið fram um tilurð
þessa. Höfundur hennar, Dan
Brown, heldur því fram að sagan
sé byggð á staðreyndum. Hún
stillir okkur þar með upp frammi
fyrir grundvallarspurningum um
rætur vestrænnar menningar.“
Það er skemmst frá því að
segja að biskup hafði gaman af
bókinni en hann dregur þó sann-
leiksgildi kenninganna sem hún
byggir á stórlega í efa. „Góðar
spennusögur eru gulls ígildi. Da
Vinci lykillinn hefur allt til að
bera sem slík,“ segir biskup í lok-
in en bætir við að hann hafi aftur
á móti ekki mikla trú á sagnfræði
skáldsögunnar „... nema þá ef
vera mætti til að vekja athygli á
hinni sönnu og sígildu spennusögu
sem Nýja testamentið segir um
Jesú Krist, Drottinn og frelsara
heimsins“. ■
Da Vinci slær ekki
Nýja testamentið út
BÆKUR
KARL SIGURBJÖRNSSON
■ segir góðar spennusögur gulls ígildi
og hafði gaman af Da Vinci lyklinum og
kann vel að meta þá athygli sem bókin
vekur á sannri og sígildri spennusögu
Nýja testamentisins.
KARL SIGURBJÖRNSSON
Las Da Vinci lykilinn sér til ánægju en
þrátt fyrir mikla spennu telur hann reyfar-
ann ekki toppa spennusögur Biblíunnar.
■ FRÉTTIR AF FÓLKI
Umræður í heitum setlaugumsundlauga eru ágætis mæli-
kvarði á andlegar sveiflur í þjóðlíf-
inu og það hlýtur því að valda for-
ystu Framsóknarflokksins nokkrum
áhyggjum að góðir og gegnir fram-
sóknarmenn sem sækja heitu pott-
ana í Sundlaug Kópavogs íhuga nú
margir að segja skilið við sinn
gamla flokk. Þessar hræringar í
Kópavogspottinum munu þó vart
skipta sköpum fyrir flokkinn þar
sem fjöldi góðra og gegnra fram-
sóknarmanna í þeim potti mun vart
skipta sköpum í kosningum þótt
þeim hafi ítrekað tekist að tryggja
Sigurði Geirdal bæjarstjórastólinn.
Öllu alvarlegra yrði ástandið ef
uppreisnarandinn í Kópavoginum
bærist yfir í Vesturbæjarlaugina í
Reykjavík en í heita
pottinum þar er Jón
Kristjánsson heil-
brigðisráðherra einn
af lykilmönnum
flokksins auk þess
sem sjálfur landbún-
aðarráðherra, Guðni
Ágústsson, á það til
að láta sjá sig til þess að ræða veðr-
ið og margbrotið eðli mannskepn-
unnar. Það myndi því væntanlega
ekki blasa neitt annað en klofningur
við gamla bændaflokknum ef pott-
verjar í Vesturbænum færu að efast
um stefnuna.
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Ítalíu
Steingrímur J. Sigfússon
Daily Mirror