Fréttablaðið - 06.03.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
Efni í leikara
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
23
55
6
03
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
ALVINE ROS efni,
metrinn
590,- 590,- 995,-890,-460,-
BAMBU gardínur
80x180 sm
TILLY ENKEL efni,
metrinn
LILL gardínur
280x300 sm
SARITA gardínur
145x300 sm
690,-
TILLY TRIPPEL efni
Efni í allt
dagana 4/3 - 18/4
Að missa
af lífinu
Ár eftir ár hafði einn háset-anna á togaranum lifað fá-
breyttu og allt annað en nota-
legu lífi. Þetta var á tímum
síðutogara þegar var raun-
verulega kalt á sjónum, öll
vinna unnin án þess að sjó-
mennirnir hefðu skjól. Háset-
inn var elstur allra um borð,
var fáskiptinn, sagði fátt af
sér, skipti sér ekki af hinum,
aldrei. Var orðinn slitinn,
þreyttur en þagði. Félagarnir
vissu lítið um hann. Það sem
þeir vissu var nú þannig að
erfitt var að skilja og jafnvel
enn verra að vita.
ALDREI FÓR hann í frí.
Reri alla túra, allan ársins
hring, ár eftir ár. Alltaf þegar
komið var að landi tók hann
sama leigubílinn, fór í ríkið og
bað um brennivín. Skrúfaði
tappann af fyrstu flöskunni og
henti honum. Það tók því ekki
að loka fyrstu flöskunni. Svo
hratt drakk hann úr henni.
Framhaldið var ekki þekkt,
kannski að leigubílstjórinn
færi nærri um hvað hásetinn
aðhafðist. Aðrir vissu ekkert
og síst hann sjálfur. Alltaf
mætti hann eins til borðs.
Leigubíllinn rann að skipshlið
fimmtán mínútum fyrir brott-
för og hásetinn sté út, dauða-
drukkinn.
ENN OG AFTUR var hann
á sjónum og öllum að óvörum
trúir hann félögum sínum fyr-
ir því að hann eigi dóttur sem
ætli að giftast. Vandinn sé sá
að giftingin verði ekki á sama
tíma og togarinn verði í landi
og þess vegna geti hann ekki
verið við brúðkaupið þrátt
fyrir ítrekaðar óskir dóttur-
innar. Félagarnir kepptust við
að fá hann til að taka frí einn
túr og standa við hlið dóttur
sinnar. Að lokum tók hann
ákvörðun, pantaði frí í fyrsta
sinn í áraraðir.
FRÍTÚRINN rann upp. Þeg-
ar farið var frá bryggju kom
leigubíllinn ekki og hásetinn
ekki heldur. Þrjár vikur liðu
og næst þegar farið var á sjó
endurtók fyrri sagan sig.
Fimmtán mínútum fyrir brott-
för kom leigubíllinn og háset-
inn sté út dauðadrukkinn. Eft-
ir þrjá sólarhringa í hafi,
þegar hásetinn var nálægt því
að ná heilsu, báru félagarnir
loks upp erindið og spurðu
spenntir hvernig hefði verið í
landi. „Blessaðir veriði, ég var
blindfullur báða dagana.“ ■