Fréttablaðið - 13.03.2004, Qupperneq 4
4 13. mars 2004 LAUGARDAGUR
Hefurðu áhyggjur af holdafari
íslenskrar æsku?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að sjá mynd Mel Gibsons um
Píslarsögu Krists?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
19,3%
80,7%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
FJÖLMIÐLAR Íslenska sjónvarpsfé-
lagið, sem rekur Skjá 1, hefur feng-
ið einkarétt á útsendingum frá
ensku knattspyrnunni næstu þrjú
árin. Að sögn Magnúsar Ragnars-
sonar sjónvarpsstjóra á aðeins eftir
að ganga frá tæknilegum atriðum í
málinu en til þess hafa aðilar þrjátíu
daga.
Magnús segir að það hafi komið
forsvarsmönnum Skjás eins nokkuð
á óvart að hafa hlotið samninginn en
ekki hafi verið tekin endanleg
ákvörðun um hvernig dreifingu efn-
isins verði háttað. Hann segir að
breytingar á útsendingu sjónvarps-
efnis úr hliðrænu yfir í stafrænt
kerfi hafi áhrif á þá möguleika.
Að sögn Magnúsar er inni í
myndinni að Skjár einn efni til sam-
starfs við aðra aðila um nýtingu á
réttinum og nefnir hann ríkissjón-
varpið og Símann í því sambandi.
„Og svo er fullkomlega mögulegt að
við förum bara út í þetta sjálfir,“
segir hann.
Sigurður G. Guðjónsson, út-
varpsstjóri Íslenska útvarps-
félagsins, sem rekur Stöð 2 og Sýn,
segir að þar á bæ séu menn enn ró-
legir yfir tíðindunum. Eftir eigi að
ganga frá ýmsum atriðum áður en
samningur Skjás eins og ensku úr-
valsdeildarinnar klárist og ef stað-
an verði sú að enski boltinn hverfi
af dagskrá stöðvanna verði fjár-
hagslegt svigrúm notað til þess að
festa kaup á öðru íþróttaefni. ■
Dráttarskipið nauðsynlegt
Jarle Anderson hjá Marine Products segir norska dráttarskipið nauðsynlegt til
björgunarinnar. Reynt verður að toga Baldvin á flot í dag.
STRAND Fjöldi manna vann við að
undirbúa björgunaraðgerðir í gær
auk þess að bæði þyrla Land-
helgisgæslunnar TF-SIF og þyrla
frá varnarliðinu unnu að því að
flytja búnað um borð í norska
dráttarskipið og í Baldvin Þor-
steinsson. Jarle Anderson hjá
Marine Products segir sig hafa
séð nokkur skipströnd en segir
sjaldgæft að brimið nái svo langt
út á sjó og það muni gera tog
Baldvins Þorsteinssonar erfitt.
Auk þess setji veðrið svip sinn á
björgunaraðgerðir. Hann segist
þó vera bjartsýnn á að það takist
að ná skipinu út í dag. Helstu
verkefni gærdagsins voru að
koma búnaði yfir í dráttarskipið
og Baldvin. Hann segir ekki víst
að loðnunni verði dælt úr skipinu
því rétt sé að reyna að toga
Baldvin fyrst með hana innan-
borðs. Ef það gangi ekki sé alltaf
hægt að dæla henni frá borði. Að-
spurður um hvort nauðsynlegt
hafi verið fyrir Samherja að fá
norska dráttarskipið til verksins
svaraði Anderson því játandi.
Anderson segir að tógið sem
Marine Products eigi muni hjálpa
til við dráttinn. Tógið er 155 milli-
metrar í þvermál og hefur 800
tonna togþol. Þá segir Anderson
lykilinn að því að svona björgun-
araðgerð takist vera góða áætlun,
góð tæki og góðan mannskap.
Þyrla varnarliðsins varð að
flytja eina togrúlluna yfir í
dráttarskipið vegna þyngdar
hennar.
„Ég treysti þessum mönnum
alveg hundrað prósent. Ég var
bara að aðstoða við að setja fest-
ingarnar á rúlluna og var bara
næsti maður og hoppaði upp á,“
sagði Kristján Vilhelmsson, en
hann festi stóra togrúllu í þyrlu
varnarliðsins á meðan hún sveim-
aði rétt yfir höfði hans. Kristján
sagðist vonast til að veður yrði
þeim hagstæðara í dag þar sem
það væri eina aflið þessa stundina
sem þeir réðu ekki við.
hrs@frettabladid.is
Umferð
bönnuð
STRAND Vegna strands Baldvins
Þorsteinssonar í Skarðsfjöru,
hefur sýslumaðurinn í Vestur-
Skaftafellssýslu bannað alla
óviðkomandi umferð inn á
björgunarsvæðið af öryggis-
ástæðum. Bannið gildir frá og
með deginum í dag, laugardegi
og þar til annað verður ákveð-
ið. ■
ÞYRLA Í VIÐGERÐ
Flugvirkjar að störfum í flugskýli Land-
helgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan:
Önnur
þyrlan biluð
STRAND TF-LIF, stærri þyrla
Landhelgisgæslunnar, er í ólagi
og verður hún því ekki notuð í
tengslum við björgun fjölveiði-
skipsins Baldvins Þorsteinsson-
ar EA-10 næstu daga. Varnarlið-
ið á Keflavíkurflugvelli hefur
samþykkt að senda þyrlu í verk-
efnið á strandstað á Meðallands-
fjörum.
Bilun er í kringum afísingar-
búnað í stélskrúfu TF-LIF. Gír-
kassi vélarinnar hefur verið
sendur á viðurkennda viðhalds-
stöð í Noregi að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá
Landhelgisgæslunni. Gírkassinn
kostar hátt í 38 milljónir en ekki
er ljóst hversu kostnaðarsöm
viðgerð á honum verður. ■
Enski boltinn á Skjá einn:
Skoðar samstarf við RÚV og Símann
GIGGS Á SKJÁ EINN
Ryan Giggs, leikmaður Manchester United,
í leik gegn Porto. Útlit er fyrir að enska
deildin verði á Skjá einum á næsta ári.
Meistaradeildin verður áfram á Sýn.
STRAND „Mér líst vel á þessar aðgerð-
ir og dáist að því hvað Þorsteinn Már
og hans lið hafa skipulagt þetta vel og
staðið fagmannlega að þessu, það er
aðdáunarvert,“ segir Gunnar Felix-
son, forstjóri Tryggingamiðstöðvar-
innar.
Hann segir björgunaraðgerðirnar
vera greiddar af Tryggingamiðstöð-
inni og að þeir komi að björguninni
með þeim hætti að fulltrúi frá þeim
hafi verið á staðnum frá upphafi og
hafi unnið í samstarfi við Samherja-
menn og aðra sem standa að björgun-
inni.
„Við fylgjumst með og höfum
hönd í bagga. Ég veit ekkert um
kostnaðinn ennþá og vil ekki nefna
neinar tölur í því samhengi enn sem
komið er. Aðalatriðið er að ná skip-
inu út. Hitt verður tekið saman síð-
ar.“ ■
Forstjóri Tryggingamiðstöðvarinnar:
Aðdáunavert og
fagmannalegt
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Ingimundur SH:
Tók niðri
við Vestur-
boða
STRAND Togarinn Ingimundur SH
strandaði við Vesturboða í
Grundarfirði um kvöldmatar-
leytið í gærkvöldi. Skip og
mannafli björgunarsveita á
svæðinu voru kölluð út en skip-
verjum tókst að losa bátinn af
sjálfsdáðum fyrir klukkan 20 og
virtist skipið ólaskað.
Ingimundur hélt áfram ferð
sinni til Njarðvíkur þar sem
hann fer í slipp. Ingimundur er
tæplega 300 brúttólesta ísfisks-
togari. ■