Fréttablaðið - 13.03.2004, Blaðsíða 10
10 13. mars 204 LAUGARDAGUR
SKER SIG ÚR
Nær 500 íraskir lögreglunemar, sem verið
hafa í þjálfun í Jórdaníu, útskrifuðust í gær.
Þeir voru annar hópurinn til að útskrifast
en stefnt er að því að 32.000 lögreglu-
menn fái þjálfun í störfum sínum innan
tveggja ára. Meðal leiðbeinenda þeirra á
námskeiðinu er kennari úr kanadísku
fjallalögreglunni sem skar sig heldur betur
úr fjöldanum á útskriftarhátíðinni.
Hæstiréttur Kaliforníu úrskurðaði um hjónabönd samkynhneigðra:
Stöðvaði hjónavígslurnar
SAN FRANCISCO, AP Hæstiréttur
Kaliforníu hefur fyrirskipað borg-
aryfirvöldum í San Francisco að
hætta að gefa saman samkyn-
hneigð pör. Dómstóllinn dæmdi
ekki um lögmæti hjónabanda sam-
kynhneigðra, en þau eru bönnuð
samkvæmt löggjöf ríkisins, sem
stuðningsmenn hjónabanda sam-
kynhneigðra telja að stangist á við
stjórnarskrá Kaliforníu.
Nær 4.200 samkynhneigð pör
höfðu gengið í hjónaband í San
Francisco frá því að Gavin
Newsom borgarstjóri fyrirskipaði
borgarstarfsmönnum 12. febrúar
síðastliðinn að gefa út hjúskapar-
leyfi til samkynhneigðra para og
gefa þau saman. Hæstiréttur
Kaliforníu fjallar um lögmæti
þeirrar ákvörðunar í maí eða júní
og þangað til bannar hann hjóna-
bandsvígslur samkynhneigðra.
Ríkisþingið í Massachusetts
virtist ná samkomulagi um stjórn-
arskrárbreytingu sem bannar
hjónabönd samkynhneigðra.
Hæstiréttur ríkisins hafði áður
komist að þeirri niðurstöðu að
samkynhneigð pör hefðu rétt á að
ganga í hjónaband og markaði
upphafið að umræðunni um rétt-
indi samkynhneigðra para að und-
anförnu. ■
Gasdauði bíður
Karíusar og Baktusar
Erlendur Indriðason, sem starfar sem tannlæknir í Noregi, hefur vakið athygli fyrir byltingar-
kennda gasmeðferð gegn tannskemmdum. Leysir ekki öll vandamál en er fljótleg
og sársaukalaus segir Erlendur.
TANNLÆKNINGAR Erlendur Indriða-
son hefur starfað sem tannlækn-
ir í Noregi undanfarin 13 ár og
rekur tannlæknastofu í Ósló.
Hann var einn af þeim fyrstu
ytra sem byrjuðu að nota svo-
kallað óson-gas til að ráðast
gegn tannskemmdum, en fyrsta
þar til gerða vélin kom til Nor-
egs síðasta sumar. Gasmeðferð-
in hefur vakið mikla athygli.
„Þetta er einföld, fljótleg og
sársaukalaus meðferð fyrir
sjúklinginn og hefur engar
aukaverkanir,“ segir Erlendur.
Meðferðin hefur verið í þróun
undanfarin ár, að frumkvæði
prófessors í Belfast á Norður-Ír-
landi. Hún þykir ekki hvað síst
hentug fyrir
þær sakir að
tannlæknirinn
sleppur við að
fjarlægja hluta
tannar, en með-
ferðin kostar
töluvert meira
en venjulegar
fyllingar.
„Í gasmeð-
ferðinni er
tölvutækninni
beitt til að leita
að holum og
tækin finna hol-
ur sem eru jafnvel svo smáar að
augað greinir þær ekki. Þannig
tekst að greina stærð þeirra og
nákvæmar upplýsingar berast í
gasvélina. Óson-gasi er síðan
dælt inn í lofttæmdar holur og
það drepur bakteríurnar á
nokkrum sekúndum. Gasinu er
svo dælt út. Að þessu loknu er
mælt með því að viðkomandi
bursti og skoli tennurnar með
sérstöku efni á hverjum degi og
eftir þrjá mánuði er kíkt aftur á
tönnina til að sjá hvernig til
tókst,“ segir Erlendur.
Margir veigra sér við því að
fara til tannlæknis af hræðslu
við sprautur og bora, en þeir
geta ef til vill andað léttar í
þeirri von að óson-gasmeðferð
geti hjálpað þeim. Ekki er vitað
til þess að slíkri aðferð sé beitt
við tannlækningar hér á landi en
þess er trúlega ekki langt að
bíða.
„Þetta er algjör bylting í
tannlækningum og er ekki sam-
bærilegt við aðrar aðferðir. En
þetta leysir ekki öll vandamál og
borinn er ekki að hverfa. Það er
best að beita hefðbundnum að-
ferðum við tannlækningar í
þeim tilfellum þar sem fyllingar
eru til dæmis farnar að leka,
enda þarf oft að skipta um þær.
Gasmeðferðin hentar best þegar
huga þarf að holum sem liggja
grunnt. Til dæmis hjá börnum
og unglingum sem eru með sex
ára og tólf ára jaxla, enda auð-
velt að drepa bakteríurnar,“ seg-
ir Erlendur.
bryndis@frettabladid.is
Neitaði keisaraskurði:
Móðir kærð
fyrir morð
SALT LAKE BORG, AP Bandarísk kona
var ákærð fyrir morð eftir að annar
tvíbura sem hún bar undir belti
fæddist andvana. Læknar höfðu
lagt hart að henni að ófæddir tví-
burar hennar yrðu teknir með keis-
araskurði en hún neitaði því ítrek-
að. Krufning leiddi í ljós að barnið
lést tveimur dögum fyrir fæðingu
en hefði lifað hefði móðirin sam-
þykkt keisaraskurð.
Hjúkrunarkona á sjúkrahúsinu
sagði lögreglu að móðirin hefði sagt
að keisaraskurður myndi eyðileggja
líf sitt og að hún vildi frekar missa
annað barnið en að vera skorin upp
með þessum hætti. ■
„Þetta er al-
gjör bylting í
tannlækning-
um og er ekki
sambærilegt
við aðrar að-
ferðir. En
þetta leysir
ekki öll
vandamál.“
Í boði er meðal annars:
Á ensku og dönsku
• Byggingafræði
• Byggingaiðnfræði
• Markaðshagfræði
Á dönsku
• Útflutningstæknifræði
• Byggingatæknifræði
• Tölvutæknifræði
• Verðmætastjórnun
(Value Chain Management)
• Véltæknifræði
• Framleiðslutæknifræði
• Véltækni
• Landmælingar
• Aðgangsnámskeið
NÁM Í DANMÖRKU
www.vitusbering.dk
Fulltrúi skólans Guðmundur Þór Sigurðsson
ásamt nemanda í Markaðshagfræði Freyja
Lárusdóttir verða í Reykjavík og nágrenni á
bilinu 6. - 18.mars.
Sunnudaginn 14.mars frá kl. 15.00 – 18.00
verður almenn kynning í húsi Verkfræðinga-
félags Íslands Engjateig 9, 105 Reykjavík og
er öllum velkomið að koma þangað. Hægt er
að leggja inn skilaboð í móttöku Hótel Loft-
leiða Einnig er hægt að hringja í Guðmund
Þór beint í síma +45 23 38 26 55. Email:
gsi@vitusbering.dk
Frumvarp um réttindi
launafólks innan EES:
Aðlögun
til 2006
ALÞINGI Samkvæmt stjórnar-
frumvarpi sem hefur verið lagt
fram á Alþingi um réttindi
launafólks innan EES-svæðisins
er lagt til að gildistöku ákvæðis
um frjálsan atvinnu- og búsetu-
rétt launafólks frá Eistlandi,
Lettlands, Litháen, Póllandi,
Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi og
Ungverjalandi verði frestað til
1. maí 2006, en áformað er að
þessi ríki gangi í ESB í maí á
þessu ári.
Ísland, Noregur og Liechten-
stein hafa heimildir til að beita
tímabundnum takmörkunum
varðandi frjálsa för launamanna
frá nýju aðildarríkjunum, en
þær gilda þó ekki gagnvart
Möltu og Kýpur, sem einnig
ganga í ESB á þessum tíma. ■
Fjórir af hverjum fimm feðrum fara í fæðingarorlof:
Þriðjungur nýtir ekki
rétt sinn til fulls
FÆÐINGARORLOF Þriðji hver faðir
sem tók fæðingarorlof á síðasta ári
lét hluta réttarins falla niður ónýtt-
an.
Samkvæmt reglugerð um fæð-
ingarorlof eiga feður sjálfstæðan og
óframseljanlegan rétt til greiðslna í
allt að þrjá mánuði. Á síðasta ári
tóku fjórir af hverjum fimm feðr-
um fæðingarorlof en aðeins um
57% feðra nýttu allan rétt sinn. Árið
2001 þegar réttur föður til fæðing-
arorlofs var aðeins einn mánuður
nýttu um 80% feðra allan réttinn.
Þetta hlutfall var komið niður í 76%
árið 2002 þegar fæðingarorlof feðra
var komið í tvo mánuði.
Nánast allar mæður nýta sér
fæðingarorlofsréttinn til fulls og
yfir 90% þeirra lengja fæðingar-
orlofið umfram sjálfstæðan rétt.
Samkvæmt upplýsingum frá Trygg-
ingastofnun taka feður hins vegar
sjaldnast meira orlof en sem nemur
sjálfstæðum rétti þeirra. Á síðustu
þremur árum hafa aðeins tíu til tólf
prósent feðra tekið lengra fæðing-
arorlof. ■
GRÁTA GLATAÐ TÆKIFÆRI
Jeanne Rizzo og Pali Cooper grétu þegar
þær ætluðu að láta gefa sig saman í San
Francisco og fréttu að hæstiréttur
Kaliforníu hefði látið stöðva vígslurnar
tíu mínútum áður.
BARN
Mun fleiri mæður en feður nýta til fulls
rétt sinn til fæðingarorlofs.
Í GASMEÐFERÐ HJÁ TANNLÆKNINUM
Í gasmeðferðinni er tölvutækni beitt til að leita að holum sem eru jafnvel svo smáar að
augað greinir þær ekki. Gasið drepur bakteríurnar á nokkrum sekúndum.
ERLENDUR INDRIÐASON
Hefur starfað sem tannlæknir í Noregi í 13
ár og vakið mikla athygli fyrir að beita bylt-
ingarkenndri óson-gasmeðferð í baráttunni
gegn Karíus og Baktus.