Fréttablaðið - 14.03.2004, Page 4
4 14. mars 2004 SUNNUDAGUR
Ætlarðu að sjá mynd Mels Gibson
um píslarsögu Krists?
Spurning dagsins í dag:
Hefurðu trú á að það takist að ná
Baldvini Þorsteinssyni á flot?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
55,6%
44,4%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
Lögreglan forðast enn ljósmyndara:
Ástþór þarf að ná í tölvurnar sjálfur
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í
Reykjavík hefur enn ekki skilað
tölvum Ástþórs Magnússonar
forsetaframbjóðanda, sem lagt
var hald á vegna rannsóknar á
viðvörunum við hugsanlegum
sprengjutilræðum. Óeinkennis-
klæddir lögreglumenn sem
komu með tölvurnar að skrif-
stofu Friðar 2000 á föstudag
hættu við þegar þeir sáu ljós-
myndara Fréttablaðsins á staðn-
um og óku burt.
„Þetta er furðuleg uppákoma.
Þeir neita að koma með tölvurn-
ar því þeir vilja ekki að ljós-
myndarar eða blaðamenn séu á
staðnum,“ sagði Ástþór en hann
skilur lítið í þeim forsendum
sem þar liggja að baki. „Ég tal-
aði við þá aftur og þá sögðu þeir
að ég gæti náð í tölvurnar niður
á lögreglustöð. En það er nátt-
úrulega ekki mitt að gera það,“
sagði Ástþór daufur í dálkinn í
gær. „Þeir eiga að skila tölvun-
um aftur þangað sem þeir tóku
þær, lögfræðingurinn sagði mér
það. Þetta er voðalega óeðlilegt
og það er mér óskiljanlegt hvers
vegna þessir menn geta ekki
unnið vinnuna sína fyrir opnum
tjöldum. Við hjá Friði 2000 höf-
um ekkert að fela og ég skil ekki
hvað lögreglan hefur að fela.“
Ástþór er ekki búinn að
ákveða hvort hann stendur í
frekara þófi eða nær í tölvurnar
sjálfur. Hann ætlar að taka sér
helgarfrí og skoða málið í næstu
viku. ■
STRAND Áætlanir um að reyna að
ná fjölveiðiskipinu Baldvini Þor-
steinssyni á flot á flóði í gær-
kvöldi gengu ekki eftir þar sem
vonskuveður tafði fyrir undirbún-
ingi í gærmorgun. Stefnt er að því
að draga skipið á flóðinu á ellefta
tímanum fyrir hádegi í dag. Taug
var sett í gær í stefni Baldvins
sem tengd var við vinnuvélar í
fjörunni til að hindra að skipið
haldi áfram snúast.
„Ég er hvorki bjartsýnn né
svartsýnn um að ná Baldvini á flot
í dag. Þetta er bara verkefni og
við tökum hvern þátt fyrir sig,“
segir Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja.
Þorsteinn segir þá vera að
vinna að málum sem menn hér á
landi hafi ekki mikla þekkingu á
og því sé mikilvægt að fara að öllu
með gát og leysa hvern þátt fyrir
sig. „Það eru engin tímamörk á
verkefninu og við viljum gera það
eins vandlega og hægt er.“ Þor-
steinn segir ástæður þess að fres-
ta varð því að draga Baldvin á flot
hafa verið að undirbúningi í drátt-
arskipinu hafi ekki verið lokið.
Þeir hafi átt eftir að undirbúa lín-
urnar sem draga eigi tógið frá
dráttarskipinu yfir í Baldvin Þor-
steinsson. Í viðtali við Fréttablað-
ið í gær vonaðist Þorsteinn til að
undirbúningurinn í dráttarskipinu
myndi klárast fyrir birtingu.
„Mér finnst að menn hafi unnið
hér gríðarlega vel. Allir hafa staðið
sig frábærlega og unnið mjög vel
saman og við höldum bara áfram
að gera það,“ segir Þorsteinn Már.
Vinnuvélar munu sjá um að
draga tógið í land frá dráttarskip-
inu og var mikill undirbúningur
við að fjarlægja hugsanlegar
hindranir í fjörunni. „Ég hef látið
grafa í sandhólana til að auðvelda
leiðina fyrir vinnuvélarnar þegar
þær draga tógið,“ segir Guðmund-
ur Hjálmarsson sem hefur yfir-
umsjón vinnuvélunum á svæðinu.
hrs@frettabladid.is
Íþróttadeild RÚV:
Spenntir
fyrir enska
FJÖLMIÐLAR Samúel Örn Erlingsson,
yfirmaður íþróttadeildar Ríkisút-
varpsins, segir að þar á bæ séu
menn spenntir að skoða mögulegt
samstarf við Skjá einn sem bauð
hæst í rétt til sýninga á ensku knatt-
spyrnunni næstu þrjú árin.
„Við höfum alltaf verið mjög
hrifnir af enska boltanum enda
sýndum við hann í næstum þrjátíu
ár,“ segir Samúel Örn. Hann segir
málið vera á algjöru byrjunarstigi
og að allir hljóti að þreifa fyrir sér í
þeirri stöðu sem komin sé upp.
Hann nefnir að hjá RÚV sé bæði
til staðar þekking og tæknibúnaður
sem nýst geti vel við að miðla ensku
knattspyrnunni til landsmanna. ■
STRAND „Við höfum stoppað um 25 til
30 bíla sem ætluðu sér á strandstað.
Fólk tók misvel í það. Nokkrir voru
ósáttir en flestir sýndu skilning,“
segir Alexander Alexandersson, að-
alvarðstjóri lögreglunnar í Vestur-
Skaftafellssýslu, en veginum að
standstað var lokað fyrir almenn-
ingi í gærmorgun.
Alexander segir ástæður fyrir
lokuninni fyrst og fremst þær að
vegurinn þoli ekki nema takmark-
aða umferð. Hann segir ekkert
vitað um hversu lengi þetta
ástand muni vara. Þetta sé eini
vegurinn að strandstað og að hann
verði að vera í lagi.
„Einnig lokum við út frá örygg-
issjónarmiðum það er verið að
vinna í fjörunni, bæði með stór
vinnutæki og þyrlur. Um leið og
mikill fjöldi er kominn niður í
fjöru erum við búnir að missa tök-
in á þessu. Við höfum ekki mann-
afla til að halda fólki á öruggum
stöðum,“ sagði Alexander Alex-
andersson. ■
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
„Ég var nú sjálfur myndaður í bak
og fyrir þegar ég var leiddur inn í
héraðsdóm þar sem ég var
dæmdur í ólöglegt gæsluvarð-
hald,“ segir hann og skilur ekkert
í lögreglunni.
ÖLVAÐIR ÖKUMENN Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði sex ökumenn
vegna gruns um ölvunarakstur á
föstudagsnótt og fram eftir laug-
ardagsmorgni. Einn stútur var
tekinn á Akureyri.
EKIÐ Á VEGFARANDA Ekið var á
gangandi vegfaranda á Hring-
braut á móts við Landspítala um
níuleytið í gærmorgun. Meiðsli
mannsins reyndust minni háttar.
HRAÐAKSTUR VIÐ ÓLAFSFJÖRÐ
Sex ökumenn voru teknir fyrir
of hraðan akstur þegar lögreglan
var við eftirlit á Ólafsfjarðar-
vegi á fimmtudag. Lögreglan á
Dalvík segir markmiðið að draga
úr hraða ökumanna við inn-
keyrslurnar inn í Dalvík og
Ólafsfjörð. Á þessum vegaköfl-
um er fimmtíu kílómetra há-
markshraði en ökumennirnir
voru á allt að 85 kílómetra hraða
á klukkustund.
SEX TEKNIR FYRIR HRAÐAKSTUR
Lögreglan á Dalvík stöðvaði sex
ökumenn sem óku of hratt á
föstudagskvöld. Bílarnir mældust
á 121 til 137 kílómetra hraða.
Umferð var takmörkuð að strandstað:
Á þriðja tug bíla
stöðvaður
Undirbúningi björgunar
Baldvins að mestu lokið
Stefnt er að því að ná Baldvini Þorsteinssyni á flot í dag. Ekki tókst að reyna að draga hann í gær þar
sem vont veður í gærmorgun tafði fyrir og undirbúningi um borð í dráttarskipinu var ekki lokið.
Á STRANDSTAÐ
Baldvin hefur eilítið snúist í fjörunni en
vonir eru þó bundnar við að hægt verði
að gera fyrstu tilraun til að ná skipinu
úr fjörunni nú fyrir hádegi.
Fréttablaðið/Pjetur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R