Fréttablaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 24
24 18. mars 2004 FIMMTUDAGUR ■ Afmæli ■ Andlát Þennan dag árið 1942 var sett álaggirnar í Bandaríkjunum sérstök ríkisstofnun, sem átti að hafa það hlutverk að „hneppa allt fólk af japönskum uppruna í varð- hald, umkringja það með her- mönnum, hindra það í að kaupa landareignir, og senda það aftur til fyrri heimkynna þegar stríðinu lýkur“. Bandaríkjamenn fylltust bæði reiði og ótta gagnvart Japönum í kjölfar árásarinnar á Pearl Harbour, og það beindist ekki síð- ur að Japönum sem búsettir voru innan Bandaríkjanna. Hver ein- asti Japani var grunaður um njósnir, hvort heldur hann var rík- ur eða fátækur, gamall eða ungur. Tortryggni og reiði beindist einnig að ítölskum og þýskum íbú- um Bandaríkjanna á þessum tíma, en Japanar urðu þó verst úti. Á vesturströnd Bandaríkjanna var 120 þúsund manns safnað saman, jafnt körlum konum sem börnum. Allt þetta fólk var flutt í einangrunarbúðir á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum. Aðstæð- ur þar voru lítið skárri en í fang- elsum. Árið 1990 fengu þeir sem enn voru á lífi sem og erfingjar þeirra afsökunarbeiðni frá bandarísku stjórninni og ávísun upp á 20 þús- und dali. ■ Unnur Ólafsdóttir, Básbryggju 5, Reykjavík, er sjötug. Unnur verður að heiman á afmælisdaginn. Álfrún Gunnlaugsdóttir rithöfundur er 66 ára. Pétur Gunnarsson, framkvæmdarstjóri þingflokks Framsóknarflokksins, er 44 ára. Leifur B. Dagfinnsson kvikmyndagerð- armaður er 36 ára. Ég ætla að reyna að ná mér afflensunni sem ég hef verið með síðan á laugardaginn svo ég geti farið í vinnu aftur á föstu- dagsmorgun,“ segir sjónvarps- maðurinn Heimir Karlsson, sem er 43 ára í dag. „Rúna, konan mín, bakar yfirleitt tertu handa mér. Hún er fantagóður bakari.“ Hann bætir því við uppáhaldskakan sín sé hin gamla góða súkkulaðikaka. „Ég get því miður ekki gert mikið, þannig að ég er bara inni en auð- vitað mun ég fylgjast með Bítinu, bara frá öðru sjónarhorni.“ Það er ekki oft sem Heimir hefur náð að fylgjast með sjón- varpsþættinum sínum sem áhorf- andi frá því hann byrjaði í janúar. „Við sem stöndum að þessum þætti tölum saman á hverjum degi um það sem hægt sé að gera betur. Við höfum verið að reyna að létta þáttinn aðeins, reyna að gera hann hressari. En stundum þegar svo ber undir verður að fjalla um málefni sem flokkast undir alvarleg mál.“ Þegar Heimir er spurður að því hvaða flokk Leoncie hafi átt að tilheyra segir Heimir hana dæmi um manneskju sem hafi verið í sviðsljósinu og fólk horfi þegar hún er í sjónvarpinu. „Við vildum spyrja hana hvort væri eitthvað að marka það sem hún hafði verið segja um kynþáttafor- dóma eða hvort þjóðin væri bara að hafna henni sem listamanni. Við ætluðum að fá hana til að spila og syngja en því miður fór þetta svona. Sumir hafa sagt það dóm- greindarleysi að fá hana í þáttinn en enginn hefði getað séð þetta fyrir.“ Það er ekki erfitt fyrir Heimi að rifja upp eftirminnilegt af- mæli. „Alveg frá fæðingu hef ég verið aðeins í búttaðra lagi. Þegar ég varð þrítugur þá afhentu Sæv- ar Jónsson, Þorgrímur Þráinsson og fleiri mér lifandi grís í afmæl- isgjöf. Hann orgaði svo mikið í partíinu að ég varð að setja hann út í bílskúr. Þegar ég ætlaði að sýna síðasta gestinum grísinn var hann horfinn og í hans stað lá á gólfinu skinkubréf og skilaboð sem á stóð „svona verður þú ef þú hættir ekki að borða“. Sem betur fer hef ég borið þá gæfu til að hlusta ekki á þessa stráka,“ segir hann kankvís að lokum. ■ Afmæli HEIMIR KARLSSON ER 43 ÁRA ■ vonast til að hann losni við flensuna á afmælisdaginn. INGEMAR STENMARK Þessi fornfrægi skíðakappi er 48 ára í dag. 18. mars ■ Þetta gerðist 1922 Mohandas K. Gandhi er dæmdur í fangelsi á Indlandi fyrir borgaralega óhlýðni. 1931 Fyrsta rafmagnsrakvélin er sett á markað. 1940 Adolf Hitler og Benito Musso- lini hittast í Sviss þar sem Ítal- inn samþykkir að ganga til liðs við Þjóðverjann í stríði hans gegn Bretlandi og Frakk- landi. 1950 Kínverskir þjóðernissinnar, undir forystu Chiang Kai- Shek, gera innrás frá Taívan inn á meginland Kína þar sem kommúnistar höfðu komist til valda. 1962 Frönsk stjórnvöld og leiðtogar alsírskra uppreisnarmanna gera samning um vopnahlé eftir átta ára borgarastyrjöld. 1965 Sovéski geimfarinn Aleksei Leonov verður fyrsti maðurinn til að bregða sér í geimgöngu. 1970 Lon Nol steypir Sihanouk prinsi af stóli í Kambodíu. FEÐGAR Í FANGELSI Þessir feðgar voru í haldi Bandaríkjastjórn- ar í júlímánuði árið 1942 þegar þessi mynd var tekin. Hræðsla við Japana JAPANAR HNEPPTIR Í VARÐHALD ■ Þennan dag hófu Bandaríkjamenn markvisst að hneppa í varðhald alla íbúa Bandaríkjanna sem voru af japönskum uppruna. Japanahræðslan var í hámarki í kjölfar árásarinnar á Pearl Harbour. 18. mars 1942 IRENE CARA Leik- og söngkona (Fame) er 45 ára. Fékk grís á afmælisdaginn Kraftwerk-unnendur fá forskot á Pixies Miðasala á tónleika hljóm-sveitanna Kraftwerk og Pixies hefst í næstu viku. Mið- ar á tónleika þýsku danstón- listarfrumkvöðlanna í Kraftwerk hefst á mánudag. Þá verður þeim sem kaupa miða á tónleika þeirra í Kaplakrika 5. maí boðið að tryggja sér miða á Pixies. Þeir sem kaupa miða á Kraftwerk á mánudag og þriðjudag stendur þannig til boða að fá jafn- marga miða á tónleika banda- rísku rokksveitarinnar, en ekki fleiri. Þetta er gert til þess að þeir einstaklingar sem ætla á báða tónleika þurfi ekki að standa í röð tvisvar. Miðasalan á tónleika Pixies, þann 26. maí næstkomandi í Kaplakrika, hefst svo á miðviku- daginn í næstu viku. Fyrr verð- ur ekki hægt að kaupa staka miða á þá tónleikana. Miðasalan fer fram í verslun- um Skífunnar, Kringlunni, Smáralind og Laugavegi. Einnig verður miðasalan í Bókabúð Andrésar Pennanum, Akranesi, Pennanum Eymundsson, Glerár- torgi, Akureyri - Hljóðhúsinu, Selfossi og á icelandair.is/haen- an. Miðaverð á báða tónleika er 4.500 kr. Það er Hr. Örlygur ehf. sem stendur fyrir báðum tónleikum. ■ Bryndís Kristinsdóttir, Víði, Mosfellsdal, lést laugardaginn 13. mars. Guðjón Ingimundarson kennari, Báru- stíg, Sauðárkróki, lést mánudaginn 15. mars. Jóhann Friðfinnur Sigurðsson, fyrrum svæðisstjóri Flugleiða í London, lést mánudaginn 15. mars. Útförin fer fram í St Georges Church í Beckenham á Englandi miðvikudaginn 24. mars kl. 12. Jón Sævar Jónsson, Lindargötu 28, Reykjavík, 712 Paulina Ave., Redondo Bch, 90277 Kaliforníu, lést mánudaginn 8. mars. Kveðjuathöfn hefur farið fram. ■ Jarðarfarir HEIMIR KARLSSON Segir engan hafa getað séð það fyrir hvernig Leoncie brygðist við í Ísland í bítið. PIXIES Miðasala á Kraftwerk hefst á mánudag. Þeir sem kaupa miða á þá tónleika fá for- kaupsrétt á miða á Pixies. Sala á þá tónleika hefst á miðvikudag. Tónlist KRAFTWERK ■ Þeir sem kaupa sér miða á tónleika þýsku hljómsveitarinnar í næstu viku geta um leið tryggt sér miða á Pixies. Þannig má komast hjá annarri biðröð. 13.30 Ágúst Karl Guðmundsson bruna- vörður, Sléttuvegi 13, verður jarð- sunginn frá Fella- og Hólakirkju. 13.30 Halla Valgerður Pálsdóttir, Soga- vegi 133, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.