Fréttablaðið - 18.03.2004, Síða 31
31FIMMTUDAGUR 18. mars 2004
■ Út í heim
Lalandia er sannkölluð paradís
fyrir fjölskylduna og hefur slegið í
gegn á Norðurlöndum. Þar eru
þarfir barna í algerum forgangi og
mikið lagt upp úr því að vel fari
um foreldrana líka.
Hægt er að fá 30 síðna glæsilegan
bækling á íslensku hjá okkur eða
fá hann sendan í pósti.
Einnig er hægt að skoða staðinn á
www.urvalutsyn.is
Nánari upplýsingar og bókanir í
síma 5854100 eða sendið
fyrirspurnir á smarinn@uu.
LALANDIA
-stærsti sumarleyfisstaður
á Norðurlöndum
í Smáranum,
sími 585 4100
Lalandia er frábær sumarhúsa- og fjölskyldugarður
á Lálandi í Danmörku, aðeins í 1 1/2 klst. akstursfjarlægð
frá Kaupmannahöfn.
SAMA VE
RÐ Á
ÍSLANDI O
G DANMÖ
RKU
Einkaumb
oð á Ísla
ndi
Úrval Úts
ýn Smári
nn
Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is
Til þess að ná góðum tökum á tungumáli er nauðsynlegt að dveljast í því landi
þar sem tungumálið er talað. Stúdentaferðir eru í samstarfi við málaskóla um
allan heim og bjóða þeir nám jafnt fyrir byrjendur sem lengra komna.
Málaskólar eru fyrir fólk á öllum aldri. Sérstök námskeið í boði fyrir 13 - 16 ára.
BUDAPEST Plúsferðir bjóða upp á
glæsilega ferð til Budapest 25.
mars. Gist verður á Hotel
Mercure Budapest Duna ++ og er
verðið á tvíbýli 29.950 kr. og á
einbýli 36.250 kr. Innifalið er
flug, gisting í fjórar nætur, morg-
unverður, flugvallarskattar og ís-
lensk fararstjórn.
PORTÚGAL Örfá sæti eru laus
með Úrval Útsýn til Portúgal
20.–27. mars á
góðu verði.
Gist á hinu
vinsæla hóteli
Hótel Brisa
Sol. Flogið er
með beinu
leiguflugi Loftleiðir - Icelandic til
Faro. Verð fyrir tvo í stúdíóíbúð
er 37.500 kr. og fyrir fjóra í íbúð
með einu svefnherbergi kostar
það sama. Innifalið er flug, flug-
vallarskattar, gisting, akstur til
og frá flugvelli erlendis.
PRAG Heimsferðir bjóða ferð til
Prag á verði tveir fyrir einn 22.
mars og kostar ferðin þá 19.950
kr. á mann með sköttum miðað
við að tveir ferðist saman og að
bókað sé á Netinu. Glæsilegt úr-
val hótela eru í boði í hjarta Prag
og kostar gisting þar frá 3.400 kr.
á mann í tveggja manna herbergi
ÍT-ferðir:
Meira en
íþróttaferðir
ÍT-ferðir hafa starfað síðan 1996.Kjarninn í starfsemi fyrirtæk-
isins er íþróttatengd ferðaþjón-
usta og vinna við
a l þ j ó ð l e g a
íþróttaviðburði
hér á landi. Auk
í þ r ó t t a f e r ð a
bjóða ÍT-ferðir
upp á ferðir fyr-
ir tónlistarhópa,
skólahópa, fyr-
irtæki og
félagasamtök.
Fyrir einstak-
linga er svo
boðið upp á
margs konar
ferðir svo sem gönguferðir, golf-
ferðir og ferðir í spænskuskóla.
ÍT-ferðir hafa nú gefið út bæk-
ling sem er sá fyrsti sem fyrir-
tækið gefur út. Þar er að finna
kynningu á því helsta sem er á
döfinni hjá ferðaskrifstofunni. ÍT-
ferðir eru til húsa í Íþróttamið-
stöðinni í Laugardal. Slóðin er
itferdir.is. ■
Margir telja Sviss vera eittfegursta land í heimi. Þar
eru tignarleg fjöll, fögur vötn,
engi, smábæir með kirkjuturni
gnæfandi upp úr húsaþyrping-
unni, ostur og súkkulaði. Sviss er
þó ekki eitt af þeim löndum sem
Íslendingar hafa heimsótt mest og
eru trúlega margvíslegar ástæður
fyrir því.
Í sumar bjóða Heimsferðir upp
á tólf daga ferð til Sviss. Dvalið
verður á tveimur stöðum, sex
nætur á hvorum stað, annars veg-
ar við Lugano-vatn í suður Sviss
og hins vegar við rætur hins
fræga Rigi-fjalls, sem oft er
nefnd drottning svissneskra fjalla
og er við Vierwaldstättersee í
miðhluta landsins.
Dvalið verður á góðum hótel-
um og geta gestir valið um að
slaka á og njóta góðrar aðstöðu
hótelanna, fara í fjallgöngur eða
siglingar eða í áhugaverðar kynn-
isferðir með fararstjóra Heims-
ferða. Meðal annars er boðið upp
á ferðir til höfuðborgarinnar
Bern, Luzern og að náttúruperlun-
um Lago Maggiore og Lago di
Como á Ítalíu. Að sjálfsögðu er
svo farið í súkkulaðiverksmiðju
og ostagerð.
Fararstjóri er einn reyndasti
fararstjóri Heimsferða, Ása Mar-
ía Valdimarsdóttir. Flogið er til og
frá Verona á Ítalíu og stendur
ferðin 24. júní – 6. júlí.
Nánari upplýsingar hjá Heims-
ferðum, Skógarhlíð 18, Reykjavík,
sími 595 1000 og á vefnum: heims-
ferdir. is. ■
Þeir sem leggja leið sína umAustfirði ættu ekki að láta hjá
líða að hið víðfrægt steinasafn
Petru á Stöðvarfirði. Safnið er í
Sunnuhlíð, í garði og íbúðarhúsi
Petru Sveinsdóttur. Petra hefur
búið þar í hartnær 60 ár, en steina-
söfnun hefur verið áhugamál
hennar frá barnæsku. Eftir því
sem steinunum, sem bornir voru í
Sunnuhlíð, fjölgaði urðu þeir sýni-
legri og einn daginn voru ferða-
menn farnir að banka upp á og
óska eftir að fá að skoða steinana
og garðinn.
Í dag er Steinasafn Petru orðið
eitt stærsta og glæsilegasta steina-
safn í einkaeigu í heiminum. Ein-
stakt verður að teljast að einstak-
lingur byggi upp annað eins safn
og ótrúlegt er hversu mikið magn
Petra hefur borið til byggða af
fallegum og fágætum steinum.
Steinasafn Petru er á meðal vin-
sælustu áningarstaða á Austur-
landi og er heimsókn þangað hluti
af skipulögðum ferðum ferðaskrif-
stofa um Austurland. Allt að 20
þúsund ferðamenn sækja safnið
heim á ári hverju og leggja margir
á sig krók eingöngu til að heim-
sækja safnið.
Í steinasafninu er samansafn af
íslenskum steinum sem safnað
hefur verið á um það bil 70 árum.
Auk þess eru ýmsir aðrir náttúru-
munir, fjölbreytt jurtalíf er í safn-
inu og einnig er starfrækt þar
minjagripasala sem selur muni
unna úr steinum.
Á Stöðvarfirði er almennt vel
tekið á móti ferðamönnum, enda
heimsækir fjöldi þeirra staðinn á
ári hverju. Steinasafn Petru hefur
mest aðdráttarafl og enginn, sem
leið á um Stöðvarfjörð, má láta
undir höfuð leggjast að heimsækja
safnið. ■
Um 20.000 gestir í steinasafnið árlega:
Stærsta steina-
safn í heimi
FALLEGT UMHVERFI
Steinarnir njóta sín vel í fallegum garði Petru.
Útivist:
Ekið yfir
jökul
Ferðafélagið Útivist efnir tiljeppaferðar á Hveravelli um
helgina. Lagt er af stað annað kvöld
kl. 20.00 frá Arctic Trucks, Nýbýla-
vegi 2. Þá verður keyrt í Reykholt
og gist þar. Daginn eftir verður far-
ið sem leið liggur framhjá Húsafelli
og upp á Langjökul að Þursaborg og
jafnvel að Fjallkirkju. Síðan verður
haldið á Hveravelli en þar býður
Arctic Trucks til kvöldverðar.
Ferðatilhögun á heimleiðinni fer
eftir færð og veðri en annaðhvort
verður farið yfir jökul eða Kjöl.
Ferð fyrir mikið breytta jeppa.
Þátttaka háð samþykki farar-
stjóra. ■
Sumar í Sviss:
Á slóðum Heiðu
FRÁ VIERWALDSTÄTTERSEE
Vötn og fjöll einkenna landslagið í Sviss.
NÝR BÆKLINGUR
Sá fyrsti sem ferða-
skrifstofan gefur út.
STEINASAFN PETRU
Safnið er stærsta steinasafn í einkaeigu í heiminum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/E
LM
A