Fréttablaðið - 18.03.2004, Page 41
41FIMMTUDAGUR 18. mars 2004
Stjórn Frjálsa lífeyrissjó›sins bo›ar til ársfundar,
1. apríl 2004, kl. 17.15 á Nordica Hotel.
Tillögur um breytingar á samflykktum sjó›sins er a› finna á heimasí›u
KB banka, www.kblifeyrir.is, og í höfu›stö›vum KB banka a› Borgartúni 19.
Stjórn sjó›sins hvetur sjó›félaga til a› mæta á fundinn.
1. Sk‡rsla stjórnar.
2. Kynning ársreiknings.
3. Tryggingafræ›ileg athugun.
4. Fjárfestingarstefna sjó›sins.
5. Kjör endursko›anda.
6. Tillögur um breytingar á samflykktum sjó›sins.
7. Laun stjórnarmanna.
8. Sameining Frjálsa lífeyrissjó›sins og Séreignalífeyrissjó›sins.
9. Önnur mál. Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, flurfa
a› berast stjórn sjó›sins eigi sí›ar en viku fyrir fundinn.
DAGSKRÁ
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.is
/
N
M
1
1
6
8
1
SNÓKER Snókerspilarinn Jimmy
White hefur verið handtekinn
vegna fíkniefnamisferlis. Lög-
reglan í Bretlandi réðst inn á hót-
elherbergi hans í Preston og fann
þar fíkniefni eftir að henni höfðu
borist upplýsingar um að fólk
hefði reykt hass á bar hótelsins.
White, sem er 41 árs, var síðar
sleppt gegn tryggingu. Hann var
staddur í Preston vegna sýningar-
leiks við Alex Higgins.
White, sem hefur sex sinnum
lent í öðru sæti á HM, kom hingað
til lands í vetur og spilaði við
Jóhannes B. Jóhannesson, Krist-
ján Helgason og Jussi Tyrkko. ■
FÓTBOLTI Eyjamaðurinn Gunnar
Heiðar Þorvaldsson er á leið til
reynslu hjá norska úrvalsdeildar-
liðinu Sogndal. Liðið undirbýr sig
nú af kappi fyrir norsku deildina
sem hefst þann 12. apríl og mun
Gunnar Heiðar fara með liðinu í
æfingabúðir í Danmörku.
Gunnar, sem er samningsbund-
inn ÍBV, hefur verið markahæsti
leikmaður liðsins í úrvalsdeild-
inni undanfarin tvö ár. Færi hann
til norska liðsins yrði það mikill
missir fyrir Eyjamenn. ■
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar sigruðu
Keflavíkinga 65-62 í úrslitakeppni
1. deildar kvenna í körfubolta.
Keflavíkingar sigruðu í fyrsta
leiknum 58-52 og þurfa félögin að
leika í þriðja sinn á föstudag og þá í
Keflavík.
Leikurinn var mjög jafn en
Grindvíkingar höfðu þó ávallt frum-
kvæðið og leiddu 32-31 í leikhléi.
Jafnræðið hélst fram í fjórða leik-
hluta þegar Grindvíkingar tóku af
skarið og náðu tíu stiga forystu, 61-
51. Keflvíkingar náðu að minnka
muninn í eitt stig, 63-62, á lokamín-
útunni en Kesha Tardy kórónaði
frábæran leik og skoraði stigin sem
tryggðu Grindvíkingum sigur.
Kesha Tardy skoraði 31 stig, tólf
þeirra úr þrettán vítaskotum, og tók
20 fráköst. Grindvíkingar hittu úr
nítján af tuttugu vítaskotum sem er
afburða góð nýting í þetta mikil-
vægum leik.
Sólveig Gunnlaugsdóttir skor-
aði tólf stig og tók tólf fráköst.
Ólöf Pálsdóttir skoraði einnig tólf
stig, þar af tvær mjög mikilvægar
þriggja stiga körfur í fjórða leik-
hluta. Erna Magnúsdóttir skoraði
fimm stig og átti sex stoðsending-
ar en Jovana Stefánsdóttir skor-
aði þrjú stig og Petrúnella Skúla-
dóttir tvö.
Erla Þorsteinsdóttir skoraði ell-
efu stig fyrir Keflavík og tók ell-
efu fráköst en Birna Valgarðsdótt-
ir og Erla Reynisdóttir skoruðu níu
stig hvor. Anna María Sveinsdóttir
lenti snemma í villuvandræðum og
lék aðeins í átján mínútur. Hún
skoraði átta stig og tók níu fráköst.
Bryndís Guðmundsdóttir og
Marín Karlsdóttir skoruðu sex
stig, Svava Ósk Stefánsdóttir
fimm og Rannveig Randversdótt-
ir og María Ben Erlingsdóttir
fjögur hvor. ■
David Sanders::
Fer í sex
leikja bann
KÖRFUBOLTI David Sanders, leik-
maður Tindastóls, hefur verið úr-
skurðaður í sex leikja bann af aga-
nefnd KKÍ. Stjórn körfuknatt-
leiksdeildar Keflavíkur kærði
Sanders eftir að hann sást á
myndbandsupptöku slá Sverri Þór
Sverrisson, leikmann Keflavíkur,
í andlitið í leik liðanna á Sauðár-
króki um síðustu helgi.
Þess má geta að aganefnd úr-
skurðaði Sanders einnig í tveggja
leikja bann í síðasta mánuði. Tinda-
stólsliðið er dottið út úr úrslita-
keppninni eftir tap gegn Keflavík
og Sanders leikur því varla aftur
körfubolta hér á landi. ■
Heimslisti FIFA:
Ísland upp
um eitt sæti
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið í
fótbolta er í 58. sæti á heimslista
Alþjóðaknattspyrnusambandsins,
FIFA, sem var birtur í gær. Ísland
hækkar sig um eitt sæti síðan list-
inn var síðast birtur fjórða febrú-
ar.
Staða fimm efstu liða er
óbreytt. Heimsmeistarar Brasil-
íu eru áfram í toppsætinu og
Frakkar halda öðru sætinu.
Spánn, Holland og Mexíkó koma
þar á eftir.
Athygli vekur að Íran hækk-
ar sig um sjö sæti og er komið í
það 24, sem er besti árangur
liðsins frá upphafi. ■
Enska knattspyrnan:
Bjarni skoraði tvö fyrir Coventry
FÓTBOLTI Bjarni Guðjónsson skoraði
tvö mörk og lagði upp eitt þegar
Coventry vann Preston 4-1 á heima-
velli í gær. Bjarni Guðjónsson skor-
aði strax á annarri mínútu með
skoti af rúmlega 20 metra færi og
lagði upp mark fyrir Michael Doyle
sex mínútum síðar. Gary Mc-
Sheffrey skoraði þriðja mark
Coventry og Bjarni það fjórða á 27.
mínútu. Bjarni fékk færi til að
skora þriðja mark sitt en Andy
Lonergan í marki Preston varði
vítaspyrnu hans rétt fyrir leikslok.
Michael Owen skoraði tvisvar
þegar Liverpool vann Portsmouth 3-
0 á Anfield og lagði upp markið sem
Dietmar Hamann skoraði. Liver-
pool er í fimmta sæti eftir sigurinn.
West Ham vann Crewe 4-2 á
heimavelli og Nottingham Forest
sem gerði jafntefli við Burnley á
heimavelli. Brynjar Björn Gunnars-
son var ekki í leikmannahópi
Forest.
Celtic vann Dundee 2-1 á útivelli
með mörkum Stilian Petrov og Hen-
rik Larsson. Celtic er enn ósigrað
eftir 28 leiki og enn hefur ekkert
félag leikið heilt tímabil án þess að
tapa frá því úrvalsdeildin var stofn-
uð árið 1975. ■
19.15 KR tekur á móti ÍS í DHL-höll-
inni í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í
körfubolta.
19.15 Eyjastúlkur taka á móti
Gróttu/KR í Remax-deild kvenna í hand-
bolta.
19.30 Þáttur um bandarísku PGA-
mótaröðina í golfi á Sýn.
20.00 Sterkasti maður heims á Sýn.
JIMMY WHITE
Íslandsvinurinn White er búinn að koma
sér í vandræði.
Íslandsvinurinn Jimmy White:
Tekinn með fíkniefni
GUNNAR HEIÐAR
Gunnar Heiðar Þorvaldsson í leik gegn KR
í Landsbankadeildinni í fyrra.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson:
Æfir með Sogndal hvað?hvar?hvenær?
15 16 17 18 19 20 21
MARS
Miðvikudagur
GRINDAVÍK
Kesha Tardy (númer 12) og Sólveig Gunnlaugsdóttir (númer 8) léku mjög vel með
Grindvíkingum í gær.
1. deild kvenna í körfubolta:
Grindavík vann
Keflavík
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
BJARNI GUÐJÓNSSON
Skoraði tvisvar í öruggum sigri á Preston.