Fréttablaðið - 01.06.2004, Page 1
● ragnhildur setti vallarmet
Toyota-mótaröðin:
▲
SÍÐA 25
Sigurpáll og
Ragnhildur byrja best
● er 46 ára í dag
Linda Vilhjálmsdóttir:
▲
SÍÐA 22
Reiknar með innrás
Hugrún Harðardóttir:
▲
SÍÐA 34
Átti ekki von á
fyrsta sætinu
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
AÐSKILNAÐUR RÍKIS OG
KIRKJU Samtök um aðskilnað ríkis og
kirkju efna í kvöld til fundar á Kaffi
Reykjavík. Fulltrúar flokkanna, þjóðkirkj-
unnar og Fríkirkjunnar halda erindi um
stefnu sína. Fundurinn verður á 2. hæð
Kaffi Reykjavíkur og hefst klukkan 20.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VAXANDI ÚRKOMA í höfuð-
borginni þegar líður á daginn. Fyrri-
partinn er aðalúrkoman við suðaustur-
ströndina. Skýjað norðan til. Sjá síðu 6.
1. júní 2004 – 147. tölublað – 4. árgangur
SPENNA Óvissan um framtíð ríkisstjórn-
ar Ariels Sharon forsætisráðherra þykir hafa
aukist um helgina. Sjö klukkustunda,
spennuþrungnum ríkisstjórnarfundi, þar
sem rætt var um brotthvarf frá Gaza, lauk
án niðurstöðu. Sjá síðu 2
SVERTA Á VÍXL Stærstur hluti auglýsinga
Bush hefur verið árásir á John Kerry. Kerry
hefur sjálfur látið birta 13.000 auglýsingar
sem eru árásir á Bush. Kosningabaráttan gæti
orðið sú neikvæðasta í sögunni. Sjá síðu 4
STRAND HERNESS Ljóst er að fjárhags-
legur skaði vegna strands Herness hleypur á
annað hundrað milljónum. Vikurfarminum var
dælt á land. Ekki er búið að ákveða hvort gert
verður við skipið. Sjá síðu 6
BRESTIR Í SAMSTARFINU Sjálfstæð-
ismenn segja andstöðu Framsóknar hafa
komið í veg fyrir skattalækkanir á þessu
þingi. „Þurfum að kanna það svigrúm sem
við höfum,“ segir þingflokksformaður Fram-
sóknar. Sjá síðu 8
36%50%
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
BAGDAD, AP Fresta þurfti ákvörðun
um hver yrði forseti Íraks í tíð
bráðabirgðastjórnar landsins sem
verður við völd fram yfir kosning-
ar í landinu í árs byrjun. Talið er
að deilur milli meirihluta þeirra
sem sitja í framkvæmdaráði
Íraka annars vegar og Banda-
ríkjamanna hins vegar hafi orðið
til þess að ekki var gengið frá út-
nefningunni í gær eins og gert var
ráð fyrir.
Írakar vilja fá Ghazi Mashal
Ajil al-Yawer sem forseta en hann
er í forsæti fyrir framkvæmda-
ráðinu, Bandaríkjamenn vilja
fyrrum utanríkisráðherrann Adn-
an Pachachi.
Al-Yawer hefur gagnrýnt
Bandaríkjastjórn harkalega fyrir
að tryggja ekki nægilega vel ör-
yggi írasks almennings. „Þeir her-
námu landið, leystu upp öryggis-
sveitir og skildu landamæri Íraks
eftir opin fyrir hverjum þeim sem
vildi koma hingað,“ sagði hann.
Pachachi lék stórt hlutverk í
samningu bráðabirgðastjórnar-
skrár sem Bandaríkjamenn hafa
lýst mikilli ánægju með. Hann
flýði Írak við valdatöku Baath-
flokksins 1968 og hefur góð tengsl
við Bandaríkjastjórn og Sam-
einuðu þjóðirnar. ■
Bandaríkjamenn og Íraka greinir á um forsetaefni:
Val forsetans tefst
MANNDRÁP Stúlka á tólfta ári lést
af stungusárum sem hún hlaut á
heimili sínu við Hagamel í fyrr-
inótt. Móðir stúlkunnar hefur
verið úrskurðuð í gæsluvarð-
hald, grunuð um að hafa ráðið
stúlkunni bana þar sem hún lá
sofandi í rúmi sínu. Móðirin er
einnig grunuð um að hafa lagt til
fjórtán ára sonar síns sem
komst undan stórslasaður og gat
látið vita um atburðinn.
Tilkynning barst til lögreglu
kl. 5.21 í gærmorgun um ungan
pilt með stungusár. Þegar lög-
regla kom á heimili drengsins
var stúlkan úrskurðuð látin en
móðirin var flutt alvarlega slös-
uð á sjúkrahús. Hún er talin
hafa reynt að svipta sig lífi eftir
að hafa lagt til barna sinna með
eggvopni, þar sem þau lágu
sofandi í rúmum sínum.
Gengust mæðginin undir
aðgerð en þau voru bæði mjög
alvarlega slösuð. Síðdegis í gær
var móðirin úrskurðuð í gæslu-
varðhald til 14. júní næstkom-
andi og var henni jafnframt gert
að sæta geðrannsókn. Vegna
áverka sinna er móðirin vistuð
tímabundið á gjörgæsludeild.
Lögregla lokaði Hagamel við
Hofsvallagötu snemma í gær-
morgun og stóð rannsókn yfir á
vettvangi fram á kvöld. Merkti
lögreglan blóði drifna slóð pilts-
ins frá heimili hans við Hagamel
að fjölbýlishúsi við Kaplaskjóls-
veg þar sem hann lét vita um at-
burðinn.
Samverustund var haldin í
Neskirkju í gærkvöldi vegna
hins hörmulega atburðar og
munu prestar heimsækja skóla-
félaga stúlkunnar í dag til að
veita þeim stuðning.
Sjá nánar á síðu 2.
Á VETTVANGI VIÐ HAGAMEL Fjölmennt lið rannsóknarlögreglumanna kom að vettvangsrannsókn við Hagamel í gær, þar sem móðir
er talin hafa lagt til barna sinna með eggvopni með þeim afleiðingum að stúlka á tólfta ári lést og fjórtán ára piltur stórslasaðist.
Í gærkvöldi höfðu verið lagðir blómvendir við vettvanginn í samúðarskyni.
HEIMILIÐ FARIÐ
Dustin Stuever kannar það sem eftir er af
heimili ömmu sinnar.
Hvirfilbyljir:
Níu létust
BANDARÍKIN, AP Í það minnsta níu
létust af völdum óveðurs sem
gekk yfir miðvesturríki Banda-
ríkjanna. Hvirfilbyljir jöfnuðu
hús við jörðu og þeyttu hjólhýsum
á loft á sama tíma og rafmagnið
sló út hjá á annað hundrað þúsund
manns vegna óveðursins.
„Þetta er það versta sem ég hef
lent í,“ sagði Howard Lincoln, íbúi
í Marengo. Samkvæmt mælingum
Veðurstofu Bandaríkjanna náði
hvirfilbylur sem gekk yfir bæinn
273 kílómetra hraða. ■
Ellefu ára stúlka
stungin til bana
Móðir stúlkunnar grunuð um verknaðinn og úrskurðuð í gæsluvarðhald. Fjórtán ára bróðir
stúlkunnar komst særður undan. Móðirin talin hafa reynt að svipta sig lífi eftir verknaðinn.
ALLT Í HERS HÖNDUM
Íraskir vegfarendur ganga fram hjá
hermönnum á vettvangi sprengjuárásar
í Bagdad.
● fegurðardrottning íslands 2004
Eyjólfur Guðmundsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vitleysa að rjúka til
að úða
● fasteignir ● hús o.fl.