Fréttablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 28
1. júní 2003 ÞRIÐJUDAGUR Led Zeppelin hvað? Ja, hérna. Alla mína ævi hefur því verið troðið ofan í kokið á minni kynslóð að tónleikar Led Zeppelin í Laugardalshöll hefðu verið þeir stórkostlegustu sem haldnir hafa verið hér á Klakanum. Lýsingarn- ar hafa verið svo stórkostlegar að manni hefur nánast liðið eins og það sé ekkert vit í því að reyna halda fleiri rokktónleika á Íslandi. Svo sér maður ljósmyndir af tón- leikunum af Jimmy Page leika á gítarinn fyrir gapandi, sitjandi og hálfvankaða tónleikagesti og ljós- in kveikt í Höllinni! Það var sem betur fer önnur stemning á tón- leikum Korn á sunnudagskvöldið. Ég hef aldrei séð betri rokk- sveit á sviði. Allt gekk upp. Kraft- urinn, hljómurinn, innlifunin og spilagleðin. Stemningin var svo gífurleg að hér eftir mun allt fölna við samanburðinn. Korn tóku þétt slagarapró- gramm af öllum plötum sínum. Aðeins eitt lag af Untouchables fékk að fjúka og hörðustu aðdá- endurnir trylltust þegar keyrt var í lög af fyrstu tveimur plötunum á borð við Blind, Faget, A.D.I.D.A.S. og Shoots and Ladders. Inn í það síðastnefnda spunnur Korn-liðar Metallica lagið One við gífurlegan fögnuð. Sveitin endaði svo á lag- inu Y’All Wanna Single, og sér- staklega gaman var að heyra allt mannhafið öskra samtímis, Fuck that shit!, í stoppkafla í laginu. Nokkrum sinnum á meðan Korn voru að spila stóð ég mig að því að skoða fólkið í kringum mig. Athygli allra var á sviðinu, og andlitin voru sem frosin á andar- taki fullnægingar. Engin leið var fyrir fólk í stúkunni að sitja kyrrt og þar var fólkið allan tímann eins og landslið Íslands hefði verið að skora mark gegn Brasilíu í úr- slitaleik HM. Fólkið niðri, hoppaði nánast í gegnum alla tónleikana og ég velti því fyrir mér hvort áhorfendur gætu möguleika bre- itt rúmmáli Hallarinnar í kúlu með því að hoppa svona stans- laust. Þannig myndu gólffjalirnar beygjast niður í eins konar undir- skál. Segi svona. Birgir Örn Steinarsson KORN Í LAUGARDALSHÖLL sunnudaginn 30. maí ■ FÓLK Í FRÉTTUM es.xud.www 21:21 XUD Sænsk hágæðarúm The DUX® Bed m a d e i n S w e d e n „Áratuga reynsla á Íslandi“ DUXIANA Háþróðaður svefnbúnaður Ármúla 10 • 108 Reykjavík Sími: 5689950 7007 XUD F í t o n / S Í A F I 0 0 9 1 3 8 Fjölmargir virt-ir tónlista- menn verða á nýrri sextán laga plötu sem gefin verður út fyrir Ólympíuleikana í Aþenu sem hefj- ast í ágúst. Plat- an ber heitið Unity, eða samstaða. Fjölmargir áhugaverðir dúettar verða á plöt- unni, þar á meðal Sting og Mariza, Moby og rappsveitin Public Enemy, Macy Gray og Keziah Jones og rokkarinn Lenny Kravitz og Kadim Al Sahir. Á meðal tónlistarmanna sem koma fram á plötunni eru Avril Lavinge með lagið Knocking On Heavens Door, Alice Cooper og hljómsveitin Destiny’s Child. Söngvarinn Marc Anthony hef-ur sótt um skilnað frá eigin- konu sinni Dayanara Torres, sem er fyrrum Ungfrú alheimur. An- thony og Torres giftu sig í Las Vegas fyrir fjórum árum. Þau hættu saman í stutt- an tíma árið 2002 en endurnýjuðu hjú- skaparheit sín nokkru síðar í Púertó Ríkó. Þau eiga tvo syni sem heita Cristian og Ryan. Anthony, sem er 34 ára, heitir réttu nafni Marco Antonio Muniz. Hann er þekkastur fyrir popplög í salsabúningi á borð við I Need to Know [ TÓNLEIKAR ] UMFJÖLLUN FIELDY Sló ekki feilnótu, frekar en hinir. KORN Fáir botnuðu í upp- hitunaratriðinu, Fantomas, enda mjög listrænt og sérstakt. Allir tengdu sig þó við Korn.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.