Fréttablaðið - 01.06.2004, Side 12

Fréttablaðið - 01.06.2004, Side 12
12 1. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR Á VARÐBERGI Íraskur hermaður er við öllu búinn þegar hann er á varðbergi eftir árás íraskra víga- manna á bandarískan herbíl á veginum frá Bagdad til Falluja. Heilbrigðisþjónusta 17.000 manns undir einn hatt: Átta stofnanir sameinaðar HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra hefur ákveðið að sameina heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi undir eina stjórn. Hefur ráðherra gefið út reglugerð sem kveður á um þetta. Sameiningin tekur til heilsugæslustöðvanna í Þorláks- höfn, Hveragerði, Selfossi, Laug- arási, Hvolsvelli, Vík og á Kirkju- bæjarklaustri, auk Heilbrigðis- stofnunarinnar Selfossi. Hin nýja sameinaða stofnun heitir Heil- brigðisstofnun Suðurlands. Hin nýja sameinaða stofnun tekur formlega til starfa 1. sept- ember 2004. Áætlað er að nýr for- stjóri Heilbrigðisstofnunar Suð- urlands taki til starfa 1. septem- ber. Stöður framkvæmdastjóra þeirra stofnana sem nú eru starf- andi verða lagðar niður frá 1. des- ember nk. og munu því fram- kvæmdastjórarnir sem starfandi verða fram að þeim tíma vinna með nýjum framkvæmdastjóra í þrjá mánuði. Staða annarra starfsmanna verður óbreytt. Um 200 manns eru starfandi á heilbrigðisstofnunum sem nú verða sameinaðar í eina og velta þær um 1.230 milljónum króna af árlegu rekstrarfé. Hin nýja stofnun, Heilbrigðis- stofnun Suðurlands, mun þjóna um 17 þúsund íbúum. ■ Styrkir í réttu hlutfalli við kostnað og skyldur Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, segir að ríkisstyrkir til RÚV skuli vera í réttu hlutfalli við kostnað við að sinna skyldum almenningsútvarps. Þörf er á skilgreiningum á skyldum og ríkisstyrkjum. Rekstrarkostnaður Ríkisútvarpsins og Íslenska útvarpsfélagsins er nánast sá sami. Ríkisstyrkir til almenningsút-varps þurfa að vera í réttu hlut- falli við kostnaðinn við að sinna skyldum almenningsútvarps,“ segir Amund Utne, yfirmaður ríkis- styrkjanefndar Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. Á Íslandi er vandamál- ið hins vegar það að hvorki hefur verið skilgreint hvað felst í orðinu ríkisstyrkir né hvað nákvæmlega má skilgreina sem skyldur Ríkisút- varpsins, að sögn Utne. Samkvæmt ársskýrslum Ís- lenska útvarpsfélagsins og Ríkisút- varpsins fyrir árið 2003 er rekstrar- kostnaður þessara tveggja ljósvaka- samsteypa nánast hinn sami. Íslenska útvarpsfélagið rekur sjónvarpsstöðina Stöð 2 og útvarps- stöðvarnar Bylgjuna, FM 957, Xið og Létt 96,7. Ríkisútvarpið rekur eina sjónvarpsstöð og tvær útvarps- stöðvar, Rás 1 og Rás 2. Dagskrárkostnaður Ríkisút- varpsins var rúmur 2,1 milljarður á síðasta ári. Dagskrárkostnaður Ís- lenska útvarpsfélagsins var nánast sá sami. Tekjur RÚV vegna auglýsinga og kostunar voru rúmar 850 milljónir. Tekjur ÍÚ voru rúmar 970 milljónir. Tekjur RÚV vegna afnotagjalda voru rúmur 2,1 milljarður og tekjur ÍÚ af áskriftargjöldum tæpur 2,1 milljarður. Eitt af því sem ESA mun skil- greina í rannsókn sinni á starfsemi RÚV er hvort flokka eigi afnota- gjöld RÚV sem ríkisstyrk. ESA hef- ur bent á að svo réttlæta megi ríkis- styrki til almenningsútvarps verði það að vera ljóst hverjar skyldur þess eru. Þá verði að vera skýr skil milli kostnaðar almenningsútvarps- ins við að uppfylla þessar skyldur og annars kostnaðar, svo sem vegna dagskrárgerðar sem ekki má flokka undir þessar skyldur. Enn fremur skuli ríkisstyrkir til almenningsút- varpsins vera í réttu hlutfalli við kostnað vegna þessara skyldna. Tekjur af afnotagjöldum RÚV voru rúmir tveir milljarðar. Sam- kvæmt viðmiðunarreglum ESA ætti kostnaður RÚV vegna skyldna vegna almenningsútvarps því að vera tveir milljarðar. Enginn mark- tækur munur er þó á kostnaði við dagskrárgerð RÚV vegna Sjón- varpsins, Rásar 1 og Rásar 2 annars vegar og ÍÚ vegna Stöðvar 2, Bylgj- unnar og tónlistarútvarpsstöðvanna þriggja hins vegar. Danska ríkisútvarpið skal endurgreiða hluta ríkis- styrkja Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur nýverið gert kröfu um að danska ríkissjónvarpsstöðin TV2 endurgreiði um 7,4 milljarða íslenskra króna vegna ofgreiddra ríkisstyrkja á árunum 1995-2002. Sagði í niðurstöðum rannsóknar stofnunarinnar að ríkisstyrkirnir hefðu verið þessum mun hærri en kostnaður sjónvarpsstöðvarinnar við að uppfylla skyldur almennings- útvarps. Auk þess að kanna hlutfall ríkis- styrkja gagnvart kostnaði vegna al- menningsútvarpsskylda TV2 rann- sakaði ESB þátttöku sjónvarps- stöðvarinnar á auglýsingamarkaði. „Til þess að ganga úr skugga um hvort stofnun sem rekur almenn- ingsútvarp hafi fengið hærri ríkis- styrki en nauðsynlegt er mun fram- kvæmdastjórnin einnig kanna hvort stofnunin hafi nýtt tekjumöguleika vegna auglýsinga til fullnustu. Ef svo reynist ekki vera eykst þörfin á opinberum styrkjum í sama hlut- falli,“ segir í niðurstöðum skýrslu framkvæmdastjórnarninnar. Þótti ekki sannað að TV2 hefði ekki nýtt tekjumöguleika vegna auglýsinga til fulls. Rannsókn ESB leiddi í ljós að danska ríkið hagaði sér ekki í samræmi við fjárfesta á almenn- um markaði, með því að endur- fjárfesta árlega þá upphæð sem það greiddi í umframstyrki í TV2. Þó svo að danska ríkið hafi haldið því fram að umframstyrkirnir hafi verið nauðsynlegir til að auka eigið fé stofnunarinnar fór það í bága við leikreglur á almennum markaði af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi hafi danska ríkið ekki skilgreint hæfilegt hlutfall á eigin fé stofnunarinnar áður en það greiddi út umframstyrki. Í öðru lagi hafi danska ríkið horft fram hjá því og látið það viðgangast að TV2 hafi þegið nær gegndarlausa umframstyrki. Algengt annars staðar í Evr- ópu Að því er fram kemur í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar er nið- urstaða þessi í samræmi við fyrri niðurstöður ESB varðandi portú- galska og ítalska ríkissjónvarpið – hefur þú séð DV í dag? Svarar sjálf- stæðismönnum fullum hálsi Friðsælt í Hafnarfirði: Rússar teknir með tóbak LÖGREGLUFRÉTTIR Hvítasunnuhelg- in var afar friðsæl í Hafnarfirði og áberandi lítil umferð í bænum að sögn lögrgelu. Virtist sem þorri bæjarbúa væri á faralds- fætinum og þeir sem heima sátu sýndu mannkærleik og spekt í hvarvetna. Lítið var um hraðakst- ur og áfengisdrykkju undir stýri, en bar helst til tíðinda á föstu- dagskvöld að lögreglan stoppaði bifreið rússneskra skipsverja af togara sem lá í Hafnarfjarðar- höfn. Um borð í bifreiðinni fund- ust fimmtíu karton af sígarettum sem talið var að Rússarnir ætluðu sér að selja. Þeir voru færðir í vörslu lögreglu og sígaretturnar gerðar upptækar. ■ Alþjóðaátak: Réttindum fatlaðra haldið fram FÉLAGSMÁL Framkvæmastjórn Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) hefur samþykkt til- lögu Íslands sem felur í sér að stofnunin beinir nú sjónum sínum að aðstæðum og stöðu fatlaðra í heiminum. Davíð Á. Gunnarsson bar tillöguna upp, sem eitt af áhersluatriðum í stjórn samtak- anna. Meflutningsmenn voru full- trúar Kína, Rússlands og Tékk- lands. Í tillögunni felur fram- kvæmdastjórnin forstjóra og að- alskrifstofu samtakanna að beita sér fyrir samræmdu átaki á vett- vangi WHO í því skyni að halda fram réttindum fatlaðra í sam- ræmi við alþjóðlegar skuldbind- ingar aðildarríkjanna. ■ REKSTRARREIKNINGAR RÍKISÚTVARPSINS OG ÍSLENSKA ÚT- VARPSFÉLAGINS FYRIR ÁRIÐ 2003 Rekstrartekjur Áskriftir 2.123.294 2.091.207 Auglýsingar og kostun 851.527 973.962 Aðrar tekjur 111.679 124.741 Samtals 3.086.500 3.189.910 Rekstrargjöld Dagskrárkostnaður 2.185.348 2.160.798 Sölu- og markaðskostnaður 168.934 369.296 Rekstur og stjórnun 326.097 361.375 Framlag til Sinfóníuhljómsveitar Ísl. 116.293 á ekki við Samtals 2.953.909 2.891.469 Hagnaður fyrir afskriftir 132.591 298.441 Afskriftir -239.845 -492.042 Rekstrartap -107.254 -193.601 Fjármunatekjur að frádrögnum fjármagnsgjöldum -206.438 -266.676 Tap ársins (fyrir skatta) -313.692 -373.637 SIGRÍÐUR D. AUÐUNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING REKSTRARKOSTNAÐUR RÚV OG ÍÚ HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Sameinar átta heilbrigðisstofnanir undir einn hatt. Blönduós: Hröð umferð LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglan á Blöndósi hafði í nógu að snúast um helgina við að sekta ökumenn sem virtiust liggja lífið á. Eftirlit með hvítasunnuumferðinni hófst á fimmtudagskvöld en á mánu- dagsmorgun höfðu 120 bílstjórar verið stöðvaðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast fór ók á 130 kíló- metra hraða, en algengt var að hraðamælirinn sýndi á bilinu 107 til 113 kílómetra hraða. Þá voru þrír ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvun vð akstur. Mikil veður- blíða var í nágrenni Blönduóss um helgina og þung umferð húsbíla og ferðalanga með tjaldvagna á þjóðveginum. Gott skap og frið- sæld einkenndi að öðru leyti mannlífið. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.