Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 01.06.2004, Qupperneq 22
22 1. júní 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ AFMÆLI Helen Keller dó fyrir 36 árum íWestport, Connecticut, þá 87 ára. Þrátt fyrir að vera bæði blind og heyrnarlaus varð hún fræg sem rithöfundur. Hún fæddist árið 1880 í Ala- bama en veiktist á ung af skarlat- sótt með þeim afleiðingum að hún missti bæði heyrn og sjón. For- eldrar Helen fengu kennara til sín sem kenndi henni tjáskipti með snertingu og notkun stafrófsins. Þrátt fyrir að hafa enga tilfinn- ingu fyrir skrifuðu máli og aðeins örlitla fyrir töluðu máli liðu ekki nemar nokkrir dagar áður en hún lærði fyrsta orðið, vatn. Helen út- skýrði seinna upplifunina, hún komst að því að vatn væri þetta dásamlega kalda sem færi flæð- andi yfir höndina á henni. Helen lærði síðan fleiri og fleiri orð og að lokum var orða- forðinn nægur og hún byrjaði að lesa orð skrifuð upphleypt á töflu. Hún gaf út ótal bækur hélt fyrirlestraröð um Bandaríkin með hjálp túlks. Fyrir starf sitt í þágu blindra og heyrnarlausra var henni veitt frelsisorða árið 1968 af forseta Bandaríkjanna, Lyndon B. Johnson Helen skrifaði eitt sinn að líf hennar hefði verið hamingjusamt sökum þess að hún ætti yndislega vini og hefði haft nóg af skemmti- legum verkefnum að vinna að. Einnig skrifaði hún að sjaldan leiddi hún hugann að takmörkun- um sínum og aldrei hefðu þær gert hana dapra. ■ ■ ANDLÁT Björg Magnúsdóttir Thoroddsen lést fimmtudaginn 27. maí. Guðrún Jónsdóttir, Hrafnistu, áður Ljós- heimum 16, Reykjavík, lést föstudaginn 28. maí. Jón E. Guðmundsson, myndmennta- kennari og brúðuleikhúsmaður, lést föstudaginn 28. maí. Helga Birna Þórhallsdóttir, Langholts- vegi 108b, Reykjavík, lést miðvikudaginn 26. maí. Marinó Jónsson, Höfðahlíð 1, Akureyri, lést þriðjudaginn 18. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurður B. Magnússon, fyrrum skip- stjóri og útgerðarmaður, (Siggi á Nýja landi), Faxabraut 13, Keflavík, áður Kirkjuteigi 1, lést föstudaginn 28. maí. Þórunn Jónsdóttir, fyrrum kennari, hjúkrunarheimilinu Skógarbæ, áður til heimilis á Sléttuvegi 13, er látin. ■ JARÐARFARIR 10.30 Unnur Sigurðardóttir, Laufásvegi 25, verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík. 11.00 Guðmundur Sigurður Sigurjóns- son, Fagrabæ 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju. 13.30 Árni Jón Halldórsson, Akurgerði 22, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 13.30 Stefanía Gísladóttir verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Ríkey Ingimundardóttir myndlistarkona er 62 ára. Jörundur Áki Sveinsson knattspyrnu- þjálfari er 33 ára. Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari er 27 ára. Linda Vilhjálmsdóttir, rithöf-undur, er 46 ára í dag. Hún býst við innrás frá fjölskyldu sinni í tilefni dagsins og verður því vel undirbúin. „Ég held alltaf lítið fjölskyldu- kaffi því að ég er búin að upp- götva það í gegnum árin að þau koma hvort sem er,“ segir Linda. „Þannig að það er eins gott að vera búin að skella í eina eða tvær kökur.“ Linda sá sér til óvæntrar ánægju í afmælisdálki sjón- varpsvísisins á dögunum að jafn- aldra hennar væri 44 ára en ekki 46. Það iljaði henni mikið um hjartarætur. „Ég var rosalega glöð og hugsaði með mér að ég væri ekki nema 44 ára. Ég lifði á því í tvo daga,“ segir hún. Aðspurð segir Linda að sumar- ið sé eins og opin bók hjá sér og ekkert frí hafi verið ákveðið. „Ég hef verið að bíða eftir að Alþingi Íslendinga ljúki svo ég geti kom- ist til sólarlanda eða eitthvað ann- að. Davíð hefur stjórnað lífi mínu undanfarna daga þannig að ég hef ekki getað pantað neinar ferðir heldur setið og slefað yfir tilboð- unum á netinu.“ Linda á sér mörg eftirminnileg afmæli en það fertugasta var vafalítið það sérstæðasta. „Þegar ég var fertug ákvað ég að halda ekki upp á afmælið heldur gifta mig í staðinn og gerði það með pomp og prakt þann 6. júní. Ég uppgötvaði að ég væri orðin svo gömul að ef ég ætlaði að gifta mig með stæl í kjól og hvítu og vera eins og prinsessa þá væri þetta síðasti séns.“ Þennan mánaðardag 54 árum áður átti sér stað annar merkur atburður þegar bandamenn réð- ust inn í Normandí á D-deginum fræga. Linda á aftur á móti von á annars konar innrás í dag og er við öllu búin. freyr@frettabladid.is AFMÆLI LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR ■ heldur upp á 46 ára afmælið sitt í dag. Hún er viðbúin innrás frá fjölskyldu sinni. RON WOOD Gítarleikari Rolling Stones er 57 ára í dag. Ron er ennþá í fullu fjöru með hljómsveit- inni en sveitin fór í mikla tónleikaferð um heiminn á síðasta ári. 1. JÚNÍ HELEN KELLER Hún gat sér gott orð sem rithöfundur og fyrirlesari þrátt fyrir mikla fötlun. Hún lést fyrir 36 árum. Heyrnarlaus og blindur rithöfundur HELEN KELLER ■ Gaf út bækur og hélt fyrirlestra þrátt fyrir fötlun sína. 1. JÚNÍ 1968 Fjölskylduinnrás á afmælisdeginum Sumarstarfsemi Árbæjarsafnshófst í gær, á annan í hvítasunnu. Hestvagn var á ferð um safnsvæðið auk þess sem messað var í gömlu safnkirkjunni. Sérstök leikjadagskrá var fyrir börnin og teymt undir þau við Árbæinn. Húsfreyjan í Árbæ bakaði lummur í tilefni dagsins og handverksfólk var á baðstofulofti við tóvinnu og roðskógerð. Veitingasala var í Dillonshúsi, þar sem boðið var upp á ljúffengar og þjóðlegar kaffi- veitingar. Karl Jónatansson spilaði á harmóníku við Árbæ og Dillonshús. Að sögn Gerðar Róbertsdóttur deildarstjóra verður dagskráin í sumar fjölbreytt eins og venjulega og reynt verður að hafa eitthvað fyr- ir alla. „Við verðum með mikið barnastarf í sumar og leggjum áher- slu á að sinna börnunum vel. Við erum bæði með sérstaka leikjadaga og svo erum við með gamaldags leik- föng úti á svæði, stultur, húllahring, kassabíla og fleira dót,“ segir Gerður. „Það sem er nýtt hjá okkur í sum- ar er að við ætlum að vera með grænmetismarkað á föstudögum eftir hádegi. Þá er ókeypis inn á safnsvæðið. Við höfum alltaf verið með grænmetismarkað á haustin og það hefur alltaf verið voða skemmti- legt og skapast markaðsstemning hérna. Við höfum fengið frábæra grænmetisbændur til að skammta grænmeti og það verður allt lífrænt ræktað,“ segir hún og hlakkar mikið til sumarsins. ■ SÖFN ÁRBÆJARSAFN ■ Sumarstarfsemi Árbæjarsafns hefst á annan í hvítasunnu. Þá verður safnið opið kl. 10-17. ÁRBÆJARSAFN Sumarstarfsemi safnsins verður fjölbreytt. Sérstakir viðburðir eru alla sunnudaga og á laugardögum er leikjadagskrá fyrir börn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÞORBJÖRN PÉTURSSON Gullsmára 9, Kópavogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 26. maí, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 2. júní kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast hans er bent á hjúkrunarheimilð Sunnuhlíð. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Svanhvít Guðmundsdóttir Guðrún J. Þorbjörnsdóttir, Jón Vilhjálmsson Guðmundur Þorbjörnsson, Ingibjörg Þorfinnsdóttir Oddrún Þorbjörnsdóttir, Gunnar Jónasson Svanþór Þorbjörnsson, Petrína Ólafsdóttir Katrín M. Þorbjörnsdóttir, Stefán Daði Ingólfsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Sumarstarfsemi Árbæjarsafns að hefjast LINDA VILHJÁLMSDÓTTIR Linda er að byrja á nýrri skáldsögu en vill ekkert gefa upp um innihald hennar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.