Fréttablaðið - 20.06.2004, Blaðsíða 2
Kvennahlaup ÍSÍ haldið í
fimmtánda sinn:
Átján þús-
und hlupu
KVENNAHLAUP Íslenskar konur létu
góða veðrið og sumarorkuna ekki
fara til spillis í gær, á sjálfan
kvennadaginn. Þannig er talið að allt
að átján þúsund konur á öllum aldri
hafi hlaupið Kvennahlaup ÍSÍ, sem
haldið var í fimmtánda sinn þetta
árið. Hlaupið fór fram á níutíu stöð-
um víðsvegar um landið, en þar af
hlupu um fimm hundruð íslenskar
konur á fimmtán stöðum í útlöndum.
Eru þetta um 12,5 prósent allra ís-
lenskra kvenna. Elsti þáttakandinn í
Kvennahlaupinu var Guðrún Stef-
ánsdóttir í Garðabæ, sem fagnaði
sömuleiðis 89 ára afmælinu í gær. ■
2 20. júní 2004 SUNNUDAGUR
KOSNINGAR „Það sem verður að lík-
indum mest spennandi að fylgjast
með í þessum kosningum er hver-
su margir skila auðu,“ segir Bald-
ur Þórhallsson, dósent í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands,
vegna komandi forsetakosninga
sem fram fara á laugardaginn
kemur. Tveir aðilar eru í fram-
boði gegn sitjandi forseta lýð-
veldisins, Ólafi Ragnar Gríms-
syni, þeir Baldur Ágústsson og
Ástþór Magnússon.
Baldur segir áhugaverðast að
vita hversu margir skila auðu
með tilliti til þess að forsetinn
hafi fyrir stuttu neitað að skrifa
undir fjölmiðlalögin svokölluðu
en sú ákvörðun hafi fallið í mis-
jafnan jarðveg hjá landsmönnum
og að líkindum sýni einhverjir
mótmæli sín í verki og skili auðu.
„Nú er tæp vika til kosninganna
og það hefur farið afar lítið fyrir
kosningabaráttu hjá þeim sem í
framboði eru enn sem komið er.
Mér sýnist kosningaherferð Ást-
þórs til að mynda mun minni í
sniðum en hún var 1996.“
Aðeins einu sinni áður hefur
það gerst að framboð hefur borist
gegn sitjandi forseta en það var
þegar Sigrún Þorsteinsdóttir
bauð sig fram gegn Vigdísi Finn-
bogadóttur 1988 og mældist kjör-
sókn þá aðeins 71 prósent. Baldur
telur ekki ólíklegt að kjörsókn nú
geti orðið enn minni þar sem svo
virðist sem margir gefi þessum
kosningum lítinn gaum vegna
þess mikla munar sem virðist
vera á frambjóðendunum miðað
við skoðanakannanir. „Staða
Ólafs er afar sterk miðað við
kannanir og ég held að almenn-
ingur telji hina tvo frambjóðend-
urna einfaldlega ekki nógu sterka
til að ógna Ólafi mikið. Engu að
síður tel ég að embætti forsetans
sé afar fýsilegur kostur og það
voru lengi uppi hugmyndir meðal
manna hér í þjóðfélaginu að finna
sterkan mótframbjóðanda gegn
núverandi forseta en það var síð-
ar blásið af.“
Í nýlegri skoðanakönnun
Fréttablaðsins kom fram að fylgi
Ólafs Ragnars mældist tæp 64
prósent. Baldur Ágústsson mæld-
ist með fimm prósenta fylgi og
fylgi Ástþórs var innan við eitt
prósent. Sé aðeins tekið tillit til
þeirra sem tóku afstöðu naut
Ólafur fylgis alls níu af tíu að-
spurðum.
albert@frettabladid.is
Hefur játað sjö innbrot:
Í gæsluvarð-
haldi vegna
innbrota
GÆSLUVARÐHALD Tuttugu ára maður
var úrskurðaður í gæsluvarðhald
til fimmta júlí að kröfu lögregl-
unnar á Selfossi vegna fjölda inn-
brota á Suðurlandi.
Rannsókn hefur staðið yfir að
undanförnu og er maðurinn ein-
nig grunaður um nokkur innbrot í
Reykjavík. Hann hefur játað sjö
innbrot en fleiri eru til rannsókn-
ar. Vegna rannsóknarinnar sem er
umfangsmikil hafa fimm ungir
menn verið handteknir og yfir-
heyrðir. Verðmæti þýfis úr inn-
brotunum er talið skipta milljón-
um, þá er ótalið tjón vegna skem-
mda og tap eigenda á upplýsing-
um. Þýfið er að mestum hluta
tölvur, tölvubúnaður, skjávarpar
og önnur verðmæti. ■
■ EVRÓPA
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
„Þeir fengu afar diplómatískar
kveðjur.“
Hópur sendiherra heimsótti Kárahnjúka og kynnti
sér aðstæður þar. Sumir starfsmenn Impregilo
hafa fengið reisupassann fyrir að gagnrýna fyrir-
tækið í fjölmiðlum. Ómar Valdimarsson er tals-
maður Impregilo.
SPURNING DAGSINS
Ómar, voru sendiherrarnir reknir
heim?
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
Vinna við fjárlög næsta árs er í fullum gangi
og engar ákvarðanir hafa verið teknar.
EFNAHAGSMÁL „Það hafa engar
ákvarðanir verið teknar að svo
stöddu enda öll vinna enn í
gangi,“ segir Magnús Stefánsson,
formaður fjárlaganefndar Al-
þingis, vegna fjárlagafrumvarps
ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár.
Varaformaður nefndarinnar, Ein-
ar Oddur Kristjánsson, hefur lát-
ið hafa eftir sér að útilokað sé
annað en að heilbrigðisráðherra
hlíti fjárlögum en Geir Haarde
fjármálaráðherra hefur enga
ákvörðun tekið varðandi sparnað-
artillögur stjórnar Landspítala-
háskólasjúkrahúss.Er ákvörðun-
ar hans beðið með nokkurri eftir-
væntingu meðal stjórnenda spít-
alans en tekist hefur á þessu ári
að spara helming þess sem ráð
var fyrir gert. Að öllu óbreyttu
þarf að spara rúmar 800 milljónir
á næsta ári en meðal hugmynda
stjórnarmanna spítalans er að
minnka þjónustu meira en verið
hefur og leggja á komugjöld.
Heilbrigðisráðherra, Jón Krist-
jánsson, hefur vísað slíkum hug-
myndum á bug og hefur átt fundi
með fjármálaráðherra vegna
þess.
Magnús segir ekkert hafa ver-
ið ákveðið enn sem komið er. „Öll
vinna er í sínu venjubundna ferli
og ég á ekki von á að sú vinna
skili neinu alveg strax. Það er
ósköp eðlilegt á þessum tíma
árs.“ ■
Engar ákvarðanir verið teknar varðandi fjárlög næsta árs og Landspítalann:
Óljóst með niðurskurð
Tveir handteknir:
Voru með
fíkniefni
LÖGREGLA Tveir menn um fer-
tugt voru handteknir á Selfossi
eftir að hafa verið stöðvaðir við
venjubundið eftirlit um klukk-
an tvö í fyrrinótt.
Eftir að lögregla hafði stöðv-
að mennina vaknaði grunur um
að þeir væru með fíkniefni. Sá
grunur reyndist á rökum reist-
ur þar sem lítilræði af am-
fetamíni fannst í bifreiðinni
sem þeir voru í.
Mönnunum var sleppt að
loknum yfirheyrslum. Sömu
nótt voru þrír teknir fyrir ölv-
unarakstur í bænum. ■
Bílvelta við Hítará:
Fjögur systk-
ini slösuðust
LÖGREGLA Fjögur systkini slösuð-
ust eftir að bifreið sem eitt þeirra
ók valt á Snæfellsnesvegi skammt
vestan við Hítará um klukkan eitt
í gærdag. Þau voru flutt með
tveimur sjúkrabílum til Reykja-
víkur en reyndust ekki eins alvar-
lega slösuð og talið var í fyrstu.
Ökumaðurinn missti stjórn á
bílnum sem tók að rása á veginum
og valt en lenti síðan utan vegar.
Margir vegfarendur aðstoðuðu
systkini á slysstað en lögreglu-
maður á frívakt var einn þeirra
sem kom að slysinu. ■
Mesta spennan er
um auðu seðlana
Lítill áhugi virðist vera á forsetakosningunum sem fram fara um næstu
helgi. Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur telur ástæðuna þá að
flestir telji að Ólafi Ragnari stafi engin ógn af öðrum frambjóðendum.
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
Hann mun sitja áfram á Bessastöðum ef
marka má skoðanakannanir.
BALDUR ÁGÚSTSSON
Mælist með fimm prósenta fylgi þrátt fyrir
að vera flestum ókunnur fyrir nokkrum
mánuðum síðan.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON
Hefur gert athugasemdir við framkvæmd
forsetakosninganna hingað til en er viss um
meiri stuðning en kannanir gefa til kynna.
KVENNAHLAUPIÐ VEX OG VEX
Íslenskar konur eru hópsálir og fagna því að
geta hlaupið saman á sumardegi. Í þetta
sinn hlupu 18 þúsund konur Kvennahlaup
ÍSÍ á níutíu stöðum víðsvegar um landið.
SÁDI-ARABÍA Colin Powell, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
sagði í útvarpsviðtali við Radio
America á föstudag að hryðju-
verkamenn hefðu unnið sigur ef
bandarískir þegnar sem starfa í
Sádi-Arabíu myndu yfirgefa land-
ið í kjölfar hryðjuverkaárása á
borð við aftöku Paul M. Johnson.
Hann sagðist vonast til að landar
sínir yrðu kyrrir í konungsdæm-
inu, ekki síst þar sem þarlend
stjórnvöld lofuðu aukinni vernd
þeim til handa.
Bandarísk stjórnvöld hafa
áhyggjur af öryggi þeirra 35 þús-
und Bandaríkjamanna sem lifa og
starfa í Sádi-Arabíu, en einnig af
stöðugleika í landinu sem er
stærsti olíuframleiðandi heims. Í
yfirlýsingu frá stjórnvöldum eru
Bandaríkjamenn búsettir á svæð-
inu varaðir við frekari árásum,
einkum mögulegum hryðjuverk-
um gegn Bandaríkjamönnum við
Rauðahafið, á Persaflóa-svæðinu,
Arabíuskaga og í Norður-Afríku.
Árásir á Bandaríkjamenn hafa
aukist mjög að undanförnu í Sádi-
Arabíu, en auk Johnsons var
Kenneth Scroggs skotinn til bana í
Ryiadh í síðustu viku, kaupsýslu-
maðurinn Nick Berg afhausaður
nokkrum vikum fyrr og olíu-
verkamaður í Khobar drepinn í
maí. ■
Colin Powell um ástandið í Sádi-Arabíu:
Mikilvægt að Bandaríkja-
menn verði um kyrrt
Háskóli Íslands:
Metfjöldi
brautskráðist
SKÓLAMÁL Háskóli Íslands braut-
skráði í gær 830 kandídata við hátíð-
lega athöfn í Laugardalshöll en aldrei
í sögu Háskólans hafa svo margir
kandídatar brautskráðst. Af þeim
sem útskrifuðust voru 604 úr grunn-
námi, 135 úr framhaldsnámi, þrír
luku doktorsprófi og 91 viðbótarnámi
til starfsréttinda.
Í brautskráningarræðu sinni
talaði Páll Skúlason háskólarektor
um sviptingar í efnahagslífi, stjórn-
málum og menningu Íslendinga á
undanförnum árum og sagði átök
þeirra og deilur hafa snert alla Ís-
lendinga. Opinberað skýrar en
nokkru sinni fyrr að einstaklingarnir
mynda heild og einstakt samfélag
þar sem hver einstaklingur skiptir
máli. Því reyni nú á að vinna saman
að því að ná jafnvægi milli þeirra
sundurleitu afla sem takist á í sálar-
lífi okkar og samfélagi. ■
SLASAÐIST Í BÍLVELTU Tveir út-
lendingar á bílaleigubíl lentu í
bílveltu í Víðidal á Fjöllum í gær-
dag. Bíllinn fór margar veltur og
slasaðist annar þeirra sem í bíln-
um var lítillega og var hann flutt-
ur á sjúkrahúsið á Egilsstöðum.
Bíllinn er gjörónýtur.
OFSAAKSTUR Ökumaður var tek-
inn á 154 kílómetra hraða í Eld-
hrauni á Suðurlandsvegi á föstu-
dag. Hann má búast við að missa
ökuleyfið í mánuð.
GISTI FANGAGEYMSLUR
Maður á þrítugsaldri gisti fanga-
geymslur lögreglunnar á Ísafirði
í fyrrinótt. Á fimmta tímanum
um nóttina réðst hann á annan
mann í miðbæ Ísafjarðar. Maður-
inn var ölvaður og var handtek-
inn. Honum var sleppt að yfir-
heyrslum loknum í gærdag.
FLUGELDUM SKOTIÐ Á PÓSTHÚS
Skipaflugeldum var skotið á
pósthúsið við Digranesveg í
Kópavogi í fyrrinótt. Tilkynnt
var um stórbruna og var allt til-
tækt lögreglu- og slökkvilið kall-
að á staðinn. Ekki reyndist vera
mikil hætta á ferðum heldur log-
aði smá eldur í þakskyggni húss-
ins. ■
LÍK DÓMARA FINNST Í SKURÐI Lög-
regla Sameinuðu þjóðanna í Kosovo
hefur sett á fót rannsókn eftir að lík
bosnísks dómara fannst sundurhlut-
að í skurði á bak við skemmtistað í
þorpinu Ozdrim í vesturhluta Pec-
sýslu á föstudag. Dánarorsök er
ókunn.
YNGSTI ÞINGMAÐUR SPÁNAR FERST
Spænski lögfræðingurinn og þing-
maðurinn Alberto Pinado Gonzales
lést í bílslysi á laugardag. Pinado
Gonzales var kjörinn á þing þann
14. mars síðastliðinn og var yngsti
þingmaður Spánar, aðeins 26 ára er
hann lést. Bifreið þingmannsins fór
utan í stóran flutningabíl. ■