Fréttablaðið - 29.06.2004, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 162 stk.
Keypt & selt 23 stk.
Þjónusta 34 stk.
Heilsa 6 stk.
Heimilið 15 stk.
Tómstundir & ferðir 7 stk.
Húsnæði 25 stk.
Atvinna 13 stk.
Sjónvarpið tekur völdin
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 29. júní,
181. dagur ársins 2004.
Reykjavík 3.02 13.31 23.59
Akureyri 1.51 13.16 24.38
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
„Ég hef fitnað rosalega síðan ég byrjaði í
sjónvarpi og held mér eiginlega ekki í
formi,“ segir Hugi Halldórsson, dagskrá-
gerðarmaður á sjónvarpsstöðinni Popptíví.
„Ég held ég hafi farið út að hlaupa tvis-
var sinnum í síðasta mánuði en ég reyni
samt aðeins að passa mataræðið,“ segir
Hugi, en hann hætti að stunda íþróttir
þegar hann fluttist á mölina. „Ég ólst upp á
Sauðárkróki og var þar mikið í fótbolta en
nú er ég ekkert að æfa mig. Ég hygg nú
samt á að breyta því á næstunni,“ segir
Hugi, sem gerir þó alltaf armbeygjur og
magaæfingar á kvöldin. „Ég held þeirri
reglu til streitu þar sem ég hef gert það
síðan ég var þrettán ára patti.“
Aðspurður um hvort það fylgi sjónvarps-
lífinu að hafa mikið að gera og grípa frekar í
skyndibita segir Hugi það alveg vera raunin.
„Þó það sé mikið að gera og ég oft á þönum
þá borða ég frekar óhollan mat þegar ég hef
lítinn tíma. Málið er að ég kemst ekkert í lík-
amsrækt nema á morgnana sökum anna. Ég
sef nú frekar á morgnana og er ólíklegastur
manna til að hreyfa mig neitt svona snemma
dags,“ segir Hugi. Hann hefur þó verið að
reyna að borða meira grænmeti síðustu tvær
eða þrjár vikurnar. „Það sést nú einhver
munur síðan ég byrjaði að borða grænmeti
þannig að það er gott mál. Núna þarf ég bara
að fara að hreyfa mig reglulega,“ segir Hugi
að lokum.
lilja@frettabladid.is
Hefur fitnað í sjónvarpinu:
Sefur bara á
morgnana
heilsa@frettabladid.is
Í tilefni 50 ára afmælis
krabbameinsskrár Krabba-
meinsfélags Íslands hefur
félagið gefið út vandaða og
veglega bók sem nefnist
„Krabbamein á Íslandi“.
Þetta er 140 síðna litprent-
uð bók og sú fyrsta sem
fjallar um krabbamein á
fræðilegan hátt á íslensku.
Bókin á að nýtast almenningi, fjöl-
miðlafólki, nemendum, kennurum,
læknum, hjúkrunarfræðingum og
öðru heilbrigðisstarfsfólki.
Konur stunda 24 prósent
meira kynlíf þá daga sem þær eru
frjósamar samkvæmt
niðurstöðum rannsóknar
sem birtist í tímaritinu
Human Reproduction.
Ástæður þessa aukna
kynlífis eru óþekktar en
vísindamenn telja að
hún geti verið vegna, aukinnar
löngunar konunnar við egglos,
aukningu á kynferðislegu aðdráttar-
afli konunnar, eða að kynmök örvi
egglos.
Tveir nýir orkudrykkir eru
komnir á markað frá Purdey’s. Í
drykkjunum eru ávaxtasafar, ein-
stök formúla hressandi jurta, með-
al annars damiana og ginseng og
að sjálfsögðu valin vítamín og
steinefni, í létt kolsýrðu lindarvatni.
Þeir eru lausir við tilbúin sætuefni,
litarefni, bragðefni og rot-
varnarefni. Drykkirnir fást í
Heilsuhúsinu.
Læknar geta betur sagt
til um hvort sjúklingur sé
líklegur til að fá hjartaá-
fall, mæli þeir magn fiski-
lýsis í blóði, að því er
kemur fram í niðurstöðum banda-
rískrar könnunar. Sérfræðingur við
Harvard-háskóla segir að þeir sem
eru í mestri hættu á að fá hjartaá-
fall hafi minnst magn af omega-3
fitusýrum í blóði en þær fást úr
fiskilýsi. Vitað er að skortur á
ákveðnum gerðum
omega-3 fitusýra í blóði
eykur líkurnar á hjartaá-
falli. Þá hafa vísinda-
menn vitað um nokkurt
skeið að neysla á feitum
fiski verndar hjartað og
dregur úr líkum á hjartaáfalli. Sífellt
fleira bendir til þess að fiskilýsi hafi
áhrif til stöðuleika á hjartað.
Ný rannsókn leiðir í ljós að far-
sími í vasa eða belti karlmanna
getur dregið úr sæðisframleiðslu
um allt að 30%. Rannsóknin, sem
gerð var í Ungverjalandi, bendir til
þess að farsímar hafi bæði áhrif á
magn sæðisfrumna og hreyfanleika
þeirra frumna sem lifa af geislun
frá símunum.
Hugi gerir alltaf magaæfingar og armbeygjur á kvöldin
og hefur gert síðan hann var lítill.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR HEILSU
Frábært verð! 59.900,- m.vsk. Kisturnar
eru 190x69x88. Kisturnar eru úr stáli
og koma með öllu. Upplýsingar í síma
587 2470. lausnir@mi.is
Til sölu kraftmesti stand sleði landsins.
Kawasaki SXi pro 750cc árg. ‘99. Fæst
með kerru og galla í einum pakka á 450
þús. stgr. Engin skipti. Sími 899 5492.
Citroen 2cv6 ‘88, ek. 56 þús. km. Uppl.
í s. 894 7214.
Coleman Redwood 9 feta árg. 2000.
Einn eigandi. Vel með farið. Verð
750.000. S. 898 2811.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N