Fréttablaðið - 03.07.2004, Blaðsíða 6
6 3. júlí 2004 LAUGARDAGUR
SÚDAN 3000 flóttamenn hurfu að
næturlagi, klukkustundum áður
en Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, kom í
heimsókn í búðirnar þar sem þeir
höfðust við. Súdanskir hermenn
höfðu þá komið að næturlagi, rek-
ið fólkið upp í bíla og ekið þeim á
brott að því er bandaríska dag-
blaðið Washington Post greinir
frá.
Annan er á ferð í Darfur-héraði
í vesturhluta Súdans til að kynna
sér aðstæður flóttamanna sem
hafa hrakist undan átökum upp-
reisnarmanna og stjórnarher-
manna auk ofsókna fylgismanna
stjórnvalda. Annan hóf ferð sína í
einum bestu flóttamannabúðum í
héraðinu og hugðist síðan líta á
aðstæður í öðrum flóttamanna-
búðum þar sem hlutskipti fólks er
verra. Þegar þangað var komið
var hins vegar lítið að finna annað
en fáeina hermenn að þrífa upp
leifarnar af flóttamannabúðunum.
Talið er að fólkið sem var flutt
á brott hafi verið flutt í yfirfullar
flóttamannabúðir í tæpra 20 kíló-
metra fjarlægð. ■
Bætt við húsnæði
framhaldsskólanna
Þrír framhaldsskólar fá viðbótarhúsnæði til að koma öllum nýnemum að í haust. Til meiri
vandræða í húsnæðismálefnum framhaldsskólanna horfir að ári verði ekki byggt við skólana.
MENNTAMÁL Bæta á við húsnæði
Menntaskólans við Hamrahlíð,
Fjölbrautaskólans í Ármúla og
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
til að taka við auknum fjölda ný-
nema í framhaldsskóla næsta
haust. Mismun-
andi lausnir eru
áætlaðar fyrir
hvern skólanna
þriggja, segir að-
s t o ð a r m a ð u r
menntamálaráð-
herra. Skóla-
meistari Fjöl-
brautaskólans í
Ármúla segir
lausu skóla-
stofurnar ekki framtíðarlausn og
ef ekki verði byggt við framhalds-
skólana fyrir skólaárið 2005 verði
vandræðin enn meiri en í ár.
Sölvi Sveinsson, skólameist-
ari Fjölbrautaskólans við Ár-
múla, segir skólann ásamt
Menntaskólanum við Hamrahlíð
fá lausar skólastofur. „Þeir sem
koma til okkar og upp í Hamra-
hlíð eru þeir sem höfðu sótt um
einn skóla og annan til vara og
höfðu komist inn í hvorugan.“
Sölvi segir að á mánudaginn
komi í ljós hversu marga kenn-
ara þurfi að ráða til skólans. Það
ráðist af fjölda nýrra nemenda.
„Ef ég fæ eina stofu get ég tekið
25–30 nemendur en ef ég fæ
tvær get ég tekið við 50–60
nemendum.“
Sölvi segir ekki um framtíðar-
lausn að ræða; á áætlun sé að byg-
gja við fimm framhaldsskóla á
höfuðborgarsvæðinu. „Ég reikna
með að það verið byggt við ein-
hverja af þessum skólum þannig
að húsnæðið verði komið í gagnið
næsta haust því það er annar stór
árgangur að koma og fyrirséð að
það verði enn meiri vandræði
næsta haust ef ekki verður búið
að bæta við húsnæði.“
Einar Birgir Steinþórsson,
skólameistari Flensborgarskóla,
segir yfirgnæfandi líkur á að
skólinn fái húsnæði sem kallist
Dvergur. Skólinn taki við 200 ný-
nemum sem séu 50 fleiri en áður
hafi gerst. Þorri nýnemanna sé úr
Hafnarfirði. „Núverandi skóla-
húsnæði er náttúrlega löngu
sprungið,“ segir Einar. „Við höfð-
um áætlað að það gæti sinnt svona
560–570 krökkum en þeir verða
650 næsta haust. Með þessu við-
bótarhúsnæði gengur það. Þröngt
mega sáttir sitja.“
Steingrímur Sigurgeirsson, að-
stoðarmaður menntamálaráð-
herra, segir ekki ákveðið hvenig
málin verði leyst í Menntaskólan-
um við Hamrahlíð. Þar komi
nokkrir kostir til greina. „En eins
og þetta er núna þá eru sama sem
allir nýnemar komnir inn.“
gag@frettabladid.is
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72,63 0,10%
Sterlingspund 132,04 0,10%
Dönsk króna 11,88 0,09%
Evra 88,31 -0,08%
Gengisvísitala krónu 123,40 -0,10%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 168
Velta 1.014 milljónir
ICEX-15 2.960 1,88%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 429.985
Actavis Group 354.987
Bakkavör Group 143.441
Mesta hækkun
Líftæknisjóðurinn hf. 8,00%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 2,78%
Atorka 1,85%
Mesta lækkun
Bakkavör Group -5,19%
Actavis Group -2,14%
Kaldbakur -2,11%
Erlendar vísitölur
DJ * 10.274,7 -0,6%
Nasdaq * 2.003,7 -0,6%
FTSE 4.407,4 -0,4%
DAX 3.998,8 -0,9%
NK50 1.418,8 -0,0%
S&P * 1.125,3 -0,3%
* Bandarískar vísitölur kl. 17
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða Íslendingur hefur tekið sæti ístjórn búlgarska símans?
2Hvað hækka stýrivextir Seðlabankansmikið á þriðjudaginn?
3Hver skoraði sigurmark Grikkja gegnTékkum í undanúrslitum Evrópu-
keppninnar í fótbolta?
Svörin eru á bls. 35
FRUMSÝND 9. JÚLÍ
SMS LEIKUR
A›alvinningur er:
Sony Ericsson T630 + PS2 tölva + Spider-Man 2 PS2
leikurinn og mi›i fyrir 2 á Spider-Man2*
Aukavinningar eru:
• Mi›ar á Spider-Man 2
• Spider-Man 2 tölvuleikurinn
• Spider-Man 1 á DVD og VHS
• Ís frá Emmessís
• Gla›ningur frá LEGO
• Fullt af VHS og DVD myndum
• Tónlistin úr myndinni og margt fleira.
SENDU SMS SKEYTIÐ JA SPF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ.
VILTU MIÐA Á 99 KR.?
9. hver vinnur!
*A›alvinningur ver›ur dreginn út
úr öllum innsendum SMS skeytum
Vinningar ver›a afhendir hjá BT Smáralind.
Kópavogi. Me› því a› taka þátt ertu kominn
í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
GLÆSILEGIR
AUKAVINNINGAR!
Sjá›u myndina-Spila›u leikinn
AÐALVINNINGAR
Sony Ericsson T630Playstation 2
Slökkvilið:
Reykur í
Smáralind
SLÖKKVILIÐ Óttast var að eldur
hefði kviknað í Smáralind snem-
ma í gærmorgun. Slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins var tilkynnt
að reykur væri inni í húsinu og
var allt tiltækt lið sent á staðinn.
Þegar slökkviliðið kom á stað-
inn kom í ljós að reykurinn var
frá flúorljósi í versluninni Top-
shop en enginn eldur. Að sögn
slökkviliðsins var húsið ekki
reykræst. Reykurinn var ekki
mikill og í húsinu er loftræstibún-
aður sem dugði í þessu tilfelli. ■
FLENSBORGARSKÓLINN Í HAFNARFIRÐI
Verður þéttsetnari en áður hefur þekkst í
sögu skólans. Þar verða um 650 nemend-
ur í námi næsta haust sem er um 80 fleiri
en húsnæði skólans rúmar.
MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að
Hamrahlíð verði einn þriggja skóla sem
taki á móti þeim nýnemum sem ekki hafa
fengið trygga skólavist.
FJÖLBRAUTASKÓLINN Í ÁRMÚLA
Þar stunda um 900 nemendur nám næsta haust. Þar af um 200 nýnemar. Lausar
skólastofur verða reistar við húsvegg skólans sem leysir vanda 25–60 nýnema.
,,Núver-
andi skóla-
húsnæði er
náttúrlega
löngu
sprungið.
LÖGÐ Á FLÓTTA
Stríðsátök og uppskerubrestur hafa neytt fjölda fólks til að flýja heimili sín.
Súdanskir hermenn fluttu 3000 manns
á brott í skjóli nætur:
Földu flóttamenn
fyrir Kofi Annan