Fréttablaðið - 08.07.2004, Side 35
FIMMTUDAGUR 8. júlí 2004
Sölustaðir: Fjarðarkaup, Hagkaupsverslanir sem
selja garn, Innrömmun og hannyrðir Mjódd,
Mólý Kópavogi, Föndur og rit Mosfellsbær,
og garnverslanir um land allt.
Útgefandi: Tinna ehf, www.tinna.is
Nýkomið !
MATT DAMON
Leikarinn var hinn hressasti þegar hann mætti á leik Boston Red Sox gegn Oakland
Athletics í Boston í fyrradag. Með honum í för var unnusta hans Luciana Barroso.
Flestir ættu að muna eftir Sharon
Stone, sem lék á sínum tíma með
Michael Douglas í stórmyndinni
Basic Instinct. Stone, sem er 46 ára,
þykir mikil prímadonna og dyntótt
með eindæmum. Kröfulisti hennar,
þegar gengið er að samningum, er
bæði langur og ítarlegur.
Þar má meðal annars finna 200
þúsund krónur í vasapening á viku,
einn bíl með reyklausum einka-
bílstjóra og annan til einkanota,
þrjár barnfóstrur, tvo aðstoðar-
menn, farsíma, símboða, hótelsvítu,
flugmiða á fyrsta flokks farrými (sé
einkaþota ekki fyrir hendi), einka-
matsvein og fullbúið lúxushjólhýsi,
upphitað með stóru rúmi, baðher-
bergi með sturtu, sjónvarpi, ísskáp,
faxtæki og hljómflutningstækjum.
Þegar til stóð að gera framhald
myndarinnar Basic Instinct stóð til
að Stone fengi sjö milljónir dala, eða
tæplega hálfan milljarð króna.
Framleiðendurnir hættu við gerð
myndarinnar af þessum sökum. ■
SHARON STONE
Er ákveðin stórstjarna
sem veit hvað hún vill.
■ FÓLK
Sharon dýr í rekstri