Fréttablaðið - 13.07.2004, Qupperneq 6
EFNAHAGSMÁL Vísitala neysluverðs
lækkaði um 0,5 prósent í júlí sem
er tölvert meira en spár greining-
ardeilda bankanna gerðu ráð
fyrir. „Þetta eru í sjálfu sér
ánægjuleg tíðindi,“ segir Ingi-
mundur Friðriksson, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans. „Þetta
breytir hins vegar ekki neinum
grundvallaratriðum um ákvarðan-
ir Seðlabankans.“
Seðlabankinn gerði ráð fyrir
því í spá sinni að tólf mánaða
verðbólga yrði um og yfir þol-
mörkum verðbólgumarkmiðs
bankans sem eru fjögur prósent.
Verðbólga síðustu tólf mánaða er
nú 3,6 prósent. Verðbólgumark-
mið Seðlabankans er 2,5 prósent.
Verðbólgan er því enn vel yfir því
markmiði og gera má ráð fyrir að
svo verði á næstunni.
Lækkunin nú skýrist að stærst-
um hluta af liðnum föt og skór. Út-
sölur eru hafnar og eru áhrif lið-
arins á vísitöluna 0,45 prósent til
lækkunar. Markaðsverð húsnæðis
hækkar enn, en á móti kemur að
áhrif kerfisbreytingar í íbúða-
lánakerfi veldur lækkun húsnæð-
isliðar, þannig að sá liður stendur
nánast í stað.
Greiningardeildir bankanna
gerðu ráð fyrir því að verðbólgan
í júlí yrði frá núll niður í -0,2 pró-
sent. Kristinn Árnason, sérfræð-
ingur hjá greiningardeild Lands-
bankans, segir að frávik vísitöl-
unnar frá spá bankans skýrist af
húsnæðisliðnum sem hafi ekki
hækkað eins mikið og Landsbank-
inn bjóst við. „Við gerðum ráð
fyrir áhrifum af útsölunum,“ seg-
ir Kristinn. Greiningardeildir
hafa vanmetið þann lið síðustu
mánuði, en nú varð minni hækkun
á húsnæði en gert var ráð fyrir.
Kristinn tekur undir með Ingi-
mundi að tíðindin nú breyti ekki
stóru myndinnni, enda þótt þau
veki vonir um að verðbólguþrýst-
ingur sé heldur minni í augnablik-
inu en menn bjuggust við. Fleiri
mælingar þurfi til þess að mat á
stöðu efnahagsmála og verðbólgu-
horfa breytist fyrir næstu mán-
uði. Kristinn á von á því að Seðla-
bankinn haldi sínu striki.
Ingólfur Bender, forstöðumað-
ur Greiningar, segir frávikið frá -
spá bankans helgast af því að ekki
hafi verið gert ráð fyrir svo mikl-
um áhrifum til lækkunar af breyt-
ingu íbúðalánakerfisins. Líklegt
sé að sú breyting muni einnig hafa
áhrif til lækkunar í vísitölunni
fyrir ágúst. „Forsendur til lengri
tíma hafa ekki breyst að okkar
mati og spár okkar um vaxta-
ákvarðanir Seðlabankans hafa
ekki breyst við þessa niðurstöðu.“
haflidi@frettabladid.is
6 13. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Mótmælti mannréttindabrotum í Kína:
Treysta ekki mann-
réttindasamtökum
MANNRÉTTINDI Ögmundur Jónas-
son, þingflokksfomaður Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs, mótmælti mannréttinda-
brotum í Kína á fundi varaforseta
kínverska þingsins, Wang Zha-
ouguo, og sendinefndar hans með
fulltrúum þingflokkanna í ráð-
herrabústaðnum á Þingvöllum á
laugardag.
Ögmundur afhenti sendinefnd-
inni skýrslu mannréttindasamtak-
anna Amnesty International og
rakti helstu efnisatriði hennar.
„Þó að við tökum á móti gest-
um frá Kína sem öðrum ríkjum þá
má það aldrei fara svo að við lát-
um það óátalið ef við teljum
mannréttindi brotin á þeirra
þegnum. Þess vegna fannst mér
eðlilegt að koma þessum mótmæl-
um á framfæri með skýrslu sam-
takanna,“ segir Ögmundur. „Þeir
svöruðu því til að þeir bæru ekki
traust til mannréttindasamtak-
anna Amnesty International og
sögðu að þau væru ekki traustsins
verð að sínum dómi og vísuðu
þeim ásökunum sem þarna koma
fram á bug.“
Ögmundur óskar á næstunni
eftir fundi kínverska sendiráðsins
til að fara yfir málið: „Sérstaklega
mál þeirra sem hafa verið hneppt-
ir í varðhald vegna verkalýðsbar-
áttu.“ ■
Óbreyttar væntingar
þrátt fyrir verðhjöðnun
Vísitala neysluverðs lækkaði um hálft prósent í júlí. Útsölur snemma á ferð eins og í fyrra. Breyt-
ingar á húsnæðislánum vinna á móti hækkun markaðsverðs húsnæðis. Ánægjulegt en breytir
ekki mati sérfræðinga á verðbólguþróun á næstunni.
Eldur í heimahúsi:
Kviknaði í
þvottavél
ELDSVOÐI Eldur kom upp í heima-
húsi við Bergþórugötu í Reykja-
vík í gær þegar kviknaði í þvotta-
vél. Slökkviliðið í Reykjavík var
kallað til og slökkti það eldinn
fljótlega eftir að það kom á vett-
vang. Eldurinn kom upp í sameig-
inlegu þvottahúsi í fjölbýlishúsi
en fólk var heima í tveimur íbúð-
anna.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðinu dreifði eldurinn sér
ekki út en reykur var mikill. Vel
gekk að reykræsta en ekki liggur
fyrir hversu miklar skemmdir
urðu, en þær geta verið talsverðar
af völdum sóts. ■
■ VIÐSKIPTI
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 71,05 0,17%
Sterlingspund 132,49 0,88%
Dönsk króna 11,87 0,42%
Evra 88,29 0,44%
Gengisvísitala krónu 122,59 0,30%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 161
Velta 422 milljónir
ICEX-15 3.001 0,40%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 83.989
Íslandsbanki hf. 79.341
Össur hf. 58.027
Mesta hækkun
Marel hf. 1,61%
Jarðboranir hf. 1,53%
Samherji hf. 0,93%
Mesta lækkun
Opin Kerfi Group hf. -0,81%
Fjárfestingarfélagið Atorka hf. -0,78%
Össur hf. -0,74%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 10.173,5 -0,4%
Nasdaq* 1.923,0 -1,2%
FTSE 4.360,0 -0,8%
DAX 3.893,2 -0,8%
NIKKEI 11.582,3 1,39%
S&P* 1.108,4 -0,4%
* Bandarískar vísitölur kl. 18.00
VEISTU SVARIÐ?
1Hvaða atburðar minntust mörg þús-und íbúar Bosníu um helgina?
2Hvar var landsmót UngmennafélagsÍslands haldið?
3Hvaða íslenski knattspyrnumaðurþarf að leggja skóna á hilluna vegna
alvarlegra meiðsla?
Svörin eru á bls. 22
VERÐBÓLGA NÆSTU TÓLF
MÁNUÐI Á UNDAN:
2003
maí 2,20%
júní 1,80%
júlí 1,60%
ágúst 2,00%
september 2,20%
október 2,20%
nóvember 2,50%
desember 2,70%
2004
janúar 2,40%
febrúar 2,30%
mars 1,80%
apríl 2,20%
maí 3,20%
júní 3,90%
júlí 3,60%
BLESSAÐAR ÚTSÖLURNAR
Þeir eru margir sem gera góða ferð á útsölur. Þær fara snemma af stað í ár líkt og í fyrra.
Áhrifin eru að verðtryggð lán lækka nú milli mánaða. Útsölur eru ekki varanleg fyrirbæri
og verðhjöðnun í júlí er það ekki heldur og líkur á að verðbólguþrýstingur verði í íslensku
hagkerfi næstu misserin.
Félagsfundur
Framsóknarfélag Reykjavíkur – suður-
kjördæmi boðar til opins félagsfundar
um stöðu mála v/fjölmiðlafrumvarps,
þriðjudaginn 13.07.04, kl. 20:00 að
Hverfisgötu 33
Gestur fundarins
verður Eiríkur
Tómasson,
lagaprófessor
Framsóknarmenn fjölmennið og
takið þátt í umræðum
Stjórn FR-suður
FRAMSÓKNARFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SUÐURKJÖRDÆMI
MIKIL HAGNAÐARAUKNING Í
hálf fimm fréttum KB banka í
gær kom fram að greiningardeild
bankans gerir ráð fyrir að hagn-
aður fyrirtækja sem félagið spáir
um hækki um 240 prósent á milli
áranna 2003 og 2004. Mestu mun-
ar um mun betri afkomu fjárfest-
ingarfélaga.
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Rakti ofsóknir kínverskra stjórnvalda á
hendur forsvarsmönnum úr verkalýðsbar-
áttu, trúarhreyfingum og þjóðernisbaráttu
á fundi varaforseta kínverska þingsins og
sendinefndar hans með fulltrúum þing-
flokkanna.