Fréttablaðið - 13.07.2004, Blaðsíða 9
9ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2004
útsala
debenhams
afsláttur
af völdum vörum
S M Á R A L I N D
komdu og ger›u gó› kaup
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
52
05
7/
20
03
Afgreiðslutími
mán. - föst. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
50%
Samtök verslunar og
þjónustu:
Lítil áhersla
á þjónustu
ATVINNULÍF Á undanförnum árum
hefur fjölda fólks sem starfar í
verslun og þjónustu fjölgað hratt
samkvæmt fréttabréfi Samtaka
verslunar og þjónustu . Samtímis
hefur hlutfall þeirra sem vinna í
frumframleiðslugreinum og iðn-
aði lækkað.
Í fréttabréfinu segir að þrátt
fyrir að nú starfi 71% þjóðarinnar
við verslun og þjónustu sé áhersla
yfirvalda, til dæmis í menntamál-
um, ónóg um þennan þátt. Á það
er bent að um þrisvar sinnum
fleiri Íslendingar starfi í smásölu-
verslun heldur en í landbúnaði en
þó sé starfrækt sérstakt ráðu-
neyti um landbúnað og þrír skólar
á háskólastigi en enginn fyrir
verslun. ■
Ferðamanna leitað í Ás-
byrgi:
Fundust
heilir á húfi
BJÖRGUNARLEIT Tveir erlendir
ferðamenn sem villtust í Ás-
byrgi við Jökulsárgljúfur á
sunnudag komu í leitirnar
seinna um kvöldið. Mennirnir
voru voru hluti af sextán manna
hóp sem var á ferð um Ásbyrgi
um daginn en urðu viðskila frá
félögum sínum.
Klukkan átta um kvöldið hafði
hópurinn samband við landverði í
Ásbyrgi sem tilkynnti málið til
lögreglunnar á Húsavík. Klukkan
níu ræsti lögreglan út björgunar-
sveitir frá Húsavík, Kópaskeri og
Raufarhöfn og leituði um 25
manna lið að ferðamönnunum.
Skömmu eftir klukkan tíu komu
ferðamennirnir sjálfir fram heil-
ir á húfi. Veður var ágætt, tíu
stiga hiti, hæg norðvestan átt og
súld. ■
Írak:
Þrír dæmdir
til dauða
KARBALA, AP Í Karbala hafa þrír
menn verið dæmdir til dauða.
Þetta eru fyrstu dauðarefsing-
arnar sem írösk stjórnvöld hafa
fellt yfir þegnum sínum frá því
Bandaríkin og bandamenn þeir-
ra létu af stjórninni í Írak í lok
júní.
Tveir mannanna voru dæmd-
ir fyrir morð á sex fjölskyldu-
meðlimum. Hinn þriðji var
dæmdur fyrir að nauðga og
myrða dóttur sína.
Hernámslið Bandaríkjanna
felldi dauðarefsingar úr gildi á
meðan hún fór með stjórn í land-
inu en yfirvöld í Írak hafa gefið
sterklega í skyn að harðari refs-
ingar verði teknar upp að nýju
nú þegar sjálfsstjórn hefur ver-
ið komið á. ■
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir:
Margt gagnlegt í skýrslu
Ríkisendurskoðunar
STJÓRNMÁL Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra seg-
ir að skýrsla Ríkisendurskoðunar
um háskólastigið, þar sem stjórn-
völd eru hvött til skýrari stefnumót-
unar, muni gagnast vel í stefnumót-
unarvinnu innan menntamálaráðun-
eytisins.
„Það er margt mjög gott í þess-
ari skýrslu og ég vil undirstrika
það. Það er alls ekki þannig að ég sé
ósátt við allt í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar. Það sem ég er einfaldlega
ekki sammála er að það vanti stefnu
í málefnum háskólanna,“ segir Þor-
gerður Katrín.
Hún segir að undanfarin ár hafi
stefnan í málefnum háskólanna ver-
ið mjög skýr. „Hún hefur haft það
markmið að auka samkeppni, auka
valfrelsi og auka fjölbreytni í há-
skólamálum. Og við erum búin að
ná þeim árangri að það er komin fín
samkeppni, fjölbreytni og val-
frelsi,“ segir hún.
Hún segir að frá árinu 2000 hafi
fjöldi háskólanema tvöfaldast og
því sé líklegt að slíkri sprengingu
hafi fylgt ákveðnir vaxtarverkir.
„Ég hef fagnað því sem segir í
skýrslunni að það eigi að leggja
aukna áherslu á gæðaeftirlit. Ég
held að það sé rétta skrefið sem við
erum að taka, að leggja aukna á-
herslu á gæðamálin í skólunum,“
segir Þorgerður Katrín. ■
Skonnortan Martha ferst:
Tveir
drukkna í ká-
etum sínum
SJÓSLYS Tveir drukknuðu eftir að
danska skonnortan Martha sökk á
Kattegat aðfaranótt sunnudags.
Björgunarsveitir náðu sautján
manns í land, en kafarar fundu þau
sem drukknuðu í káetum sínum.
Þau látnu voru skipstjórinn og ung
kona.
Það var seint á laugardagskvöld
að hjálparbeiðni barst frá skonnort-
unni vegna sprungu í skipsskrokkn-
um og var sjór farinn að vætla inn.
Björgunarsveitir héldu strax af stað
til skipsins en um hálfeitt fór skipið
að sökkva hratt og björgun tókst
naumlega. Hvassviðri og mikill
öldugangur gerðu köfurum ómögu-
legt að komast niður í skipið til að
leita þeirra tveggja sem var saknað.
Það var svo seint í gær að líkin tvö
fundust.
Martha var seglskip, sjósett árið
1900 en fékk mótor árið 1923. Frá
1997 var Martha leigð út fyrir sam-
kvæmi. ■
SEGLSKIPIÐ MARTHA LIGGUR NÚ Á
HAFSBOTNI
Martha vó 51 tonn og var 32 metra langt
og 5,5 metra breitt seglskip. Mesta hæð
masturs var 23 metrar.
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARS-
DÓTTIR
Er ósammála skýrslu Ríkisendurskoðunar
um að stefnuleysi hafi ríkt en telur skýrsl-
una muni gagnast vel til stefnumótunar.