Fréttablaðið - 13.07.2004, Page 14
Finndu nýjar leiðir til að hreyfa þig á hverjum
degi. Kveiktu á stuðtónlist heima eftir vinnuna
eða skólann og dansaðu eins og það sé þitt
síðasta. Hristu þig og hafðu gaman að því.
Höfuðverkur ...
Orsök og ráð
Spennuhöfuðverkur lýsir sér yfirleitt sem
daufur sláttur í enninu, gagnaugunum eða
aftan á hálsinum. Venjuleg verkjalyf verka
ágætlega á þessa tegund höfuðverkjar en
einnig er gott að finna ástæðuna sem get-
ur verið tilfinninga-
legs eða umhverfis-
legs eðlis og komast
fyrir hana.
Mígreni er mjög al-
gengur höfuðverkur
sem oft fylgir ógleði
og sjóntruflanir.
Mígreni getur stafað
af fæðuofnæmi,
svefnleysi, streitu eða hormónasveiflum.
Ýmis lyfseðilskyld lyf og slökunaraðferðir
verka ágætlega á mígreni en svo læra
mígrenisjúklingar oftast fyrirbyggjandi að-
gerðir af biturri reynslu.
Hormónahöfuðverkur herjar aðeins á
konur og þá á einhverju skeiði tíðahrings-
ins. Einkennin minna á mígreni og má
bregðast við með lyfseðilskyldum verkja-
lyfjum eða slökun.
Fíknarhöfuðverkur orsakast af fíkn í
verkjalyf. Viðkomandi er þá farinn að taka
jafnvel einföldustu og saklausustu lyf í
óhófi við höfuðverk sem er í raun frá-
hvarfseinkenni frá síðustu höfuð-
verkjarpillu. Besta ráðið við þessari tegund
er að venja sig af lyfinu og ganga í gegn-
um fráhvörfin.
Ennisholubólgur geta valdið heiftarlegum
verkjum og eru algengastir hjá fólki sem er
með frjóofnæmi, með viðkvæma slímhúð
og næmt fyrir sýkingum. Við þessari tegund
höfuðverkja er best að taka kvef- eða of-
næmislyf.
Ef einhver einkenni eru þrálát eða
standa yfir í langan tíma á auðvitað að
leita læknis. ■
• Úr hreinum jurtum
og jurtaolíum
• Engin tilbúin rotvarnar-
eða ilmefni
• Lífræn ræktun með
“demeter” vottun
• Hjálpa þér að öðlast
heilbrigðari húð
Dr.Hauschka
Snyrtivörur
Kynning í dag
í Lyfju, Lágmúla
Úr hreinum jurtum
og jurtaolíum
Engin tilbúin rotvarnar-
eða ilmefni
Lífræn ræktun með
„gæða-vottun“
Hjálpa þér að öðlast
heilbrigðari húð
„Hingað kemur fólk með ýmsa
áverka eftir reiðhjólaslys, skrámur,
meiðsl og beinbrot. Jafnvel alvar-
lega höfuðáverka en það er sem bet-
ur fer sjaldgæft,“ segir Jón Bald-
ursson, yfirlæknir á Slysadeild
Landspítalans í Fossvogi. Hann seg-
ir alltaf meira um reiðhjólaslys á
sumrin en á öðrum árstímum enda
noti fólk hjólin meira þá. Engar töl-
ur liggja þó fyrir um tíðni þeirra á
deildinni en tilfinning Jóns er sú að
þeir sem noti hjálma sleppi betur
frá þeim en hinir. „Það er aldrei of
brýnt fyrir hjólreiðafólki að nota
hjálma en mér virðist mikill mis-
brestur á því, einkum meðal ung-
linga og fullorðinna,“ segir hann.
Jón telur börnin standa sig mun bet-
ur í þessu efni og þeir sem teljist
ábyrgir foreldrar sýni gjarnan gott
fordæmi og noti hjálma líka, að
minnsta kosti þegar þeir séu úti að
hjóla með börnunum.
Lög á Íslandi kveða á um skyldu
barna 15 ára og yngri til að nota
reiðhjólahjálma. Þau lög voru sett
fyrir hækkun sjálfræðisaldursins
upp í 18 ár og voru vissulega til
mikilla bóta. Börnum er hættara
við slysum en fullorðnum fyrir
margra hluta sakir. Þau skortir
dómgreind hinna eldri, þau bera
síður fyrir sig hendurnar og höfuð
þeirra er þungt í hlutfalli við búk-
inn. Hjálmar eru samt nauðsynlegt
öryggistæki fyrir hjólreiðafólk á
öllum aldri að mati Jóns Baldurs-
sonar læknis. Reiðhjólið telur hann
hollt og gott farartæki og mælir
með notkun þess í stað þess að
ferðast um í bíl, menga andrúms-
loftið og detta úr þjálfun. „Mitt hjól
stendur hér fyrir utan en ég hef
hjálminn inni,“ segir hann og
kveðst búinn að nota hjólið í 15 ár.
„Ég byrjaði meira að segja áður en
það komst í tísku,“ segir hann að
lokum og heldur svo áfram að
hlynna að slösuðum.
gun@frettabladid.is
Dagana 16. og 17.
september næst-
komandi verður
haldin ráðstefna
um tóbaksvarnir
á Hótel Örk í Hveragerði,
LOFT 2004. Skráning stendur nú
yfir á heimasíðu LOFTS,
www.hnlfi.is/loft2004, en þar er
einnig að finna dagskrá og aðrar
upplýsingar um ráðstefnuna.
Að sögn Höllu Guðmundsdótt-
ur hjúkrunarfræðings er ráð-
stefnan í umsjón Heilsustofnunar
NLFÍ í Hveragerði og opin heil-
brigðisstarfsfólki og öðrum
áhugamönnum um tóbaksvarnir.
„Fyrsta LOFT-ráðstefnan var
haldin á Egilsstöðum árið 1998 að
frumkvæði heilsugæslunnar þar
og svo var önnur ráðstefnan hald-
in á Skútustöðum í Mývatnssveit
árið 2003. Báðar þessar ráðstefn-
ur tókust svo vel að ákveðið var
að gera LOFT að föstum lið í tó-
baksvarnarstarfi hér á landi.“
segir Halla. „Á ráðstefnunni í ár
eru margir áhugaverðir fyrirles-
arar, jafnt íslenskir sem erlendir.
Við fáum til dæmis fyrirlestur
starfsmanns í norska heilbrigðis-
ráðuneytinu um hvernig algjört
reykingabann var undirbúið í No-
regi og hvernig því var fylgt eftir,
sem er mjög áhugavert. Þá verður
þarna fyrirlestur um munntó-
baksnotkun og meðferðarúrræði
fyrir þá sem vilja hætta að reyk-
ja, svo fátt eitt sé nefnt.“.
Ráðstefnugjald er 16.000 kr. en
hækkar í 19.000 kr. ef skráning
fer fram eftir 1. ágúst. ■
Jón Baldursson læknir á slysadeild:
Hjálmar draga úr
slysahættu
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Reiðhjól eru holl og góð farartæki ef
fyllsta öryggis er gætt,“ segir Jón Bald-
ursson yfirlæknir á slysadeild.
Þessir hjólreiðamenn sem ljósmyndari rakst á í Eldhrauninu sleppa vonandi slysalausir úr túrnum þótt hjálmalausir séu.
Tóbaksvarnaráðstefna á Hótel Örk:
Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra
Margir þrá að hætta reykingum, sem enginn velkist í vafa um að eru heilsuspillandi.
Ráðstefna um tóbaksvarnir verður haldin á Hótel Örk í september.