Fréttablaðið - 13.07.2004, Qupperneq 15
ÞRIÐJUDAGUR 13. júlí 2004
CHROM
dregur úr
sykurlöngun
og jafnar
blóðsykurinn
FÆST Í APÓTEKUM,
FJARÐARKAUP
OG HAGKAUP.
CAMBRIDGE KÚRINN.
Nýtt á Íslandi!
Bæði til megrunar og uppbyggingar.
Hefur öll vítamín að geyma sem líkaminn þarfnast.
Verndar innri líffæri og vöðva
Óskum eftir sölufólki um land allt
Viltu vita meira ?
Heimsæktu þá heimasíðu okkar
www.vaxtamotun.is eða í síma 894 1505 Karolína.
eða 894 1507 Þóranna
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
Á nýafstöðnu Evrópumóti í fót-
bolta mátti sjá margan fílefldan
karlmanninn hágráta í myndavél-
arnar. Þeir þóttu þó ekki minna
karlmannlegir fyrir það, en sál-
fræðingar í Bretlandi segja að fót-
boltinn sé að verða eini vettvang-
urinn fyrir vestræna nútímakarl-
menn til að fá útrás fyrir tárin
sem „sannir karlmenn fella helst
ekki og allra síst í fjölmenni“.
Bernard Capp, prófessor í sál-
fræði við Warwick-háskólann
Bretlandi, segir að þrátt fyrir að
karlmennskuímyndin hafi
breyst á síðustu áratugum eigi
karlmenn enn erfitt með að
gráta. Þeir byrgi tilfinningar
sínar inni, sem sé afar slæmt
fyrir heilsu þeirra. Capp segir að
í gegnum söguna hafi karlmenn
mátt gráta undir ákveðnum
kringumstæðum. Aðalsmenn í
Bretlandi máttu til dæmis gráta
„á réttum augnablikum“ meðan
lágstéttin gat ekki leyft sér það
undir neinum kringumstæðum.
Sálfræðingar velta því fyrir
sér hvort fótboltinn sé að verða að
nýjum „trúarbrögðum“, og vísar í
„járnstakka“ Cromwells, sem
þrátt fyrir að vera karlmennskan
holdi klæddir leyfðu sér að gráta
á bænasamkomum.
Því fleiri tækifæri sem karl-
menn fái til að gráta því betra
fyrir heilsu þeirra. Copp hvetur
því karlmenn til að fá útrás fyrir
geðshræringu sína í fótboltanum
og gráta eins og þeir lifandi
geta. ■
Rannsókn á 14.500 þunguðum konum í
Bandaríkjunum leiddi í ljós að þær sem
voru duglegar að borða fisk á meðgöng-
unni þjáðust síður af fæðingarþunglyndi.
Börn þeirra voru líka ólíklegri til að þjást
af þunglyndi síðar á lífsleiðinni eða eiga
við hegðunarvanda og námsörðugleika
að stríða.
Aðrar sambærilegar rannsóknir sem gerð-
ar hafa verið á omega 3-fitusýrum renna
stoðum undir þessar niðurstöður. Vísinda-
menn í Bretlandi hafa lýst yfir áhyggjum
af því hversu inntaka fólks á ómega 3-sýr-
um hefur minnkað undanfarin 50 ár.
„Fólk þarf að borða meiri fisk til að heil-
inn sé heilbrigður,“ segja vísindamenn-
irnir. „Tvær fiskmáltíðir á viku eru algjört
lágmark.“
Meðalneysla á fiski í Bretlandi er 47
grömm á viku, sem er allt of lítið, og sjö
af hverjum tíu borða aldrei fisk. ■
Fiskur ætti að vera reglulegur hluti af
mataræði fólks.
Geðshræring í boltanum heilsusamleg:
Karlmenn gráti
eins og þeir lifandi geta
Karlmenn mættu að ósekju
gráta meira. Það þykir þeim
hins vegar ekki karlmannlegt
nema þeir séu að vinna eða
tapa í boltanum.
Eftir samveru mína með Yogi
Shanti Desai í mars og maí á
þessu ári velti ég því mikið fyrir
mér hvort það sé eitthvað til sem
heitir hugljómun. Í bókum um
andleg fræði er oft rætt um hug-
ljómun sem upphafið eða yfir-
náttúrulegt ástand. Öll samfélög
hafa átt það til að skrifa sögur um
andlega rómantík. Ég vil alls ekki
draga þær allar í efa en ef hug-
ljómun er raunveruleg getur þá
verið að hún sé aðeins venjulegri
en margir vilja meina? Þarf nokk-
ur að svífa um í lausu lofti eða
framkvæma kraftaverk til þess
að teljast hugljómaður? Ef hug-
ljómun er raunverulegt ástand
snýst hún þá ekki frekar um að
sjá hlutina í skýru ljósi? Sjá hlut-
ina eins og þeir eru frekar en að
sjá þá eins og við viljum að þeir
séu? Búdda fékk nafn sitt vegna
þess að það þýðir „sá sem er full-
komlega vakandi“. Því spyr ég
sjálfan mig: „Myndi ég þekkja
mann sem hefur orðið fyrir hug-
ljómun ef ég hitti hann úti á götu?
Ganga þeir sem hafa fengið hug-
ljómun mögulega á meðal okkar
án þess að við vitum af því?“ Ég
veit að þessar vangaveltur mínar
verða mögulega misskildar og ég
er kannski ívið háfleygari en
venjulega, en ef ég hef fengið ein-
hvern til að hugsa um ástand hug-
ljómunar og efast eitt augnablik
um þær sögur sem okkur eru
sagðar (yfirleitt ekki frá fyrstu
hendi) þá er markmiði mínu náð.
Ég tel að andlegt líf snúist um að
standa á eigin fótum. Ramana
Maharishi spurði til dæmis: „Til
hvers að reyna að þekkja Guð ef
við þekkjum ekki einu sinni okk-
ur sjálf?“ ■
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
HEILSU LÍKAMA OG SÁLAR.
Er eitthvað til sem heitir hugljómun?
gbergmann@gbergmann.is.
Fiskur er hollur:
Dregur úr
þunglyndi
Rannsókn:
Mjólk er góð
Fjórtán af átján mikilvægustu
steinefnum og vítamínum sem
mannslíkaminn þarfnast getum við
fengið úr mjólk. Þetta kemur fram í
nýlegri rannsókn
sem gerð var
fyrir Mjölk-
främjandet í Sví-
þjóð og getið er
um í Bændablað-
inu. Steinefnin
sem mjólkin er
auðugust af eru
kalk, fosfór, kalí-
um, magnesíum,
selen, zink og
joð. Hún er rík af
hinum ýmsu B vítamínum og einnig
A og D. Sumarmjólkin inniheldur
meira vítamín en vetrarmjólkin,
það gerir græna grasið sem kýrnar
nærast á. ■